Síða 2 af 4

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 13. Okt 2021 19:20
af Perks
ath þennan https://www.facebook.com/SVDekk hann er oft með ódýr dekk,

Costco er með ódýr dekk mæli með að skoða það líka.
. Finnst 200þ doldið vel í lagt, ca 100-120 + umfelgun er nær lagi.

Nagladekk eru óþörf nema ef þú ert að keyra á klaka finnst mér. Það kemur alveg fyrir en 98% tímans þarf þess ekki.

kaupa að utan var camskill eða 123dekk.is minnir mig. en þá er auðvitað bið.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 13. Okt 2021 22:07
af kjartanbj
á mínum tæpum 21 ári sem ég hef haft bílpróf hef ég keyrt 1 vetur á nöglum aðeins því það fylgdu bíl sem ég keypti nagladekk, dytti ekki til hugar að kaupa mér nagladekk sama hvar á landinu ég byggi , hef búið út á landi fyrir austan og keyrði aldrei á nöglum þar og aldrei neitt vesen, snýst bara um að keyra eftir aðstæðum , þetta á sérstaklega við hér á suðurhorninu þar sem flest öll nagladekk eru löngu orðin hálf naglalaus eða búið að brotna flestir naglarnir á því að keyra á auðum blautum vegi, ég kaupi bara góð almennileg vetrardekk, ekki heilsársdekk því það eru bara dekk sem eru sæmileg að vetri og sæmileg að sumri en ekkert meira en það. Dekk í dag eru ekkert eins og þau voru hér áður fyrr og flestir sem kaupa sér nagladekk í dag eru bara gera það af gömlum vana og fölsku öryggi

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 13. Okt 2021 22:49
af pattzi
Hefuru skoðað dekkjahollin.is ogeða dekk1.is????


Ég annars alltaf með nagladekk á aðalbílnum enda keyrður 100km plús á dag á þjóðvegum landsins ;)


En hef oftast keypt bara það sem er í boði hverju sinni og á góðu verði tými ekki að kaupa það dýrasta allavega enda á ég svo marga bíla haha

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 14. Okt 2021 06:12
af B0b4F3tt
Hef sjálfur ekki verið á nöglum örugglega hátt í 10 ár. Keyri daglega á milli Keflavíkur og Reykjavíkur og ekkert vandamál þar. Reykjanesbrautin er held ég eini vegur utan þéttbýlis sem Vegagerðin reynir að halda þurrum(snjólausum) allan ársins hring og því ætti að vera lítil þörf á nagladekkjum þar.

Varðandi dekkin sjálf þá hef ég mikið notað Michelin Alpine og Michelin Alpine Sport og þau hafa komið vel út. Þar sem að Costco áttu þau ekki til í minni stærð þá hef ég verið að panta þau að utan frá http://camskill.co.uk og eru þau komin hingað á nokkrum dögum

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 14. Okt 2021 07:22
af Mossi__
Fennimar002 skrifaði:Miðað við hvernig flestir svöruðu, þá held ég að það sé skást að kaupa vetrardekk þar sem ég keyri ekkert út á land um veturinn. Verð bara á suðurnesjunum og höfuðborgarsvæðinu.

Hvernig vetrardekkjum mynduði mæla með? Harðskelja dekk? (Veit ekkert hvað harðskelja dekk eru)


Sem Suðurnesjar- bæjarrotta sjálfur, þá get ég nú aðeins dregið úr fyrra álitinu.

Eg er á nöglum og verð á nöglum.

En hinsvegar þau ár sem ég hef búið hér hef ég aðeins svona.. fimm sinnum verið feginn að vera á nöglum.

En ég prófaði að akipta yfir á heilsársdekk á gamla bílnum. Mér fannst þau eyðast það hratt upp að ég var ekki alveg nógu sáttur með þau. (Það voru Yokohama dekk)

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 14. Okt 2021 18:15
af Henjo
Nagladekk er alls ekki alltaf best því oft er fólk ekki alveg að spá í hvernig dekkinn sjálf eru, fólk heyrir bara naglar og heldur að það sé allt í einu komið með bestu dekkinn sem hægt er að fá. útaf nöglunum.

