Síða 1 af 1

Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 14:47
af GuðjónR
Í vetur hef ég orðið var við hrikalega fýlu þegar ég kveiki á loftkælingunni í bílnum (AC).
Hélt fyrst að það væri dauður fugl eða eða mús undir vélarhlífinni en það reyndist ekki vera.
Googlaði og sé að þetta er þekkt vandamál en hef ekki séð lausnina, hafið þið lent í þessu og ef svo hvernig losnar maður við þessa lykt?

https://www.briskoda.net/forums/topic/4 ... con-is-on/

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:01
af steinar993
mögulega bara skipta um loftsíu? Ég gerði það á mínum þegar það var slæm lykt og það lagaðist, hinsvegar var ekki svo slæm lyktin hjá mér að ég hélt það væru eitthvað dautt en allavega fór lyktin.

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:04
af GuðjónR
steinar993 skrifaði:mögulega bara skipta um loftsíu? Ég gerði það á mínum þegar það var slæm lykt og það lagaðist, hinsvegar var ekki svo slæm lyktin hjá mér að ég hélt það væru eitthvað dautt en allavega fór lyktin.

Skipti um loftsíu og frjókornasíu og ekkert breyttist.

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:18
af mjolkurdreytill
It's possible that bacteria have developed in the AC system and this can be removed using an Aircon Cleaner Bomb. You can get one from Halfords.


Ómögulegt að þetta eigi við hjá þér?

Hefurðu prufað að láta loftkælinguna ganga lengi?

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:19
af Hjaltiatla
Mögulega að dæla inn sótthreinsispreyi inní inntakið á AC.
https://www.youtube.com/watch?v=3uAjkr_SuME&t=154s

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:20
af ColdIce

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 15:24
af kjartanbj
Það hefur líklega myndast mygla út frá raka í kerfinu , ekki nóg að skipta um síuna , það gæti hafa stíflast dren á Ac kerfinu , það sést þegar bílar ganga með ac í gangi oft leka vatn undan bílunum sem er eðlilegt en stundum vill það stíflast og þá getur rakinn farið að mynda myglu , það þyrfti bara hreinsa þetta og athuga hvort það sé stíflað hjá þér

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 16:44
af slapi
Það þarf að drepa mygluna sem hefur sest á eimirinn þetta ætti að fást í helstu bílabúðum

Annars mæli ég alltaf með því að fólk hafi kveikt á A/C takkanum alltaf því þetta bætir loftið í bílunum og minnkar rakann.
Ef drwniæ hefur stíflast þá endar með því að það það lekur vatn inní bílinn og þá væri lyktin alltaf í bílnum en það kemur engin lykt þegar myglan er þurr, því kemur lyktin þegar fellur á eimirinn þegar kveikt er á A/C.

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Sun 25. Apr 2021 17:38
af Viktor

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Mán 26. Apr 2021 13:20
af Benzmann
ertu viss um að þú sért ekki með eh skemmtilegann vin sem hefur troðið hráum kjúkling inn í miðstöðina hjá þér ? :guy

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Mán 26. Apr 2021 16:45
af J1nX
ég lenti í því skemmtilega atviki að stíga ofan í skít af hundinum án þess að taka eftir því á leiðinni út í bíl, svo klíndist það náttrlega í mottuna í bílnum og ég fattaði ekkert hvaða djöfulsins lykt þetta væri fyrr en ég fór í sömu skónna nokkrum dögum seinna og sá þá skítinn undir skónum, þá blés miðstöðin auðvitað heitu lofti beint á mottuna og magnaði lyktina.. þurfti að þrífa mottuna nokkrum sinnum til að losna við lyktina ](*,) ](*,)

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Þri 27. Apr 2021 08:26
af KLyX
Mæli með að skoða þetta efni í svona tilvik:

https://foerch.is/product/bakteriuhrein ... aeli-r569/

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Mið 28. Apr 2021 08:29
af Jón Ragnar
Ég lenti í þessu um daginn.

En eftir að ég hef látið AC ganga nokkra daga með núna hefur hún farið. Væntanlega komin einhver fýla að vera ekki notað yfir allan veturinn.

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Mið 28. Apr 2021 09:16
af GuðjónR
Smá update frá mér líka, er búinn að hafa AC í gangi síðan ég póstaði þessu innleggi á sunnudag og lyktin er 100% farin!
Ég vissi ekki að AC ætti að nota með heitum blæstri á veturnar til að þurrka upp raka innan úr bílnum.
Flott að vita af þessum lyktarbombum, sérstaklega þessari sem gefur lykt eins og er í nýjum bílum, á eftir að borga sig þegar maður selur.
:happy

Re: Vond lykt í bínum þegar kveikt er á AC

Sent: Mið 28. Apr 2021 10:22
af slapi
GuðjónR skrifaði:Smá update frá mér líka, er búinn að hafa AC í gangi síðan ég póstaði þessu innleggi á sunnudag og lyktin er 100% farin!
Ég vissi ekki að AC ætti að nota með heitum blæstri á veturnar til að þurrka upp raka innan úr bílnum.
Flott að vita af þessum lyktarbombum, sérstaklega þessari sem gefur lykt eins og er í nýjum bílum, á eftir að borga sig þegar maður selur.
:happy



Geggjað, hafa bara alltaf kveikt á þessu, bílar í dag ráða alveg hvort A/C kerfið virkist eða ekki.
Það fer allt eftir úti/inni hitastigi , rakastigi vinnsluhita og margt annað.
Ljósið í takkanum er stundum bara upp á punt til að friða eigandann.
Bílarnir virkja síðan kerfið bara eftir þörfum.