Síða 1 af 1

Ljós í skáp

Sent: Lau 17. Sep 2022 15:34
af AdlerCl
Hæ gott fólk,

Ég er að vona að einhver hér kannist við þetta tengi sem er í ljós í skáp sem við eignuðumst nýlega, og vonandi hvar ég get fundið stykkið sem þarf til að koma því í gang.

Kv.
Örn
IMG_20220917_141521.jpg
IMG_20220917_141521.jpg (2.38 MiB) Skoðað 4796 sinnum

Re: Ljós í skáp

Sent: Lau 17. Sep 2022 18:46
af ColdIce
Klippiru það ekki bara burt og tengir inná spenni?

Re: Ljós í skáp

Sent: Lau 17. Sep 2022 19:27
af AdlerCl
ColdIce skrifaði:Klippiru það ekki bara burt og tengir inná spenni?


Það gæti endað sem besta lausnin, en ég er einnig forvitinn og ætti réttilega að heita Georg.

Re: Ljós í skáp

Sent: Sun 18. Sep 2022 20:42
af dori
Þetta lítur út fyrir að vera einhverskonar Molex tengi.

Re: Ljós í skáp

Sent: Sun 18. Sep 2022 21:19
af hagur
Skoðaðu perurnar, væntanlega eru þetta perur sem þurfa spennubreyti, þ.e fara ekki beint í 220V. Svo þarftu bara að redda þér spennubreyti með réttri útgangsspennu, og svo bara klippirðu þetta tengi af og splæsir við vírana úr spennubreytinum.

Re: Ljós í skáp

Sent: Þri 20. Sep 2022 10:01
af AdlerCl
Ég þakka gott ráð og geri þetta. :megasmile

Re: Ljós í skáp

Sent: Mið 23. Nóv 2022 21:04
af Hlynzi
Ég myndi athuga hvaða tegund þetta er (toga niður perurnar) og skoða spennu og wött/amper sem þær þurfa. Það kemur svona tengi á ýmsum lömpum og littlum spot ljósum (til að skipta út fyrir halogen ljós) frá t.d. Osram.

Eins og hagur nefnir er þetta tengi eftir spenni (svo ekki tengja þetta beint í 230V...færð kannski ágætis birtu í micro sekúndu)