Síða 1 af 1

Oscilloscope

Sent: Lau 30. Apr 2022 21:47
af Black

Mig vantar Oscilloscope til að stilla hjá mér videomagnara
Má ekki vera einhvað drasl þar sem ég er að vinna með mjög dýran búnað.
Hverju mælið þið með :)

Re: Oscilloscope

Sent: Lau 30. Apr 2022 22:26
af Njall_L
Stóra spurningin er kannski hvaða bandvídd, upplausn og sampling-rate þig vantar til að sinna því sem þig langar að gera. Stilling á video-magnara hljómar eins og eitthvað sem gæti krafist hárrar bandvíddar en ætla þó ekki að fullyrða um það.

Ég hef sjálfur notað Rigol DZ1054Z í nokkur ár heimavið og verið mjög sáttur, sérstaklega miðað við verðið:
https://www.batterfly.com/shop/en/prófa ... ol-ds1054z

Upp á síðkastið hefur mig þó langað í scope með hærra sampling rate, hraðara interface, logic analyzer og betri FFT stuðning. Þar sem 50MHz bandbreiddin á 1054Z hefur aldrei verið hindrun hjá mér finnst mér líklegt að ég endi í Rohde & Schwars RTB2004:
https://www.batterfly.com/shop/en/prófa ... rz-rtb2004

Hvar sem þú endar þá get ég þó vel mælt með að kaupa frá Batterfly sem ég linkaði að ofan, hröð og fín sending og öllu vel pakkað.

Í þessum málum er PC tengd scope það eina sem ég get ekki mælt með. Ég hef ennþá ekki prufað PC scope sem er nægilega hratt að uppfæra sig að mínu mati til að vera nothæft í eitthvað annað en leikaraskap.

Re: Oscilloscope

Sent: Lau 30. Apr 2022 22:52
af Sinnumtveir
Black skrifaði:
Mig vantar Oscilloscope til að stilla hjá mér videomagnara
Má ekki vera einhvað drasl þar sem ég er að vinna með mjög dýran búnað.
Hverju mælið þið með :)

Íslenskulöggan hér: Sveiflusjá er það sem enskumælandi kalla oscilloscope.

Re: Oscilloscope

Sent: Sun 01. Maí 2022 17:31
af jonsig
Black skrifaði:
Mig vantar Oscilloscope til að stilla hjá mér videomagnara
Má ekki vera einhvað drasl þar sem ég er að vinna með mjög dýran búnað.
Hverju mælið þið með :)

Er með Rohde & Schwarz í vinnunni, og þær eru góðar uppá allt drift. Þar að segja þær vanstillast ekkert svo með tímanum.
Hinsvegar er ég picoscope- all the way. Hugbúnaðurinn með þeim er top-notch og endalaust verið að uppfæra hann. Síðan sprengdi ég eina þegar það var orðið nokkuð áliðið á nóttina, og fékk 380VDC í gegnum hana og stútaði gjörsamlega. Setti mig í samband við Pico sem svöruðu eftir 45min og sögðu mér að þeir hafa fast viðgerðargjald þarna í UK og fljótir að þessu fyrir ekki svo hátt gjald, en í mínu tilfelli var hún hálf fuðruð upp og þá buðu þeir mér nýja með fullri ábyrgð og sendingu heim á 50% verði.

Re: Oscilloscope

Sent: Mán 02. Maí 2022 06:35
af axyne
Við erum með nokkra Keysight í vinnunni hjá mér. DSOX3034A og DSOX1204G og man ekki síðustu týpuna.
Keysight eru nokkuð algengir hérna í DK, margir versla hér https://www.altoo.dk

Rohde & Schwarz eins og Jonsig minnist á er líka gott merki en ég fíla viðmótið betur hjá keysight.

Rigol er svolítið hobby dót, en er gott bang for the buck. Á DS1054Z heima, getur firmware hackað hann í 100Mhz
Picoscope er líka svolítið hobby dót líka að mínu mati en bráðsniðugir samt. Þarft að tengja við tölvu til að nota.

Re: Oscilloscope

Sent: Mán 02. Maí 2022 08:11
af jonsig
axyne skrifaði:Rigol er svolítið hobby dót, en er gott bang for the buck. Á DS1054Z heima, getur firmware hackað hann í 100Mhz
Picoscope er líka svolítið hobby dót líka að mínu mati en bráðsniðugir samt. Þarft að tengja við tölvu til að nota.

:catgotmyballs

Re: Oscilloscope

Sent: Mán 02. Maí 2022 14:45
af axyne
jonsig skrifaði:
axyne skrifaði:Rigol er svolítið hobby dót, en er gott bang for the buck. Á DS1054Z heima, getur firmware hackað hann í 100Mhz
Picoscope er líka svolítið hobby dót líka að mínu mati en bráðsniðugir samt. Þarft að tengja við tölvu til að nota.

:catgotmyballs

haha, ég sé reyndar núna þeir eru komnir með flottari græjur en síðast þegar ég sá þetta. Aldrei notað sjálfur.
Hef séð marga embedded forritara nota picoscope MSO. Síðan á vinur minn á PicoVNA og er rosalega ánægður með hann.

