Síða 1 af 2

Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 07:30
af Hjaltiatla
Sælir/Sælar

Er að skoða fólksbíl fyrir allt að 900.000 kr sem þarfnast lítils viðhalds. Ef þið eruð með einhverjar hugmyndir þá megið þið endilega láta mig vita :)
Helst lítið keyrður og skoðaður

Edit: A til B bíll til og frá vinnu á höfuðborgarsvæðinu og er ekki hugsaður sem fjölskyldubíll.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 07:42
af Viktor

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 09:52
af falcon1
Toyota allan daginn :D

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 10:47
af littli-Jake
Myndi alveg hjálpa ef þú tækir fram til dæmis hvort þetta væri fjölskyldu bíll eða bara fyrir þig til að skjótast í vinnuna. Bílar eru fjölbreyttir.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 10:49
af Hjaltiatla
littli-Jake skrifaði:Myndi alveg hjálpa ef þú tækir fram til dæmis hvort þetta væri fjölskyldu bíll eða bara fyrir þig til að skjótast í vinnuna. Bílar eru fjölbreyttir.


All right, góður punktur.

Breytti innlegginu.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 10:58
af ColdIce
Fáðú þér bara lítinn sendibíl

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 11:04
af KaldiBoi
falcon1 skrifaði:Toyota allan daginn :D


Mun aldrei skilja þetta Toyota-æði :hmm

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 11:22
af stinkenfarten
KaldiBoi skrifaði:
falcon1 skrifaði:Toyota allan daginn :D


Mun aldrei skilja þetta Toyota-æði :hmm


toyotur eru over-engineered og eru því betri og þurfa lítið sem ekkert viðhald.

mæli með þessu: https://www.youtube.com/watch?v=4E793WS72aU

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 11:28
af worghal
stinkenfarten skrifaði:
KaldiBoi skrifaði:
falcon1 skrifaði:Toyota allan daginn :D


Mun aldrei skilja þetta Toyota-æði :hmm


toyotur eru over-engineered og eru því betri og þurfa lítið sem ekkert viðhald.

mæli með þessu: https://www.youtube.com/watch?v=4E793WS72aU

en þeir eru svo ljótir, að innan jafnt og að utan. :klessa
eina undantekningin er supra, land cruiser og gt86.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 11:41
af Viktor
worghal skrifaði:
stinkenfarten skrifaði:
KaldiBoi skrifaði:
falcon1 skrifaði:Toyota allan daginn :D


Mun aldrei skilja þetta Toyota-æði :hmm


toyotur eru over-engineered og eru því betri og þurfa lítið sem ekkert viðhald.

mæli með þessu: https://www.youtube.com/watch?v=4E793WS72aU

en þeir eru svo ljótir, að innan jafnt og að utan. :klessa
eina undantekningin er supra, land cruiser og gt86.


Þeir eru allir að koma til...

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 12:15
af rapport
Nokkuð safe bet, lítill, lítið ekinn og ódýr í rekstri - https://bland.is/til-solu/farartaeki/bi ... 6/4402523/

Ekki safe bet en líklega skemmtilegri, hver vill ekki prófa að eiga Jagúar?

https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 6a374a67b4

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 12:45
af Mossi__
Sem mjög, óverulega, stoltur eigandi Aygo, og skipti út "flottum" fjölskyldubíl yfir í Aygo, hafandi átt Aygo í um 10 ár áður þá þori ég að fullyrða það að Aygo séu bara þrælsniðug kaup.

Hann dugar (ath dugar, ekki beint hentar) sem fjölskyldubíll (2 barnastólar).