Dæmi, hef tvisvar verið með nagladekk, bæði skipti fylgdu þau með.

Fyrra skiptið voru dekkinn mjög heil, nóg eftir að munstrinu og naglar útum allt. Hafði mjög lítið vit á bílum og dekkjum og hélt að þetta væri það allra besta. Nema þessi dekk, þrátt fyrir naglana. Voru algjör rusl. Nýju hágæða heilsársdekkinn sem ég fékk fyrir veturinn eftir sönnuðu sig margafalt betur. Og var það sérstaklega augljóst þar sem bíllinn var afturhjóladrifinn.

Seinna skiptið koma hann á nöglum en það var að koma sumar þannig ég plokkaði naglana úr. Þetta voru semsagt mjög ódýr vetrar nagladekk, sem sönnuðu sig sem hálfgerða dauðagildru. Þrátt fyrir að vera frekar nýlega þá voru þau ekkert sérstök um veturinn og ef það var blautt, þá rann bíllinn þvílikt til. Semsagt ekkert grip í bleytu. Smá beygja í hringtorgi og smá bleyta og maður er ekki langt frá að snúa bílnum. En og aftur, Heilsárs michelinn dekkinn úr Costco sönnuðu sig margfalt betur við allar aðstæður (en þá var ég að bera saman ónegld vetradekk meðan við heilsársdekk, naglarnir gera auðvitað ekkert gagn nema í hálku)

Getur fengið þér nagladekk, en ekki halda að naglarnir séu nóg. Dekkin sjálf þurfa líka að vera góð.

Líka nagladekk+sumardekk hefur mér alltaf fundist frekar vitlaust, það var núna bara í september byrjað að snjóa og frosna hér í Reykjavík. Myndi frekar treysta nagladekk fyrir vetur og heilsársdekk fyrir sumarið. Frekar leiðilegt að vera í veseni því bíllinn er á sumerdekkjum, en hey. Maður getur þó sagt "ég á sko geggjuð nagladekk heima sko"

líka ef þú ert bara í bænum eða kringum hann þá eru nagladekk algjör óþarfi og hreinlega bara algjör ógeð. Það er verið að tala um að 70 manns deyji hér a hverju ári útaf loftmengum. Sem má að hluta til rekja til notkunar á nagladekkjum.

Líka, bannað að væla að göturnar eru lélegar ef þú notar nagladekk.

*hægt er að sjá á youtube að á pure klaka er hemlunarvegalend á nelgdum dekkjum allt að helmingi lægri.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 10:40
af Moldvarpan
Djöfull er maður sáttur að vera á góðum negldum dekkjum núna :hjarta :hjarta

Snjó klaki útum allt.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 14:33
af JReykdal
Moldvarpan skrifaði:Djöfull er maður sáttur að vera á góðum negldum dekkjum núna :hjarta :hjarta

Snjó klaki útum allt.

Ónelgd í fyrsta sinn hér og finn ekki fyrir hálku.

Enda á Subaru :)

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 14:37
af einarhr
JReykdal skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Djöfull er maður sáttur að vera á góðum negldum dekkjum núna :hjarta :hjarta

Snjó klaki útum allt.

Ónelgd í fyrsta sinn hér og finn ekki fyrir hálku.

Enda á Subaru :)


Nákvæmlega, nagladekk eru ofmetin. Ég hef ekki verið á nelgdum eða "nellgdum" eins og þeir segja á Akureyri :guy í yfir 20 ár og ég keyri bæði í uppveitir Árnessýslu og í Borgarfjörðinn reglulega og EKKI á Súbarú

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 14:43
af jericho
Fólk á að hafa val að nota nagladekk, enda geta legið fjölmargar ástæður fyrir slíkri notkun. En í borgum eru þau yfirleitt óþarfi og óumhverfisvæn og því væri hægt að réttlæta að rukka fyrir nagladekkjanotkun innan borgarmarkanna eða ákveðinna svæða innan borgarinnar. Væri til í sjá slíka útfærslu á höfuðborgarsvæðinu.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 15:01
af GullMoli
Þetta snýst að mestu leiti fyrir mig að geta hemlað almennilega, frekar en að komast áfram.