Re: Oscilloscope

Sent: Mán 02. Maí 2022 15:32
af Black
Takk fyrir góð svör!
Kannski er nóg fyrir mig að vera með picoscope.
En núna ætla ég aðeins að skoða yfir þetta, Annars kann ég lítið á Oscilloscope annað en að
Stilla búnaðinn sem ég er að vinna með.

Set inn eitt viðhengi hérna með leiðbeiningum fyrir forvitna :happy

Re: Oscilloscope

Sent: Þri 03. Maí 2022 12:04
af Póstkassi
Hef ekkert mikið að bæta í þessa umræðu annað en að ég er að læra rafeindavirkjun upp í Tækniskóla og við erum með 20ára+ sveiflusjár og ég öfunda ykkur alla að eiga svona flottar græjur heima hjá ykkur :hjarta :cry:

Re: Oscilloscope

Sent: Þri 03. Maí 2022 12:19
af jonsig
Póstkassi skrifaði:Hef ekkert mikið að bæta í þessa umræðu annað en að ég er að læra rafeindavirkjun upp í Tækniskóla og við erum með 20ára+ sveiflusjár og ég öfunda ykkur alla að eiga svona flottar græjur heima hjá ykkur :hjarta :cry:

Þetta snýst oft meira um að kunna nota þessar græjur.

Re: Oscilloscope

Sent: Þri 03. Maí 2022 14:10

Alveg klárlega, en upp í skóla er ekki vel séð um þessar sveiflusjár, ekki búið að calibrate-a í langan tíma. Einnig er mikið noise í öllum mælingum þar sem að það er flúrlýsing í salnum sem mælingarnar eru gerðar. Þannig að það leiðir til þess að allar mælingar fyrir neðan 100mV eru ekki nákvæmar á skástu scope-unum og á verstu scope-unum eru þær bara alls ekki marktækar.

Re: Oscilloscope

Sent: Þri 03. Maí 2022 16:40
af jonsig
Meir líklega bara í innstungunni.

Smíðar bara differential probe í sveinsprófinu.. ekkert væl bara redda hlutunum. Stilla jafnvel scope'in.

Mundu að kennararnir í tskoli eru að njósna fyrir vinnustaði útí bæ. Og fá djúsí störf í boði í þessum geira.

Re: Oscilloscope

Sent: Þri 03. Maí 2022 19:17
af axyne
Póstkassi skrifaði:Hef ekkert mikið að bæta í þessa umræðu annað en að ég er að læra rafeindavirkjun upp í Tækniskóla og við erum með 20ára+ sveiflusjár og ég öfunda ykkur alla að eiga svona flottar græjur heima hjá ykkur :hjarta :cry:

17 ár síðan ég útskrifaðist úr Rafeindavirkjanum og sumar sveiflusjánar voru orðnar gamlar þá :sleezyjoe
En það var einhver endurnýjun í gangi stuttu eftir ég útskrifaðist minnir mig og gátu nemendur keypt þessar gömlu.
Ég hef alltaf séð eftir að hafa ekki keypt eina klassíska analog. ](*,)

Re: Oscilloscope

Sent: Þri 03. Maí 2022 23:21
af Snorrlax
axyne skrifaði:
Póstkassi skrifaði:Hef ekkert mikið að bæta í þessa umræðu annað en að ég er að læra rafeindavirkjun upp í Tækniskóla og við erum með 20ára+ sveiflusjár og ég öfunda ykkur alla að eiga svona flottar græjur heima hjá ykkur :hjarta :cry:

17 ár síðan ég útskrifaðist úr Rafeindavirkjanum og sumar sveiflusjánar voru orðnar gamlar þá :sleezyjoe
En það var einhver endurnýjun í gangi stuttu eftir ég útskrifaðist minnir mig og gátu nemendur keypt þessar gömlu.
Ég hef alltaf séð eftir að hafa ekki keypt eina klassíska analog. ](*,)

Var einn af þeim heppnu sem keypti gamla sveiflusjá hjá þeim. :D
Nota hana ennþá í dag. notaði hana í þessari viku til að reyna að gera við shotgun hljóðnema :Þ
Seinast þegar ég vissi og notaði sveiflusjáirnar í Tækniskólanum. Þá voru þær bara mjög meðalsveiflusjáir. Meira en nógu gott fyrir flest sem maður gerir og mikið meira en nóg fyrir hljóðbilanagreiningu amk :)

En að viðfangsefninu. Flestar sveiflusjáir ættu að koma þér upp í 5MHz eins og ég sé nefnt í myndinni hjá þér. (reyndar talað um meira en 5Mhz, but idk)
Það er frekar erfitt að eyðileggja eitthvað með ódýrum sveiflusjám.

Basically, fyrir þetta tilfelli. Held ég að þú þurfir ekkert svaka hi-end sveiflusjá IMO, sýnist meira að segja á myndinni að hann sé að nota analog sveiflusjá :). Picoscope ætti að duga.

Re: Oscilloscope

Sent: Fim 05. Maí 2022 13:20
af mort
ég á 4 rása 100Mhz scope frá Siglent.Dugar fínt fyrir það sem ég er að gera, frábært viðmót - kostaði um $400. Þessi kínasscope eru bara orðin mjög góð og nothæf ef þú þarft ekki að mæla eitthvað og gefa skýrslu með reference.