Síða 2 af 2

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Mið 17. Maí 2023 08:55
af jonsig
techseven skrifaði:
Henjo skrifaði:Er núna á bíll keyrður 180þús, ennþá með upprunalega gorma og dempara allan hringinn. En þó eitthv óhljóð byrjað að koma frá framdempurum. Þegar ég læt setja nýja í hann geri ég ráð fyrir að þeir dugi mér aðra 180þús km.

Passaðu bara að það sé original varahlutur, ef þú vilt alvöru endingu.

Ef hann kaupir monroe ,KYB eða bilstein ætti hann ekki að þurfa stressa sig á endingu. Dempararnir eru semi ónýtir kringum 100þ venjulega, jafnvel fyrr útaf þessum umferðarbumbum útum allt. Maður virðist ekki fá endurskoðun nema dempararnir séu gjörsamlega farnir.
Mæli með fastparts.is þeir tala bæði Íslensku og Pólsku :) og eru rosalega almennilegir.

Mynd

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Mið 17. Maí 2023 12:15
af chaplin
Viktor skrifaði:Kem ekki nálægt ruslinu sem AB selur. Ef þú kaupir bremsuklossa af þeim eru góðar líkur á að þú þurfir að hlusta á ískur í hvert skipti sem þú bremsar.

Ah, það er ss. ástæðan fyrir því að ég hef heyrt ískur sl. ár síðan ég skipti um klossa og diska að framan. :face

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Mið 17. Maí 2023 15:30
af Henjo
jonsig skrifaði:
techseven skrifaði:
Henjo skrifaði:Er núna á bíll keyrður 180þús, ennþá með upprunalega gorma og dempara allan hringinn. En þó eitthv óhljóð byrjað að koma frá framdempurum. Þegar ég læt setja nýja í hann geri ég ráð fyrir að þeir dugi mér aðra 180þús km.

Passaðu bara að það sé original varahlutur, ef þú vilt alvöru endingu.

Ef hann kaupir monroe ,KYB eða bilstein ætti hann ekki að þurfa stressa sig á endingu. Dempararnir eru semi ónýtir kringum 100þ venjulega, jafnvel fyrr útaf þessum umferðarbumbum útum allt. Maður virðist ekki fá endurskoðun nema dempararnir séu gjörsamlega farnir.
Mæli með fastparts.is þeir tala bæði Íslensku og Pólsku :) og eru rosalega almennilegir.

Mynd

Það hjálpar líka að keyra ekki bíla eins og þú sért að keppa í rallý, það er merkilegt hvað stór hluti ökumanna átta sig ekki á að 1500kg farartækið þeirra er ekki hannað til að fara á 30km/h yfir hraðahindranir og það að keyra á 60km/h á flestum malarvegum er ekki góð hugmynd.

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Mið 17. Maí 2023 19:38
af jonsig
Henjo skrifaði:

Samt margir okkar Íslendingar þurfa fara vegi ekkert ólíkum þessum á myndinni fyrir ofan (vegurinn á vatnsnesinu) það voru brotnir gormar, hlífar og drasl á víð og dreif þarna af nýlegum túristabílum. Þótt maður hafi ekið þennan veg tvisvar á 10-15km hraða í vinnuerindum þá eru ónýt fjöðrunin á vinnubílnum svo ég fékk nýjan.

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Lau 03. Jún 2023 22:59
af jonsig
Update fyrir GuðjónR.

Keypti eh magnum technology og maxgear dempara og hennti í súkku kvikindið í dag. Heldar kostnaður 34þ. Með fóðringum á aftur öxul. Og tók 4klst fyrir fjöðrun og rúmar 2.klst að rífa öxulinn og skipta um fóðringar fyrir hobby bifvélavirkjann með bara tjakk í bílskúrnum.

Er ennþá að bíða eftir KYB á fínni bílinn.

Hvaða sort var þetta hjá þér að gera uppá bak?

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Sun 04. Jún 2023 00:02
af pattzi
Versla mikið við autoparts og bara fínt sko....

Keypt þarna dempara og gorma ,bremsur og allskonar í eldri Toyotur og aldrei vesen.... liðið mörg ár og ekkert skemmst

líka mjög góð verð ,en þetta aftermarket dót virðist allt voðalega svipað allavega sem ég hef keypt, en ískrar auðvitað minna í bosch bremsum en svo getur það bara verið illa sett í bremsurnar eða einhvað þannig....ég hef einhvertima ekki nennt að skipta um færslubolta bara hitaði þá og liðkaði til og setti klossanna og diskanna í og alltaf ískrað í þeim bremsum en fær skoðun svo skiptir mig engu máli.... :) en þetta er svosem ekki alltaf í akstri fer eftir hvaða aðrir bílar eru til á heimilinu en ég á 4 toyotur sem eru 30 ára + ein þeirra var í mikilli keyrslu þangað til fyrir 2-3 árum en svona 5 ár síðan skipti um diskanna og klossanna þar og allt frá autoparts og eða stillingu en stilling á bara aldrei til í þetta gamla dót....en mér finnst á skoda octaviu alltaf vera brotna gormar er þetta ekki annars octavia? annars virðist þetta fá skoðun oft þó þetta sé handónýtt..... ég var með brotin gorm í toyotu núna um daginn og fékk skoðun ,skipti um þetta og það komu bara brot strax þegar ég fór að losa :face

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Fös 14. Júl 2023 22:03
af jonsig
Veit ekki hvað er vandamálið hjá fólki með aftermarket. Gera bara smá brand research.

fastparts.is er gjörsamlega málið og þjónustan, mountin aftaná toyotuna kostuðu 1/8 af "tilboðinu" frá toyota umboðinu. Samt Febi Bilstein partar.

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Lau 15. Júl 2023 16:56
af rapport
Það er vel hægt að fá aftermarket performance parta sem eru betri en orginal, sérstaklega í fjöðrun og bremsur.

Þegar ég hef keypt af rockauto.com þá hef ég oft valið betri parta til að fá sem fæstar sendingar og fékk t.d. frábæra dempara sett með gormum ódýrar en bara dempara frá aðila hér heima, öll ísetning auðveldari fyrir vikið.

Re: Hvað telst eðlileg ending á dempurum og gormum?

Sent: Sun 16. Júl 2023 10:55
af jonsig
rapport skrifaði:Það er vel hægt að fá aftermarket performance parta sem eru betri en orginal, sérstaklega í fjöðrun og bremsur.

Þegar ég hef keypt af rockauto.com þá hef ég oft valið betri parta til að fá sem fæstar sendingar og fékk t.d. frábæra dempara sett með gormum ódýrar en bara dempara frá aðila hér heima, öll ísetning auðveldari fyrir vikið.

Úff prófaði að setja inn eins og ég ætlaði að kaupa tvö quick struts. "Bara" 190USD shipping :crying
fastparts gefa manni valmöguleikann að taka þetta með sjófrakt..

Hef oft reynt að spara mér shipping cost með að velja myus , en það er farið að kosta augun úr shipping þar eftir covid og virðist ekkert lagast.

Það myndi gera 77þús.

Gegnum fastparts
Var þetta kringum 50þ, en með veseninu að þurfa að velja hvern einasta íhlut í fjöðrunina.
Hefði verið gaman að sjá verðið ef þeir hefðu getað pantað quick strut í mínu tilviki.