Enn á ný leita ég á náðir rafvirkjanna hérna (eða a.m.k þeirra sem kunna meira en ég í þessum efnum).
Ég er að skipta út venjulegum rofa fyrir dimmer. Ég hef marg oft tengt allskonar dimmera og það hefur aldrei verið neitt vandamál, hingað til hafa þeir verið bara með tvo innganga eins og venjulegir rofar og no brainer að tengja þá.
Núna er ég semsagt með JUNG dimmer og hann virðist vera með fjóra innganga, þó svo að a.m.k tveir þeirra séu nú báðir merktir með L. Þetta er eitthvað að flækjast fyrir mér, kannski best að sýna bara mynd:
http://haukurhaf.net/IMG_2787.jpg
Leiðbeiningarnar:
http://haukurhaf.net/IMG_2788.jpg
Ég er semsagt bara með tvo víra sem fóru áður í rofann. Ef ég tengi þessa víra saman, þá kviknar á loftljósinu (eðlilega). Ég tel mig vera búinn að fara eftir leiðbeiningunum, þ.e annan vírinn í L og hinn í N en þetta virkar bara ekki neitt.
Einhverjar hugmyndir? Er reyndar búinn að prófa eitt og annað, spurning hvort ég sé bara búinn að skemma dimmerinn
![Whistle :-"](./images/smilies/eusa_whistle.gif)