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 12:49
af Hjaltiatla
Nú spyr ég eins og bjáni , eru flestir bílar með tímakeðju eftir 2010 eða er ennþá verið að framleiða bíla með tímareim?
Veit að það getur verið frekar dýrt að skipta um tímareim (sem á að skipta um á 100.000 km fresti)

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 12:57
af worghal
Hjaltiatla skrifaði:Nú spyr ég eins og bjáni , eru flestir bílar með tímakeðju eftir 2010 eða er ennþá verið að framleiða bíla með tímareim?
Veit að það getur verið frekar dýrt að skipta um tímareim (sem á að skipta um á 100.000 km fresti)

tímareim er mismunandi eftir bílum.
til dæmis í vw þá dugar tímareim í 210þ km eða 8 ár að mig minnir.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:02
af Hjaltiatla
Er allavegana jákvæður fyrir bílum sem eru með lága bilanatíðni.
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/enginn-titill-5

Mynd

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:18
af Dropi
Ég hef átt Volvo síðan 2013, sá bíll er orðinn 15 ára gamall og eina viðhaldið hefur verið 1 stykki lega, rafgeymir, vinda alternator, kerti, tímabelti, demparar og bremsur. Allt eðlilegt slit. Næsti bíll verður nýr Volvo en þangað til er ég að skoða þessa V60 hybrid sem eru frekar ódýrir notaðir. Volvo alla leið. Minn er ekki meira en 500 þús virði hámark í dag, en gefur mér ekki neina ástæðu til að skipta honum út ennþá.

Toyota eru frægir fyrir að vera ódýrir og hagkvæmir, en mér þykir alveg merkilegt hvað þeir nýju eru ljótir og þessir litlu mikar tindósir í akstri.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:27
af Klemmi
Ég hef verið mjög ánægður með minn Hyundai i30 2013 árgerð. Keyptum hann í október 2017 á 960þús, og ef ég er ekki að gleyma neinu, þá hefur viðhaldskostnaður síðan þá verið ~250þús, og hann ekinn um 65-70þús km. Innifalið í þessum 250þús er allsherjar bremsuyfirhalning sem kostaði ~120þús, sem ég flokka að vissu leyti bara sem venjulegan rekstrarkostnað, í bremsum eru slitfletir sem allir bílar slíta.

Annars er þetta alltaf lotterí með bíla, nema þeir séu í ábyrgð. Það eru góð og slæm eintök þarna úti, ef þér lýst vel á bíl, þá tel ég að það borgi sig alveg að fara með hann í ástandsskoðun sem kostar 20-30þús, en minnkar líkur á að þú kaupir köttinn í sekknum.

Að þessu sögðu, þá myndi ég sjálfur hiklaust kaupa svona bíl aftur, og myndi því alveg íhuga þennan, viðurkenni þó að mér finnst skrítið hvað verðin hafa lítið lækkað, þ.e. 3 og hálft ár síðan okkar var auglýstur á sama verði og svipað keyrður, og hann er aðeins ári eldri.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:36
af worghal
Klemmi skrifaði:Ég hef verið mjög ánægður með minn Hyundai i30 2013 árgerð. Keyptum hann í október 2017 á 960þús, og ef ég er ekki að gleyma neinu, þá hefur viðhaldskostnaður síðan þá verið ~250þús, og hann ekinn um 65-70þús km. Innifalið í þessum 250þús er allsherjar bremsuyfirhalning sem kostaði ~120þús, sem ég flokka að vissu leyti bara sem venjulegan rekstrarkostnað, í bremsum eru slitfletir sem allir bílar slíta.

Annars er þetta alltaf lotterí með bíla, nema þeir séu í ábyrgð. Það eru góð og slæm eintök þarna úti, ef þér lýst vel á bíl, þá tel ég að það borgi sig alveg að fara með hann í ástandsskoðun sem kostar 20-30þús, en minnkar líkur á að þú kaupir köttinn í sekknum.

