Virkja þrýstingsmæla TPMS

Allar tengt bílum og hjólum

Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 62
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf steinihjukki » Þri 27. Júl 2021 20:28

Veit einhver hver virkjar tpms sensora í hjólbörðum og hvað það hugsanlega kostar. Borgar sig kannski að panta tpms tool af ali á 12000-25000 og gera þetta sjálfur?




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 971
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 38
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf Hlynzi » Mið 28. Júl 2021 21:41

Hef bara heyrt af fólki sem vil af-virkja þetta leiðinda dót, ég hef reyndar ekki séð hver virkjar svona skynjara eða hvernig það er gert, eru ekki upplýsingar um það á netinu, endurræsing er nær alltaf möguleg úr mælaborði í það minnsta.


Hlynur


slapi
Gúrú
Póstar: 552
Skráði sig: Fös 19. Jún 2009 21:47
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf slapi » Fim 29. Júl 2021 08:31

Hvað meinarðu með að virkja?

Ef að skynjararnir eru fyrir bílinn þá virkjast þeir sjálfkrafa og byrja bara að virka



Skjámynd

razrosk
Ofur-Nörd
Póstar: 274
Skráði sig: Þri 15. Sep 2009 20:16
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf razrosk » Fim 29. Júl 2021 18:14

þetta ætti að vera automatískt pairing, allavega á nýlegum bílum.


CompTIA A+/Network+/Security+/PDI+


Maksx
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Þri 23. Júl 2019 13:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf Maksx » Fös 30. Júl 2021 01:13

Varst þú að setja inn nýja skynjara eða hvað? Og það er rangt með reyndar flest sem skrifað var ofar.

Í mælaborði er hægt að reseta ljósin í oftast ef ekki alltaf í bílum sem eru ekki með skynjara í hjólbörðum. Ljósin kemur ef hjól snýst hægar (Þegar minnkar loftþrysting) og það er lesið af ABS skynjara og með takkanum er þú stilla tölvuna að þessi snúningshraði er rétt og ljós fér.

Í hjólbörðum sem eru með skynjarum, eiga þau alltaf að vera stiltir á hvern bíll þegar þau eru settar í. Það er gert með TMPS tæki sem þú nefndir. Í sumum bílum er þú að stilla skynjara sjálfan, tengist honum þráðlaust með tækinu og stillir hann á bíll sem þú ert á s.s. árgerð, tegund, undirtegund og so on.
Í sumum bílum þarf þú að að stilla vélartölvu með oftast sama tæki nema þar lesir þú fyrst af skynjurum (tegund, mhz og það) og tengist svo í OBD og setur sú value inn í tölvuna í bílnum.
Allt sama gildir um ef þú villt breytta hvað loftþrýsting Á að vera í bílnum, minnkar eða hækkar það sem skynjari er stillt á.

Það er allt gert á verkstæðum, almennum og dekkja, hjá N1 kostar það 1500kr á skynjara minnir mig.

En hvað er af hjá þér? Til hvers þarf þú að virkja þau? Voru nýjar settar inn? Og ef svo af hverju voru þau ekki tengir við bíll?
Síðast breytt af Maksx á Fös 30. Júl 2021 01:15, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf Danni V8 » Fös 30. Júl 2021 02:01

Það er frekar mikilvægt að vita hvernig bíl þú átt við.

Í sumum tilfellum er sér tölva fyrir þetta og það þarf tól til að samstilla skynjarana við hana.
Í öðrum tilfellum eru skynjarar sem tala við ABS/spólvarnartölvu og finna stöðuna sína sjálfir gegnum reset function í on board tölvunni.
Í enn öðrum tilfellum er þetta algjörlega ABS based og það eru engir skynjarar. Þá nær spólvarnartölvan að skynja ef annað hjólið á öðrum hvorum ásnum er að snúast hraðar en hitt á sama ás, meðan bíllinn keyrir í beina línu, og kemur með meldingu um að athuga loftþrýsting. Þetta er líka endurstilli í mælaborði eða með reset takka.

Ef þú ert að gera þetta mjög oft er sennilega best að kaupa þær græjur sem þarf, ef ekki þá bara fara á dekkjaverkstæði eða jafnvel umboðið.
Fer auðvita eftir aldri og gerð bílsins.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x


Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 62
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Virkja þrýstingsmæla TPMS

Pósturaf steinihjukki » Þri 03. Ágú 2021 20:47

Sælir netverjar og takk fyrir svörin.
Ég ek á Renault Kadjar 1,6 diesel 4x4 2017 árgerð. Bíllinn er með TPMS skynjara í felgum sem senda MCU tölvunni boð um loftþrýsting, hita osfrv. Fékk vetrardekk á öðrum felgum undir bílinn í fyrra. Loftþrýsti ljósið logaði að sjálfsögðu stöðugt í mælaborðinu þar sem tölvan fær ekkert merki og ekki hægt (eða ekki tókst) að slökkva það með OBD2 tæki. Pantaði frá aliexpress 4 skynjara sem eiga að vera forritaðir fyrir Kadjar en það þarf að virkja (activate) þá svo tölvan nái að skynja kvikindin. Eða svo segir í leiðbeiningum með skynjurunum. Nú er spurningin þarf ég að fara á verkstæði og activera eða relearna (afsakið íslenskuna) skynjarana í hvert sinn sem ég skipti um dekk? Og er þá betra að eiga tæki s.s. Autel 408 eða dýrara 508 eða sambærilegt til að gera þetta sjálfur? Og svara nú :)