Síða 1 af 1

Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 10:26
af worghal
jæja, það er að koma að olíuskipti á báðum bílunum og mig langar að athuga hvert þið farið með ykkar bíla.

Undanfarin ár hef ég farið til Smur 54 í hafnarfirði og verið mjög ánægður með þá en mig langar að athuga hvort það séu einhverjir ódýrari staðir :sleezyjoe



Mynd

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 10:50
af Klemmi
Hef farið til Kvikkfix í Hafnarfirði síðustu 10 árin eða svo, hagstæðir, snöggir og góðir.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 10:53
af brain
Get tekið undir með Klemma
Kvikkfix í Hafn.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 12:31
af oliuntitled
Hef í mörg ár farið alltaf á Klöpp, old style verkstæði með topp þjónustu og er ekki að fara að setja þig á hausinn :)

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 14:09
af GuðjónR
Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 14:58
af Zethic
oliuntitled skrifaði:Hef í mörg ár farið alltaf á Klöpp, old style verkstæði með topp þjónustu og er ekki að fara að setja þig á hausinn :)


Ekki nema þú rennir í olíu :klessa

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 15:25
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Best að kaupa bara enga þjónustu, gera allt sjálfur.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 16:07
af Frussi
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Endurunna olíu?

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 17:11
af Pandemic
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Það er enginn að nota endurunna olíu eða verri olíusíur en oem. Þessar olíusíur af þeirri smurstöð sem ég þekki eru þær sömu og bílaframleiðendur klína merkinu sínu á.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 18:25
af worghal
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.

ég er svo latur að ég nenni ekki að standa í þessu sjálfur, teljum það heppni að ég nenni alfarið að þrífa bílana sjálfur :lol:

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 14. Júl 2021 22:56
af Minuz1
Hjá umboðinu.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 15. Júl 2021 12:31
af GuðjónR
Pandemic skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Það er enginn að nota endurunna olíu eða verri olíusíur en oem. Þessar olíusíur af þeirri smurstöð sem ég þekki eru þær sömu og bílaframleiðendur klína merkinu sínu á.


Endurunnin olía er orðið á götunni, sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Varðandi KvikkFix þá fór ég alltaf þangað á sínum tíma eða þangað til ég fékk Skódann og þeir settu vitlausa olíu á hann, þ.e. ekki langtímaolíu eftir staðlinum VW 504.00, 507.00 en það sá ég á reikningnum eftir á.
Ég fór því til þeirra aftur og þeir töppuðu af og settu rétta olíu á (að þeirra sögn) en skiptu ekki um olíusíu en allt að hálfur líter af olíu getur orðið eftir í síunni og húsinu.

Þetta varð til þess að ég ákvað að gera þetta sjálfur, keypti mér dælu til að tappa af og Castrol EDGE 5W-30 olíu og Mahle olíusíu, ég tappaði olíunni frá KvikkFix af eftir tæpa 5000 km og olíusían var öll morkin og viðbjóðsleg, ég setti fingurinn á pappann þá varð hann að drullu. Mahle síurnar eru þéttar og góðar þegar ég tek þær úr á 15000 km fresti. Himin og haf þar á milli. Olían kostar um 6000 kr. í Cosco og sían kostar á milli 1000 og 1500 kr. hjá Reki ehf.

KvikkFix eru ódýrastir ef það er eitthvað sem menn leita að, en með það eins og svo margt annað þú færð það sem þú borgar fyrir.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 15. Júl 2021 19:54
af Pandemic
Smurstöðin Fosshálsi, getur heyrt í þeim. Þeir eru að nota Mahle, Wix, Mann-hummel og eitthvað original líka.
Þeir eru með olíur frá BP, Mobil 1, Texaco, Elf og Liqui Moly(Wurth í dag)
Allt frekar solid merki í síum og olíum.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 15. Júl 2021 20:43
af DabbiGj
Smurstöðin garðabæ við hliðiná Hagkaupum

Snillingar með gæðaolíur og þjónustu langt umfram alla aðra.

Ég fer með frankenstein jeppann minn þangað og þeir sinna honum ótrúlega vel

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fös 16. Júl 2021 00:06
af Danni V8
GuðjónR skrifaði:Endurunnin olía er orðið á götunni, sel það ekki dýrara en ég keypti það.


Ég veit ekki hvaða götum þú ert á, en hafandi verið djúpt sokkinn í viðgerðar og viðhaldsbransanum í að slaga í tvo áratugi þá hef ég aldrei heyrt þetta áður, það er að segja þegar kemur að smurolíum.

Oftast þegar talað er um endurunna olíu er átt við gamla djúpsteikingarolíu sem er unnin þannig að hún gangi upp á gömlum dísel bílum, en það er eitthvað sem ég mæli sterklega á móti á nýlegum bílum hinsvegar.

