Síða 2 af 2

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:34
af kjartanbj
Ég er með Michelin pilot sport 4 undir hjá mér sem Sumardekk og Nokain Hakkapelita ónegld að sjálfsögðu undir á veturna, er með þetta á sitthvorum felguganginum og skipti sjálfur bara út á plani, Nokian dekkin eru eins og ný eftir 1 og hálfan vetur og með svaka gott grip og merkilega hljóðlát, þau eru hljóðlátari en Michelin sumardekkin.

Ég var með Michelin alpin undir SantaFe sem ég átti og þau komu mjög vel út , ónegld og keyrði á þeim Selfoss - Rvk - Selfoss nær daglega í öllum veðrum og voru bara helvíti góð

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Sun 25. Apr 2021 18:59
af Haraldur25
Skella sér á michelin pilot sport 4S :megasmile

Var að panta þau á camskill. Mjög spenntur að fá þau.

Buinn að liggja yfir dekkjum síðustu daga á öllum síðunum sem bjóða uppá dóma.

Var að reyna að velja á milli michelin pilot sport 4s, Goodyear f1 super sport eða Bridgestone potenza sport.

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Sun 25. Apr 2021 23:59
af littli-Jake
Haraldur25 skrifaði:Skella sér á michelin pilot sport 4S :megasmile

Var að panta þau á camskill. Mjög spenntur að fá þau.

Buinn að liggja yfir dekkjum síðustu daga á öllum síðunum sem bjóða uppá dóma.

Var að reyna að velja á milli michelin pilot sport 4s, Goodyear f1 super sport eða Bridgestone potenza sport.

Hvar var besta verðið?

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Mán 26. Apr 2021 00:22
af Haraldur25
littli-Jake skrifaði:

Costco og camskill með sama verð eiginlega. Bara svo langur biðtími í costco. Síðast ég vissi er næsti laudi tími 10 maí.

Er að panta 235-40-18. Kosta í costco 32 þ stykkið.

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Mán 26. Apr 2021 12:52
af kjartanbj
Haraldur25 skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
Haraldur25 skrifaði:Skella sér á michelin pilot sport 4S :megasmile

Var að panta þau á camskill. Mjög spenntur að fá þau.

Buinn að liggja yfir dekkjum síðustu daga á öllum síðunum sem bjóða uppá dóma.

Var að reyna að velja á milli michelin pilot sport 4s, Goodyear f1 super sport eða Bridgestone potenza sport.

Hvar var besta verðið?

Costco og camskill með sama verð eiginlega. Bara svo langur biðtími í costco. Síðast ég vissi er næsti laudi tími 10 maí.

Er að panta 235-40-18. Kosta í costco 32 þ stykkið.

Undir hvaða bíl ertu að fara setja 4s dekkin

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Mán 26. Apr 2021 16:54
af Haraldur25
Bara venjulegan Audi A4 B8 2010 bíl. :baby

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Fim 14. Júl 2022 10:28
af gretarjons
Gaman að finna þessa umræðu!
Ég er einmitt að velta fyrir mér dekkjakaupum, langar bara í góð heilsársdekk.

Það væri gaman að heyra frá ykkur update núna ári seinna hvernig dekkin ykkar eru :)
Michelin er búin að uppfæra Cross Climate+ dekkin og í fyrra kom Cross Climate 2 og eiga þau að hafa bætt sig verulega í vetraraðstæðum.

Tyre Reviews velur þau sem bestu heilsársdekkin:
https://www.tyrereviews.com/Article/202 ... e-Test.htm

Og hérna er frábær samantekt á muninum á CC+, sem þeir einmitt kalla sumardekk með vetrareiginleika, og CC2.
https://www.tyrereviews.com/Article/Mic ... limate.htm

+ í kladdann ef einhver hefur séð hvort CC2 sé til í Costco og hvað þau kosta hjá þeim :megasmile

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Fim 14. Júl 2022 10:46
af GullMoli
Nýlega búinn að versla CC2 sem sumardekk undir Forester hjá mér. Kom mér á óvart að það heyrist ekkert í þeim að viti og hafa reynst vel þessar 3 vikur (meðal annars akstur upp í Kerlingafjöll).

Slatti til í Costco, voru að vísu bara til 6stk af minni stærð þegar ég fór en það koma eflaust reglulega sendingar.

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Mið 20. Júl 2022 22:25
af linked
gretarjons skrifaði:Gaman að finna þessa umræðu!
Ég er einmitt að velta fyrir mér dekkjakaupum, langar bara í góð heilsársdekk.

Það væri gaman að heyra frá ykkur update núna ári seinna hvernig dekkin ykkar eru :)
Michelin er búin að uppfæra Cross Climate+ dekkin og í fyrra kom Cross Climate 2 og eiga þau að hafa bætt sig verulega í vetraraðstæðum.

Tyre Reviews velur þau sem bestu heilsársdekkin:
https://www.tyrereviews.com/Article/202 ... e-Test.htm

Og hérna er frábær samantekt á muninum á CC+, sem þeir einmitt kalla sumardekk með vetrareiginleika, og CC2.
https://www.tyrereviews.com/Article/Mic ... limate.htm

+ í kladdann ef einhver hefur séð hvort CC2 sé til í Costco og hvað þau kosta hjá þeim :megasmile

Ég mæli með Michelin Alpin, hef keyrt í gegnum tvo þannig ganga.

Re: Michelin CrossClimate+ dekk. Hefur einhver reynslu af þeim?

Sent: Fim 21. Júl 2022 00:09
af littli-Jake
Ég fékk mér cc sem sumardekk undir Legacy. Bara sáttur so far