Síða 2 af 2

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 10. Jún 2021 09:36
af littli-Jake
Menn geta giskað og giskað hvað vandamálið er en það verður aldrei annað en gisk. Það þarf að byrja á því að kóðalesa bílinn og vinna út frá því.
Ég gæti hitt þig á esjumelum og lesið hann ef þú vilt.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Lau 12. Jún 2021 17:20
af GuðjónR
Takk fyrir góð boð um aflestur, en þetta ljós hvarf daginn eftir að að kviknaði og hefur ekki komið aftur.
Ég gaf druslunni vel inn við rætur Bakkaselsbrekku norðan megin og bornkeyrði upp með full lestaðann bíl.
Hitin á vélarolíunni náði 118°C þegar upp var komið, stuttu síðar poppaði ljósið upp.
En nú er það farið og því engin ástæða til að kaupa tojóda :megasmile

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Þri 15. Jún 2021 14:23
af Halli25
GuðjónR skrifaði:Takk fyrir góð boð um aflestur, en þetta ljós hvarf daginn eftir að að kviknaði og hefur ekki komið aftur.
Ég gaf druslunni vel inn við rætur Bakkaselsbrekku norðan megin og bornkeyrði upp með full lestaðann bíl.
Hitin á vélarolíunni náði 118°C þegar upp var komið, stuttu síðar poppaði ljósið upp.
En nú er það farið og því engin ástæða til að kaupa tojóda :megasmile

Svipað og gerðist á Sorento hjá mér, fékk það ráð að keyra yfir 80 km/klst. í x tíma svo hann gæti hreinsað út sót, of mikið af innanbæjarkeyrslu = sótsöfnun

Re: Útblástursljósið logar og bíllinn missir afl

Sent: Fim 16. Des 2021 10:25
af GuðjónR
Skýringin líklega komin, þessi lífefni sem blönduð eru í dísel olíuna eru að stífla allar síur og spíssa. Meiriháttar vandamál og kostaður sérstaklega fyrir stóru trukkana. Það kom fram í RUV fréttum áðan að N1 hefur ákveðið að hætta innflutningi á þessari drullu frá Noregi.

Re: Útblástursljósið logar og bíllinn missir afl

Sent: Fim 16. Des 2021 11:28
af GullMoli
GuðjónR skrifaði:Skýringin líklega komin, þessi lífefni sem blönduð eru í dísel olíuna eru að stífla allar síur og spíssa. Meiriháttar vandamál og kostaður sérstaklega fyrir stóru trukkana. Það kom fram í RUV fréttum áðan að N1 hefur ákveðið að hætta innflutningi á þessari drullu frá Noregi.


Finnst ólíklegt að þetta tengist, þetta sull hefur aðalega áhrif á hráolíusíuna og svo spíssana ef sían stendur sig ekki/og eða einfaldlega fyllist. Hef heyrt hryllingssögur af (aðalega dýrum) dísel bílum þar sem miklar skemmdir verða þar sem ekki hefur verið hugað að hráolíusíunni.

Ekki kostnaðarsamt að skipta um hana miðað við margt annað og borgar sig að gera nokkuð reglulega, sérstaklega eftir þessar upplýsingar undanfarið.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 16. Des 2021 13:45
af Peacock12
Var komin með þetta svar áður en þessi síuumræða fór af stað:

Það fyrsta sem ég myndi gera er að skipta um/hreinsa olíusíuna. Þetta er sía á leiðinni úr tanknum í vélina. Getur pottþétt fundið youtube myndband sem sýnir hvernig er gert. Það er alveg ótrúlega oft sem drulla þar truflar ganginn.
Veit ekki hvernig er í Skoda en í mörgum bílum þarf að handdæla inn á kerfið eftir að olíuleiðin er opnuð (eins og gerist ef sían er tekin út). Þetta er yfirleitt smá takki eða sveif rétt hjá síunni sem þú pumpar upp og niður í 2-3 mínútur.