Ég fann þó mjög mikinn mun þegar ég keypti í fyrsta sinn bíl með AWD (einmitt Subaru) á að skjóta sér inn í umferð af aðrei þar sem maður þarf að bíða eftir tækifæri, eða hringtorg með mikilli umferð. Game-changer í snjó og hálku.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 18:01
af bigggan
Það má ekki gleyma heldur að "Heilsársdekk" er dekk sem er notað i suður evrópu sem fæ snjór kanski 1 dag yfir vetrartíminn, og eru léleg bæði sem sumardekk og vetrardekk.
Almennileg vetrar dekk án naglar heitir "Nordic" sem i sumum aðstæðum er jafn gott ef ekki betra en nagladekk. ókosturinn er að þau endast skemur vegna þess þau seu mýkri, og má alls ekki keyra þau um sumrin.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 18:21
af Henjo
bigggan skrifaði:Það má ekki gleyma heldur að "Heilsársdekk" er dekk sem er notað i suður evrópu sem fæ snjór kanski 1 dag yfir vetrartíminn, og eru léleg bæði sem sumardekk og vetrardekk.
Almennileg vetrar dekk án naglar heitir "Nordic" sem i sumum aðstæðum er jafn gott ef ekki betra en nagladekk. ókosturinn er að þau endast skemur vegna þess þau seu mýkri, og má alls ekki keyra þau um sumrin.


Þú talar um eins og öll vetrardekk eru alveg eins og öll heilsársdekk eru eins.

Góð heilsársdekk eru mun betri en léleg vetrardekk.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 18:47
af nidur
Mín persónulega skoðun er að maður megi setja nagladekk undir bílinn á veturna.

Ég myndi ekki vilja keyra yfir heiðar eða mikið út úr bæjum án þess að vera á nöglum.

Það er ýmislegt hægt, fólk kemst alveg upp með að vera á sumardekkjum á veturna innanbæjar, spólandi upp allar smábrekkur og keyrandi löturhægt þegar það kemur smá snjór.

Maður keyrir miðað við aðstæður, ekki bara aðstæður á vegi heldur líka miðað við útbúnað á bíl.
Fyrir mér er þetta mjög einfalt, naglar eru betri útbúnaður í hálku en engir naglar.

Þegar kemur að árekstrum og öryggi farþega er þá ekki stöðvunarlengd mikilvægasti þátturinn?
Miðað við það sem ég hef heyrt þá stytta naglar stöðvunarlengdina um sirka helming í hálku.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 20:53
af bigggan
Henjo skrifaði:
bigggan skrifaði:Það má ekki gleyma heldur að "Heilsársdekk" er dekk sem er notað i suður evrópu sem fæ snjór kanski 1 dag yfir vetrartíminn, og eru léleg bæði sem sumardekk og vetrardekk.
Almennileg vetrar dekk án naglar heitir "Nordic" sem i sumum aðstæðum er jafn gott ef ekki betra en nagladekk. ókosturinn er að þau endast skemur vegna þess þau seu mýkri, og má alls ekki keyra þau um sumrin.


Þú talar um eins og öll vetrardekk eru alveg eins og öll heilsársdekk eru eins.

Góð heilsársdekk eru mun betri en léleg vetrardekk.


Vetradekk eru gerð fyrir hitastig undir 7 gráður, það eru ekki heilsársdekk. það er bara eðlislögmál sem ekki hægt að komast undan, til þess að virka betur á sumrin hafa heilsársdekk harðari dekkjablöndu sem þarf til þess að fá betra grip um sumrinn. ef þau fá mykri blöndu til að gefa þau betri eiginleikar um veturnar, þá eru þau að forna sumareiginleikar.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 20:57
af kjartanbj
nidur skrifaði:Mín persónulega skoðun er að maður megi setja nagladekk undir bílinn á veturna.

Ég myndi ekki vilja keyra yfir heiðar eða mikið út úr bæjum án þess að vera á nöglum.