En þegar kemur að olíuskiptum eru þetta góðir punktir til að fara eftir:

  • Passa að smurolían stenst umbeðinn staðal.
  • Kaupa OEM olíusíu eða frá sama framleiðanda og OEM (þær eru ekki dýrar OEM)
  • Ekki einungis horfa á kílómetra, ef þú nærð tímanum langt á undan kílómetrunum, smyrja samt
  • Helminga millibilið bæði kílómetra og tíma ef bíllinn er aðallega ekinn stuttar vegalengdir þar sem hann nær aldrei að hitna vel (<20km per ferð)
  • Bónus ef þú ert á Hybrid: Nota bensínvélina líka! Það er alltof algengt að fólk kaupi hybrid bíla og ætlast til að þeir séu rafmagnsbílar með ljósavél

Til að svara spurningu OP líka, þá mæli ég sterklega með því að þú haldir áfram að versla við Smur54 í Hfj, ef þú vilt ekki fara til umboðsaðila.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Mið 19. Apr 2023 20:08
af jonsig
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Að fara með bílinn á smurstöð geri ég ekki aftur.

Þegar fíflin kunna ekki að setja síuna rétt í. Af fjórum festingum var ein laus, klárlega farið ósíað loft inná vélina.
Mynd

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 00:09
af agust1337
Ef bíll er enn í ábyrgð þá að sjálfsögðu á viðurkenndu verkstæði sem gerir líka olíuskipti, td bílson fyrir vw og skoda.
En ef ekki myndi ég nú gera það bara sjálfur, tekur enga stund og maður fræðir sig helling, ofast.
En ef þú vilt það ekki þá tek ég undir KvikkFix

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 00:20
af Mossi__
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Tjah með fullri en..

.. miðað við fjöldan af bílavesenisþráðum frá þér veit ég ekki alveg hvort þú sérst rétti maðurinn til að koma með þessa staðhæfingu.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 00:21
af Mossi__
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Best að kaupa bara enga þjónustu, gera allt sjálfur.


Þurfum jú að kæla þetta hagkerfi :D

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 06:27
af Minuz1
Mossi__ skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Tjah með fullri en..

.. miðað við fjöldan af bílavesenisþráðum frá þér veit ég ekki alveg hvort þú sérst rétti maðurinn til að koma með þessa staðhæfingu.


Úfffffffff, fast skotið hér :lol:

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 08:37
af jonsig
Mossi__ skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Tjah með fullri en..

.. miðað við fjöldan af bílavesenisþráðum frá þér veit ég ekki alveg hvort þú sérst rétti maðurinn til að koma með þessa staðhæfingu.


Þegar smurstöðvarnar í dag eru fullar af high school kids, þá gerir maður þetta sjálfur. Að skipta um olíu snýst um að vanda sig, það þarf enga þekkingu nema fara á youtube til að sjá hvernig á að losa olíusíuna og boltann á olíupönnunni... í versta falli læra að endursetja oil service reminder í mælaborðinu.

SÉRSTAKLEGA þegar maður er rukkaður um 26þkr fyrir að skemma vélina hjá manni og stytta endinguna á sótsíunni sem kostar 290þ.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 09:36
af GuðjónR
Mossi__ skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Best að gera þetta sjálfur, þá ertu ekki að fá endurunna olíu og olíusíur gerðar úr klósettpappír.


Tjah með fullri en..

.. miðað við fjöldan af bílavesenisþráðum frá þér veit ég ekki alveg hvort þú sérst rétti maðurinn til að koma með þessa staðhæfingu.

hahaha góður!!
Þið lendið alveg í allskonar líka, talið bara minna um það :)

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 12:54
af Tbot
Guðjón, held að þú eigir það skuldlaust að vera á toppnum hérna með bílavesen, þ.e. hvaða bilanir koma upp hjá þér og þínum.

Þannig að ég er ekki viss um að rafmagnsbíll sé það rétta fyrir þig. Gætir trúlega náð því að fá raflost í slíkum bíl.

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 13:42
af GuðjónR
Tbot skrifaði:Guðjón, held að þú eigir það skuldlaust að vera á toppnum hérna með bílavesen, þ.e. hvaða bilanir koma upp hjá þér og þínum.

Þannig að ég er ekki viss um að rafmagnsbíll sé það rétta fyrir þig. Gætir trúlega náð því að fá raflost í slíkum bíl.

Já, líklega er það rétt hjá þér! :sleezyjoe

Re: Hvar er best að fara í olíuskipti?

Sent: Fim 20. Apr 2023 14:35
af Maggibmovie
Allavega bsod