Síða 1 af 2

ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 10:56
af GuðjónR
Titill segir allt :sleezyjoe

Vita menn hvað veldur því að útblástursljósið logar stanslaust?
Af og til gegnum tíðina hefur þetta ljós komið en yfirleitt farið í næstu vélarræsingu.
Í gær var ég hins vegar að koma að norðan og búinn að keyra c.a. 300 km þegar þetta ljós kviknar og það neitar að fara.
IMG_2764.jpeg
IMG_2764.jpeg (36.93 KiB) Skoðað 5216 sinnum
IMG_2768.jpeg
IMG_2768.jpeg (13.07 KiB) Skoðað 5216 sinnum

Þetta byrjaði á því að „Engine Management Warning Light“ byrjar að blikka og bíllinn missir afl en við það svissa ég af og á aftur og þá hverfur ljósið og bíllinn fær aflið aftur en stuttu síðar kemur útblástursljósið upp.
IMG_2767.jpeg
IMG_2767.jpeg (16.96 KiB) Skoðað 5216 sinnum

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 11:04
af gunni91
Já þú segir það...

Ég geri ráð fyrir að þú keyrir um á diesel bifreið og væri ódýrast að byrja á því að plugga bílnum í tölvu!

Er bíllinn erfiður í gang hjá þér? spurning hvort það þurfi að kanna glóðakertin. Hvað er bíllinn ekinn hjá þér?

En eins og ég segi... ómögulegt að koma með einhverja lausn bara sísvona :happy

Ég er með tölvu heima sem gæti mögulega lesið af bílnum fyrir þig.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 11:32
af GuðjónR
gunni91 skrifaði:Já þú segir það...

Ég geri ráð fyrir að þú keyrir um á diesel bifreið og væri ódýrast að byrja á því að plugga bílnum í tölvu!
Er bíllinn erfiður í gang hjá þér? spurning hvort það þurfi að kanna glóðakertin. Hvað er bíllinn ekinn hjá þér?
En eins og ég segi... ómögulegt að koma með einhverja lausn bara sísvona :happy
Ég er með tölvu heima sem gæti mögulega lesið af bílnum fyrir þig.


Takk fyrir boðið, en já bíllinn er diesel, 2013 árgerð Octavia Mk2 og keyrður 187k km.
Hann er alltaf fínn í gang en undanfarnar vikur þá hefur mér stundum fundist eins og hann missi aðeins afl, þá oft bara í smástund.
Sérstaklega ef vélin er á lágum snúning.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 11:44
af kjartanbj
Eftir fá ár eiga svona vandamál í dísil bílum eftir að margfaldast, menn verða komnir með nokkura ára gamla dísil bíla sem verða rosalega dýrir í viðhaldi, sérstaklega þegar DPF filterar fara skemmast, mun verða fólki mjög dýrt enda kosta svoleiðis kútar hundruði þúsunda. Einnig munu eigendur bíla sem er búið að fjarlægja mengunarvarnar búnað úr lenda í vandræðum þegar farið verður að fylgjast með því að meira marki, fyrirtæki hér nú þegar sem auglýsa sig í þeim business aðallega í amerískum pickup bílum, ég myndi ekki vilja kaupa bíl sem er búið að eiga svoleiðis við og fá svo skellinn þegar farið verður í að kanna þessi mál

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 11:46
af gunni91
GuðjónR skrifaði:
gunni91 skrifaði:Já þú segir það...

Ég geri ráð fyrir að þú keyrir um á diesel bifreið og væri ódýrast að byrja á því að plugga bílnum í tölvu!
Er bíllinn erfiður í gang hjá þér? spurning hvort það þurfi að kanna glóðakertin. Hvað er bíllinn ekinn hjá þér?
En eins og ég segi... ómögulegt að koma með einhverja lausn bara sísvona :happy
Ég er með tölvu heima sem gæti mögulega lesið af bílnum fyrir þig.


Takk fyrir boðið, en já bíllinn er diesel, 2013 árgerð Octavia Mk2 og keyrður 187k km.
Hann er alltaf fínn í gang en undanfarnar vikur þá hefur mér stundum fundist eins og hann missi aðeins afl, þá oft bara í smástund.
Sérstaklega ef vélin er á lágum snúning.


Ég ætla að skjóta á glow-plugin ef það hefur aldrei verið skipt um það en betra að lesa af kagganum fyrst!

Screenshot 2021-06-08 114531.jpg
Screenshot 2021-06-08 114531.jpg (48.39 KiB) Skoðað 5150 sinnum

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 11:59
af KaldiBoi
Sælir!

Svo er það, fer hann í safe mode? Ef svo er getur þetta verið stíflaður hvarfakútur og þú þurfir bara að taka á honum upp Ártúnsbrekkuna eða Breiðholtsbrautina. Þú mátt velja, enn það hefur stundum virkað fyrir bíla sem eru keyrðir "varlega" ef svo má koma að orði.

Myndi kíkja til Geira í Technik, hann veit ansi margt svo eru þeir hjá Bílson ágætir en ég myndi kíkja á Geira fyrst.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:05
af ColdIce
Glóðakertin fá mitt gisk

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:09
af GuðjónR
gunni91 skrifaði:Ég ætla að skjóta á glow-plugin ef það hefur aldrei verið skipt um það en betra að lesa af kagganum fyrst!

Já það er gott gisk, gæti trúað því að glóðarkertin séu farin að slappast = minni karftur og meiri mengun.