Það er ýmislegt hægt, fólk kemst alveg upp með að vera á sumardekkjum á veturna innanbæjar, spólandi upp allar smábrekkur og keyrandi löturhægt þegar það kemur smá snjór.

Maður keyrir miðað við aðstæður, ekki bara aðstæður á vegi heldur líka miðað við útbúnað á bíl.
Fyrir mér er þetta mjög einfalt, naglar eru betri útbúnaður í hálku en engir naglar.

Þegar kemur að árekstrum og öryggi farþega er þá ekki stöðvunarlengd mikilvægasti þátturinn?
Miðað við það sem ég hef heyrt þá stytta naglar stöðvunarlengdina um sirka helming í hálku.



það fer rosalega mikið eftir aðstæðum hversu vel naglarnir virka. þeir virka bara betur í einstaka aðstæðum. gera ekkert betra en góð vetrardekk í snjó eða slabbi sem dæmi, og ekkert betra í þunnri ísingu, bara á klaka sem þeir geta gripið í. Síðan eru þeir einfaldlega verri í blautu veðri heldur en ónegld dekk og bremsuvegalengd getur lengst töluvert með nöglum á blautu malbiki. ég amsk hef ekki þurft nagla síðustu 20 ár og ætla ekki að byrja á því núna og hef samt átt heima hér og þar um landið og þurft að ferðast um allskonar heiðar og lítið farna vegi

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 01. Des 2021 22:47
af Henjo
bigggan skrifaði:
Henjo skrifaði:
bigggan skrifaði:Það má ekki gleyma heldur að "Heilsársdekk" er dekk sem er notað i suður evrópu sem fæ snjór kanski 1 dag yfir vetrartíminn, og eru léleg bæði sem sumardekk og vetrardekk.
Almennileg vetrar dekk án naglar heitir "Nordic" sem i sumum aðstæðum er jafn gott ef ekki betra en nagladekk. ókosturinn er að þau endast skemur vegna þess þau seu mýkri, og má alls ekki keyra þau um sumrin.


Þú talar um eins og öll vetrardekk eru alveg eins og öll heilsársdekk eru eins.

Góð heilsársdekk eru mun betri en léleg vetrardekk.


Vetradekk eru gerð fyrir hitastig undir 7 gráður, það eru ekki heilsársdekk. það er bara eðlislögmál sem ekki hægt að komast undan, til þess að virka betur á sumrin hafa heilsársdekk harðari dekkjablöndu sem þarf til þess að fá betra grip um sumrinn. ef þau fá mykri blöndu til að gefa þau betri eiginleikar um veturnar, þá eru þau að forna sumareiginleikar.


Það er rétt, enda þegar það er ekki frost þá eru vetradekk stórhættuleg. Veit ekki hversu oft á veturnar þegar það er hlýtt (sem er oftast núna á íslandi) sem ég hef runnið til í bleytu í t.d. hringtorgum og svona því ég er á vetradekkjum. Veit líka ekki hversu oft ég er að heyra um slys því fólk hefur ekki komist í það að setja vetradekkinn undir og er ennþá á sumardekkjum (oft þá þegar það er óvenjukalt í september og okt og hálka myndast)

Árið er ekki lengur 1995. Góð heilsársdekk eru solid. Nema auðvitað ef þú ert að keyra útá landi mikið þá er það skiljanlegt að fólk sé nöglum.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 02. Des 2021 10:01
af Kull
Ég held nú að menn ættu að kynna sér kannanir á vetrar/nagla dekkjum áður en þeir fara að halda fram einhverju sem þeir hafa heyrt eða finnst sem staðreyndum.
Skoðið bara þessar kannanir til dæmis, https://issuu.com/fib.is/docs/vetrardekkjak_nnun_2019 og https://issuu.com/fib.is/docs/vetrardekkjapr_fun_2020

Sérstaklega gaman að 2019 könnuninni þar sem þeir taka eitt vetrardekk án nagla með í nagladekkjaprófunina og kemur örugglega mörgum á óvart hveru vel það stendur sig.

