Síða 1 af 1

Toyota Yaris Hybrid 2012

Sent: Mið 24. Apr 2024 10:17
af falcon1
Ég á Toyota Yaris Hybrid árgerð 2012 og hann er komin í næstum 190 þúsund kílómetra. Hvað get ég reiknað með að hann endist mér mikið lengur? Hann flýgur í gegnum skoðanir og hefur þurft lítið viðhald annað en þetta reglulega.
Ég keyri frekar lítið á ári.

Re: Toyota Yaris Hybrid 2012

Sent: Mið 24. Apr 2024 10:41
af rostungurinn77
Það er tímakeðja í bílnum sem er væntanlega gefin út fyrir að endast 300 þúsund km.

Ef þú hefur alltaf gætt þess að smurolían sé í góðum málum þá er sú tala líklegast lágmarkið en þú veist, 7-9-13.

Þú dettur í 300k í þann 9.desember 2030 miðað við 15.833 km á ári að meðaltali.

Re: Toyota Yaris Hybrid 2012

Sent: Mið 24. Apr 2024 11:00
af joker
Ef hann er ekki mkið ryðgaður endist hann næstu árin

Re: Toyota Yaris Hybrid 2012

Sent: Mið 24. Apr 2024 14:28
af Mossi__
Ég myndi klárlega gefa honum þónokkur ár í viðbót ef þú passar beisikk viðhaldið.

Það eru enn fjölmargir upprunalegir Yarisar (1999 módel) í umferð.

Eina hættan í raun er ryð og/eða að hybrid systemið klikki, en aftur, held að það séu alveg þónokkur tími í það.