Að þessu sögðu, þá myndi ég sjálfur hiklaust kaupa svona bíl aftur, og myndi því alveg íhuga þennan, viðurkenni þó að mér finnst skrítið hvað verðin hafa lítið lækkað, þ.e. 3 og hálft ár síðan okkar var auglýstur á sama verði og svipað keyrður, og hann er aðeins ári eldri.

ef eitthvað þá hafa verð hækkað.
ég keypti 2015 golf variant (station týpan) sjálfsskiptann í fyrra á 1.4m ekinn 80þ, fékk hann á nýjum nagladekkjum og ný sumar dekk fylgdu með, allt í gegnum bílasölu.
alveg eins bíll er núna listaður á 490þ meira en ég borgaði fyrir minn :lol:
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 4ebb19a92d

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:37
af Henjo
Aygo (sem er líka Citroen C1 og pusjó 108), I10, VW UP/Citigo. Allt solid litlir einfaldir bílar sem eyða eingu og bila ekki. Og ef þeir bila þá er almennt frekar einfalt að gera við þá.

Og ekki láta tímakeðju plata þig, þær hafa alveg sínar ókosti eins og tímareimar. Auk þess tímareimar í bílum nú til dags endast alveg (t.d. VW up, 210þús km eða 10ár)

edit, bæti við bílum

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:48
af KaldiBoi
Henjo skrifaði:Aygo (sem er líka Citroen C1 og pusjó 108), I10, VW UP/Citigo. Allt solid litlir einfaldir bílar sem eyða eingu og bila ekki. Og ef þeir bila þá er almennt frekar einfalt að gera við þá.

Og ekki láta tímakeðju plata þig, þær hafa alveg sínar ókosti eins og tímareimar. Auk þess tímareimar í bílum nú til dags endast alveg (t.d. VW up, 210þús km eða 10ár)


Bumpa þetta, ef bílnum er illa viðhaldið, smur osfv þá geta tímakeðjurnar alveg tekið þig illa í veskið þar sem oft er erfitt að komast að þeim og mikill vinnukostnaður við viðgerðir.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 15:44
af CendenZ
Ég myndi fara í Toyota eða Lexus, eða Kia.

T.d. Lexus rs 350
Þessir bílar hafa komið ótrúlega vel út, bæði hvað ryð varðar og endingu á vélbúnaði. Svo er ótrúlega gaman að vera á öflugum bíl með plássi
Notar svo bara td Arctic Trucks til að þjónusta þá

Ég er á 12 ára Toyotu sem á örugglega önnur 20 ár í viðbót ;)

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 16:11
af worghal
CendenZ skrifaði:Ég myndi fara í Toyota eða Lexus, eða Kia.

T.d. Lexus rs 350
Þessir bílar hafa komið ótrúlega vel út, bæði hvað ryð varðar og endingu á vélbúnaði. Svo er ótrúlega gaman að vera á öflugum bíl með plássi
Notar svo bara td Arctic Trucks til að þjónusta þá

Ég er á 12 ára Toyotu sem á örugglega önnur 20 ár í viðbót ;)

hef heyrt að þessir RX350 bílar séu verstu Lexusarnir hvað varðar bilanatíðni :lol:

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 16:16
af Hjaltiatla
Ákvað að ganga frá þessu í dag og skellti mér á Huyndai I10. Fékk hann á fínu verði 670 þúsund, ekinn 56 þúsund km og er 2015 módel.
Skoðaður 2023 og það fylgir bæði sumar og vetrardekk.

Mynd
Mynd

Er kallaður "Lemmarinn" vegna bílnúmersins LE-M11 :)

Takk fyrir ykkar input.

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 17:10
af KaldiBoi
Hjaltiatla skrifaði:Ákvað að ganga frá þessu í dag og skellti mér á Huyndai I10. Fékk hann á fínu verði 670 þúsund, ekinn 56 þúsund km og er 2015 módel.
Skoðaður 2023 og það fylgir bæði sumar og vetrardekk.

Mynd
Mynd

Er kallaður "Lemmarinn" vegna bílnúmersins LE-M11 :)

Takk fyrir ykkar input.


Til hamingju með nýju kaupin! :megasmile

Re: Notaður bíll - Hugmyndir

Sent: Þri 20. Apr 2021 17:53
af falcon1
Til hamingju með nýja notaða bílinn. :D