hakkarin skrifaði:Smakkaði eina dós en þurfti því miður að hella henni niður að því að hann var næstum volgur (lét dósina í frystinn í 30 min, en það var víst ekki nóg
![Sad :(](./images/smilies/icon_sad.gif)
). En af því sem að ég smakkaði að þá held ég að þetta sé ekki minn tebolli því miður
![Sad :(](./images/smilies/icon_sad.gif)
Fýla ekki svona sæta bjóra.
Í staðinn lét ég einn thule í frystinn en kældi hann síðan aðeins of lengi þannig að það birtist smá klakki í honum þannig að ekki var hægt að drekka hann heldur. 2 bjórar farnir í vaskinn...
Hættu þessum æfingun þínum með frystinn. Þú setur ekki nautalund í örbylgjuofn og ætlast til að fá almennilega steik. Smelltu bara nokkrum bjórum í ísskápinn, svo seturu bara inn jafn óðum og þú tekur út úr skápnum.
Og mundu þumalputtaregluna:
Kaldari bjór = minna bragð, meira spíra bragð
Heitari bjór = meira bragð, minna spíra bragð
Ágætis viðmið er að hafa bjórinn jafn kaldann (°C) og alkahólhlutfall bjórsins er (%).
common sense is not so common.