Þar sem nagladekk skína er á blautum ís, annars eru þau yfirleitt verri kostur en góð ónegld dekk.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 02. Des 2021 11:02
af Moldvarpan
Kull skrifaði:Ég held nú að menn ættu að kynna sér kannanir á vetrar/nagla dekkjum áður en þeir fara að halda fram einhverju sem þeir hafa heyrt eða finnst sem staðreyndum.
Skoðið bara þessar kannanir til dæmis, https://issuu.com/fib.is/docs/vetrardekkjak_nnun_2019 og https://issuu.com/fib.is/docs/vetrardekkjapr_fun_2020

Sérstaklega gaman að 2019 könnuninni þar sem þeir taka eitt vetrardekk án nagla með í nagladekkjaprófunina og kemur örugglega mörgum á óvart hveru vel það stendur sig.

Þar sem nagladekk skína er á blautum ís, annars eru þau yfirleitt verri kostur en góð ónegld dekk.


S.s. continental og michelin eru betri en öll ónelgd dekk, þar sem ónelgda dekkið var það besta í sínum flokki.

Mjög sáttur á nöglunum :hjarta

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 02. Des 2021 11:18
af JReykdal
Nokian wr suv 4 á mínum.

Er mjög sáttur miðað við það sem komið er.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Fim 02. Des 2021 11:20
af Moldvarpan
Holý crap, póstaði óvart staðin fyrir edit.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Þri 15. Mar 2022 23:06
af daremo
Nú hefur þetta verið mjög snjó og klakaþungur vetur í bænum.
Þið sem voruð rosalega mikið á móti nagladekkjum í þessum þræði - hvað finnst ykkur? Hvernig hefur þessi vetur verið?

Mér finnst þetta sýna að nagladekkinn eiga ennþá erindi og allt tal um boð og bönn er algjör vitleysa.

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Þri 15. Mar 2022 23:56
af einarhr
daremo skrifaði:Nú hefur þetta verið mjög snjó og klakaþungur vetur í bænum.
Þið sem voruð rosalega mikið á móti nagladekkjum í þessum þræði - hvað finnst ykkur? Hvernig hefur þessi vetur verið?

Mér finnst þetta sýna að nagladekkinn eiga ennþá erindi og allt tal um boð og bönn er algjör vitleysa.


Ég hef ekki keyrt á nagladekkjum í meira en 20 ár og naglar hefðu ekki skipt mig neinu máli þennan veturinn. Ég komst ekki til vinnu einusinni og var seinn einusinni og það var vegna ófærðar þar sem nagladekk hefðu ekki skipt nokkru máli. Ég bý í Hraunbæ Reykjavík en ég myndi auðvita skoða nagla ef ég byggi á landsbyggðinni og væri mikið á ferðinni utan þéttbýliskjarnana.

skal viðurkenna að það var hált seinnipartinn í dag en þá er bara að flýta sér aðeins minna :lol:

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 16. Mar 2022 01:14
af Henjo
daremo skrifaði:Nú hefur þetta verið mjög snjó og klakaþungur vetur í bænum.
Þið sem voruð rosalega mikið á móti nagladekkjum í þessum þræði - hvað finnst ykkur? Hvernig hefur þessi vetur verið?

Mér finnst þetta sýna að nagladekkinn eiga ennþá erindi og allt tal um boð og bönn er algjör vitleysa.


Ég er á smábíll af minnstu gerð á heilsársdekkjum, lenti aldrei í vandræðum, festi bíllinn aldrei, hugsaði aldrei með mér að ég þyrfti "betri" dekk.

Veit síðan ekki hvað nagladekk koma snjó við?

Re: Vetrar/heilsársdekk eða nagladekk?

Sent: Mið 16. Mar 2022 09:43
af stefhauk
Ég keypti mér NOKIAN WR D4 heilsársdekk fyrir þennan vetur en annars yfirleitt alltaf verið á nöglum ekki lennt í neinum vandræðum nema þegar snjóþyngsti dagurinn var núna seinast þá festi ég mig í innkeyrslunni heima bý uppá vatnsenda í kóp og búið að vera ansi snjóþungt þar í vetur en Skodinn er seigur.