Ef þú ert mikið í langkeyrslu myndi ég alveg láta Toyota í friði (ekki að þeir séu slæmir – er sjálfur á Toyota) og halda mig við disel Skoda þar til hann hrynur endanlega. Svaka duglegir og sparneytnir í langkeyrslu. Ég myndi samt skipta um olíusíuna árlega, enda hvorki mikið mál né peningur.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 16. Des 2021 14:40
af playman
GuðjónR skrifaði:Titill segir allt :sleezyjoe

Snip...

Varstu búinn að googla ضوء العادم مضاء بشكل مستمر ?

Re: Útblástursljósið logar og bíllinn missir afl

Sent: Fim 16. Des 2021 15:22
af GuðjónR
GullMoli skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Skýringin líklega komin, þessi lífefni sem blönduð eru í dísel olíuna eru að stífla allar síur og spíssa. Meiriháttar vandamál og kostaður sérstaklega fyrir stóru trukkana. Það kom fram í RUV fréttum áðan að N1 hefur ákveðið að hætta innflutningi á þessari drullu frá Noregi.


Finnst ólíklegt að þetta tengist, þetta sull hefur aðalega áhrif á hráolíusíuna og svo spíssana ef sían stendur sig ekki/og eða einfaldlega fyllist. Hef heyrt hryllingssögur af (aðalega dýrum) dísel bílum þar sem miklar skemmdir verða þar sem ekki hefur verið hugað að hráolíusíunni.

Ekki kostnaðarsamt að skipta um hana miðað við margt annað og borgar sig að gera nokkuð reglulega, sérstaklega eftir þessar upplýsingar undanfarið.


Ég fór áðan og keypti hráolíusíu, ætla að skipta um hana fljótlega. Er búinn að skipta um tvisvar sinnum áður, meðaltalsakstur á síu er því 65k km.

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 16. Des 2021 16:11
af GuðjónR
Peacock12 skrifaði:Var komin með þetta svar áður en þessi síuumræða fór af stað:

Það fyrsta sem ég myndi gera er að skipta um/hreinsa olíusíuna. Þetta er sía á leiðinni úr tanknum í vélina. Getur pottþétt fundið youtube myndband sem sýnir hvernig er gert. Það er alveg ótrúlega oft sem drulla þar truflar ganginn.
Veit ekki hvernig er í Skoda en í mörgum bílum þarf að handdæla inn á kerfið eftir að olíuleiðin er opnuð (eins og gerist ef sían er tekin út). Þetta er yfirleitt smá takki eða sveif rétt hjá síunni sem þú pumpar upp og niður í 2-3 mínútur.

Ef þú ert mikið í langkeyrslu myndi ég alveg láta Toyota í friði (ekki að þeir séu slæmir – er sjálfur á Toyota) og halda mig við disel Skoda þar til hann hrynur endanlega. Svaka duglegir og sparneytnir í langkeyrslu. Ég myndi samt skipta um olíusíuna árlega, enda hvorki mikið mál né peningur.

Ég geri þetta þannig að ég tek síuna úr, hreinsa svo hráolíuna úr síuhúsinu með rafmangsdælu, set svo nýja síu í síuhúsið og helli díselolíu ofan í, það fara kannski 200-300ml af olíu í húsið með síunni, þegar hún er orðin gegnsósa þá set ég lokið á og svissa af og á svona 20 sinnum en það dugar til að ná upp þrýsingi, set svo bílinn í gang og wollah! ...

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 16. Des 2021 16:13
af GuðjónR
playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Titill segir allt :sleezyjoe

Snip...

Varstu búinn að googla ضوء العادم مضاء بشكل مستمر ?

Sorry for the triple post ...

Re: ضوء العادم مضاء بشكل مستمر

Sent: Fim 16. Des 2021 16:44
af pattzi
basic skodi hahahaha