Síða 1 af 1

Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 18:07
af netkaffi
Ryð

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 18:31
af Ghost
Ef þú ætlar að láta gera þetta fyrir þig á verkstæði þá líklega meira en virði bílsins er. Auðvitað ódýrara hjá einhverjum sem er að vinna svart en alls ekki gefins fyrir vinnuna sem fer í þetta.

Það þarf að skera burt allt ryð sem er þarna til að gera þetta almennilega og móta og sjóða nýja plötu í staðinn. Svo líta þessi rör vinstra meginn ekkert allt of vel út heldur.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 18:34
af urban
Ég hefði meiri áhyggjur af bremsurörunum en botninum satt best að segja.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 18:39
af netkaffi
Takk. Þetta er þessi https://www.facebook.com/groups/1375502 ... 1618446037 ég veit satt best að segja ekkert um bíla. En þetta er kannski ekkert sem maður ætti að keyra á? Ég hefði verið til að eignast svona jeppa lol

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 18:45
af netkaffi
Ég þarf svo sem ekki að keyra meira en innan sveitar sem er með góða færð yfirleitt og það hægt. En vil auðvitað ekki kaupa köttinn í sekknum

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 21:05
af Zorglub
Þótt þetta sé innansveitar þá þarftu samt að koma honum í gegnum skoðun væntanlega. Lét skipta um sílsa á gamalli Vitöru í fyrra, það var 80.000 og þetta er talsvert meira.
Með svona bíla er þetta bara reiknisdæmi hvað þú ert að kaupa mörg ár af líftíma í viðbót miðað við að ekkert annað bili. Að setja 300.000 á ári í við hald á verðlausum bíl getur verið hagstæðara heldur en afföllin á dýrari bíl.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Lau 11. Jún 2022 23:12
af codemasterbleep
Láttu þennan bíl bara alveg eiga sig.

Þetta verður einn endalaus eltingaleikur við sundirtærða íhluti.

Botn + bremsuslöngur + hver veit

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Sun 12. Jún 2022 02:18
af Henjo
codemasterbleep skrifaði:Láttu þennan bíl bara alveg eiga sig.

Þetta verður einn endalaus eltingaleikur við sundirtærða íhluti.

Botn + bremsuslöngur + hver veit

+plús þegar það er byrjað að pota kemur fullt meira í ljós. Þetta er bara það sem sést.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Sun 12. Jún 2022 11:26
af Viktor
Myndi gera ráð fyrir allavega 300.000 kr.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Sun 12. Jún 2022 12:21
af axyne
Ég lét snitta ný bremsurör á afturbremsurnar á bíl sem ég átti fyrir 12 árum. það var 60þús með öllu.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Sun 12. Jún 2022 12:57
af Ghost
Frekar glórulaust að kaupa þennan bíl á 80k og eyða 500k í að koma honum í stand. Frekar að finna dýrari bíl í betra standi.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Þri 14. Jún 2022 00:20
af netkaffi
Ghost skrifaði:Frekar glórulaust að kaupa þennan bíl á 80k og eyða 500k í að koma honum í stand. Frekar að finna dýrari bíl í betra standi.
lol. takk. en er svona bíll í lagi sem sagt ekki 580k virði?
svo er náttúrulega biðin eftir viðgerðinni, það útilokar þetta í raun fyrir mig þar sem ég er með enga aðstöðu sjálfur og get ekki beðið

Zorglub skrifaði:300.000 á ári
300 þúsund á ári. sæll

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Þri 14. Jún 2022 00:32
af Henjo
netkaffi skrifaði:

Allur peningur sem þú eyðir í svona bíll, hvort sem það er að gera við botninn eða annað er ekki að fara skila sér mikið í endursölu. Þú ert ennþá með gamla druslu. Svona "verkefni" er endalaus peningarsvartholl.

plús, það er ekki endilega gott ef það er búið að skipta um t.d. sílsa eða botn í bílum. Oftar en ekki er það illa gert eða hreinlega vitlaust gert þannig styrkleiki ökutækis er mun verr en á að vera.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Þri 14. Jún 2022 02:33
af Ghost
netkaffi skrifaði:
Ghost skrifaði:Frekar glórulaust að kaupa þennan bíl á 80k og eyða 500k í að koma honum í stand. Frekar að finna dýrari bíl í betra standi.
lol. takk. en er svona bíll í lagi sem sagt ekki 580k virði?

Nei. 250.000 kr max virði fyrir þetta eintak í lagi.

Re: Hvað kostar að laga svona botn á bíl?

Sent: Þri 21. Jún 2022 03:47
af netkaffi
Takk strákar.