Jæja þá er leitin á enda og er ég sáttur með útkomuna.
Fyrirtækið sem réði mig tók mig í 3 starfsviðtöl og í því þriðja var ég ráðinn.
Starfsviðtal nr 1: Hitti ég aðal gæjan og gékk það vel. Það var mikið spurt út í tæknilegu hliðina á því starfi sem ég sótti um sem mér fannst mjög þæginlegt enda vissi ég hvað ég var að fara út í og kunni það
![Wink ;)](./images/smilies/icon_wink.gif)
Einnig var farið út í persónulegu hliðina þó ekki óþæginlega. Viðtalið var 30 mín.
Starfsviðtal nr 2: Þá voru þeir tveir sem tóku mig í viðtal sá fyrrnefndi og sá sem er yfir þeirri deild sem ég var ráðin í s.s. yfirmaður minn í dag og var það sá sem tók að mestu það viðtal enda hans deild og var það mjög svipað því fyrra og jafnvel farið í aðeins meira enda tók það um korteri lengur eða um 45 mínútur
Starfsviðtal nr 3: Ráðning og vissi maður óbeint að um ráðningu var að ræða enda allt komið á hreint. Þá var samið um ráðningu til reynslu, laun ofl. í lokin var farið um vinnustaðinn og mér sýnt svona það helsta.
Ráðleggingar mínar eru að hafa tæknilegu atriðin á hreinu og hafa áhuga á því sem þú ert að sækja um, kynna þér fyrirtækið og þá sem taka viðtalið og ekki verra að vita hvaða gráður eru skráðar á heimasíðunni um starfsfólk til að vita hvar þú stendur. Í mínu tilfelli átti ég og á í góðu samskiptum við fyrri vinnustað/vinnuveitanda og held ég að það hafi hjálpað allavega var haft samband við fyrri vinnuveitanda þannig að það má búast við því. Hafa punkta hjá sér og vera snyrtilegur til fara.
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
ps ekki spyrja mig um hvar ég var ráðinn því ég tel það ekki viðeigandi.