KaldiBoi skrifaði:Svo er það, fer hann í safe mode? Ef svo er getur þetta verið stíflaður hvarfakútur og þú þurfir bara að taka á honum upp Ártúnsbrekkuna eða Breiðholtsbrautina. Þú mátt velja, enn það hefur stundum virkað fyrir bíla sem eru keyrðir "varlega" ef svo má koma að orði

Já ég viðurkenni að ég er ekki mikið að þenja hann, sakar svo sem ekki að prófa smá þenslu, en það er örðuvísi aðvörunarljós fyrir hvarfakútinn:
IMG_2773.jpeg
IMG_2773.jpeg (21.58 KiB) Skoðað 5094 sinnum

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:10
af andribolla
Sæll
Algengara vandamál í Disel bílum en DPF er EGR ventilinn
í skodanum byrjar glóða ljósið að koma og fara þegar EGR er að byrja að stíflast

í raunini er eina leiðin til þess að komast að því hvað er að, er að tengja bílinn við bilanagreini ;)

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:15
af Frussi
Hafa glóðakertin einhver áhrif í akstri? Bara notuð fyrir start, er það ekki?

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:24
af Haraldur25
Geggjaður titill. Gjörsamlega lokkaðir mig inná þráðinn. :happy

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:28
af arons4
Glóðarkertin eru bara til að ræsa bílinn kaldann, hafa engin áhrif á vélaraflið, en eins og andri segir er EGR ventill oft vandamál á diesel bílum, ventillin einmitt opnast ekki nema á löngum akstri og þá er ekki ólíklegt að tölvan hafi tekið eftir því að hann opnaðist ekki þegar hún reyndi að opna hann eftir 300km.

Á sérstaklega við ef bíllinn er mestmegnis notaður í innanbæjarakstri.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:46
af Klemmi
Reglur skrifaði:1a. Bréf skulu hafa lýsandi titla, vandaða uppsetningu og ekki má pósta sama bréfi í marga flokka eða í mörgum eintökum.


Notandi aðvaraður, vinsamlegast hagaðu þér.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 12:52
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:
Reglur skrifaði:1a. Bréf skulu hafa lýsandi titla, vandaða uppsetningu og ekki má pósta sama bréfi í marga flokka eða í mörgum eintökum.


Notandi aðvaraður, vinsamlegast hagaðu þér.

Þetta er lýsandi titill, ekki mér að kenna að þú kunnir ekki arabísku.
Stendur hvergi í reglunum að það eigi að skrifa á íslensku :sleezyjoe

p.s. hér er þýðing fyrir þig klemmi minn.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 13:08
af audiophile
Er ekki bara kominn tími á nýjan garm. Það er eitthvað nýtt í hverjum mánuði hjá þér :megasmile

Annars er eins og hefur komið fram EGR ventill líklegur.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 13:15
af CendenZ
Það er nú alltaf meira vesenið á þessum skrjóð þínum.... er ekki bara málið að fá sér loksins tójódu

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 13:21
af GuðjónR
audiophile skrifaði:Er ekki bara kominn tími á nýjan garm. Það er eitthvað nýtt í hverjum mánuði hjá þér :megasmile

Annars er eins og hefur komið fram EGR ventill líklegur.

Jú það er kominn tími á það, verður líklega bara meira downhill héðan í frá.

CendenZ skrifaði:Það er nú alltaf meira vesenið á þessum skrjóð þínum.... er ekki bara málið að fá sér loksins tójódu

Veit ekki með tójóda, finnst það álíka spennandi og ofsöltuð lauksúpa :evillaugh

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 13:30
af Klemmi
Hjondææææ!

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 13:51
af mjolkurdreytill
Ef þetta er EGR ventillinn þá er hægt að kaupa íblöndunarefni útí dísel sem eiga að hjálpa til við að hreinsa ventilinn. Ekki 100% lausn en skemmir ekkert að því er ég best veit.

Man ekki nákvæmlega hvað ég notaði en minnir að það hafi verið þetta.
https://wurth.is/efnavara/hreinsiefni/b ... ir-diesel/

Maður hellir þessu á fullan tank. Ljósið hætti að loga eftir tvo tanka hjá mér. Kom svo aftur síðar reyndar.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 14:05
af viddi
Þetta hefur ekkert með glóðarkertin að gera, myndi byrja á því að rífa EGR ventilinn úr og hreinsa hann, skoða allar vacum slöngur í kringum túrbínu, gæti verið leki einhverstaðar í vacum kerfinu eða charge pípunum, svo keyra hann á háum snúning (3 - 4k) í ca hálftíma til að hreinsa úr DPF.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 14:07
af CendenZ
Ef þú ætlar að skítmixa þetta sjálfur er best að taka ventilinn og kaupa gammalldags throttlebody hreinsi.. það er til haugur af youtube vídjóum um egr hreinsun. Menn hafa bara í einhverjum tilfellum bleytt þetta allt upp í EGR hreinsiefnum /carb cleaner/throttlebody spray og skrúfað lítin bursta á borvel og hreinsað þetta út á skotstundu. Svo tekuru góðan rúnt á sport stillingunni eða einum gír lægra ef þú ert á beinskiptum upp í staðarskála

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 15:22
af ZiRiuS
Þetta gæti verið spliffið. Oftast er nóg að taka það út með gengjunni og banka aðeins í það með donkinu.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 17:21
af joker
Ég giska eins og fleiri hér á EGR ventilinn, nokkuð algeng bilun á dieselvélum sem eru farnar að eldast.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 08. Jún 2021 23:39
af agust1337
Ef þú átt ekki tölvu, þá get ég lesið úr honum fyrir þig ef þú ert á höfuðborgarsvæðinu

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 10. Jún 2021 00:56
af Fumbler
ef þú notar úkranísku á þennan titil þá færðu "I have a lot to do" :D