Bletta þak

Athvarf handlagna heimilisnördsins

Höfundur
blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1750
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 139
Staða: Ótengdur

Bletta þak

Pósturaf blitz » Fös 21. Ágú 2020 08:35

Þakið hjá mér var málað fyrir um fjórum árum og ég tók eftir nokkrum ryðblettum í kringum einstaka nagla (kannski 10).

Geri ráð fyrir því að skipta þakinu út eftir 5-10 ár og ætlaði að pússa þetta upp, grunna og mála.

Þekkir einhver hér hvort ég geti keypt ryðgrunn í spreybrúsa til að nota í þetta verkefni og jafnvel málningu sem hentar í spreybrúsa eða er einfaldast að nota bara oxýðmenju og bletta svo með þol?
Síðast breytt af blitz á Fös 21. Ágú 2020 08:35, breytt samtals 1 sinni.


PS4


Kristján Gerhard
Gúrú
Póstar: 522
Skráði sig: Mið 17. Maí 2006 20:27
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Bletta þak

Pósturaf Kristján Gerhard » Fös 21. Ágú 2020 08:56

Grunnaðu og málaðu með sömu efnum og voru notuð þegar þakið var málað fyrir fjórum árum. Ef það voru alkýðbundin efni sem voru notuð skaltu halda þig við þau. Þú gætir tæknilega séð notað hvaða ryðvarnargrunn sem er það er erfitt að leggja brúsamálningu í einhverjum almennilegum þykktum, ég myndi halda mig við að gluða þessu á með pennsli.