Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3330
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 623
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 15. Feb 2026 10:41

Fasteignaþráðurinn – Ráð, gögn og umræða

Markmið:
Safna saman gögnum, reynslu og aðferðum þegar keyptar eða seldar eru fasteignir.

Gagnleg gögn og verkfæri:

• HMS – Kaupverðsjá (meðalfermetraverð eftir svæðum)
https://hms.is/gogn-og-maelabord/maelab ... aupverdsja

• Keldan – Kaupsamningar (raunverð og dagsetningar)
https://keldan.is/Fasteignir/Leit#Kaupsamningar

• Aurbjörg – Húsnæðislánasamanburður
https://aurbjorg.is/samanburdur/husnaedislan

• Fastinn – Markaðsgögn, fermetraverð og sölusaga eigna
https://fastinn.is/

• Procura – Fasteignagögn og verðmat
https://www.procura.is/

• Auglýsingavefir:
https://www.mbl.is/fasteignir/
https://fasteignir.visir.is/

• Pálsson fasteignasala – Góð ráð
https://www.palssonfasteignasala.is/god_rad

Mínar grunnreglur:

1. Hugsa í fermetraverði (kr/m²) – ekki bara heildarverði.
2. Skoða brúttó vs nettó fermetra.
- Ef nettó er 30–40% minna en brúttó = oft léleg nýting.
3. Skipulag > stærð.
- Dauðir gangar = dauðir fermetrar.
4. Leita að „ljótum“ tækifærum.
- Málning, gólfefni, lýsing, höldur, filma á innréttingar getur oft gert "ljótar" íbúðir fallegar.

Umræðupunktar:

• Hver voru bestu kaupin sem þið hafið gert?
• Hvernig metið þið raunverulegt markaðsverð?
• Hvað mynduð þið gera öðruvísi í dag?
• Hvernig semjið þið um verð?

Endilega deilið gögnum, reynslu og aðferðum sem nýtast öðrum.
Síðast breytt af Hjaltiatla á Sun 15. Feb 2026 10:51, breytt samtals 2 sinnum.

Just do IT
  √

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3330
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 623
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 15. Feb 2026 11:10

Mitt fyrsta ráð – Sjálfvirkar fasteignatilkynningar

Ef þú ert að leita að eign en vilt ekki hanga inni á mbl.is allan daginn, þá er einfaldari leið.

Stilltu leitarskilyrðin nákvæmlega eins og þú vilt (svæði, verðbil, stærð o.s.frv.) og virkjaðu vöktun.

Þá færðu tölvupóst daglega þegar ný eign sem passar við þín skilyrði kemur inn.

Þetta sparar tíma og tryggir að þú missir ekki af nýjum eignum sem detta inn á markaðinn.

Mynd

Af hverju skiptir þetta máli?

• Þú sérð eignir strax þegar þær birtast
• Þú ert fljótari að bregðast við en aðrir

Einfalt. Virkar. Sparar tíma.

Just do IT
  √

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2520
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 242
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf GullMoli » Sun 15. Feb 2026 12:52

Ekki taka Fastinn.is sem heilögum sannleik hvað varðar auglýsinga-sögu. Veit um dæmi þar sem óskað var eftir því að auglýsinga-saga eignar væri tekin út svo það sæist ekki hversu oft hún hefði verið sett á sölu / breytingar á auglýsingu etc. Vitaskuld tóku þau vel í það á þeim tíma allavega.

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8792
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1414
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf rapport » Sun 15. Feb 2026 13:41

Hef heyrt um fólk sem tekur þátt í svona kaupkeðju sem svo klikkar, fær ekki lánshæfismat eða reyndi aldrei 100% en skapar örvæntingu hjá þeim var að selja þeim.

Það var grunur um að þau hefðu verið í samráði við fasteignasalann því önnur keðja með sama fólki hafði klikkað áður.

Tilboð með fyrirvara um sölu innan x tíma o.þ.h. eru fáránleg, eignir seljast alltaf og áhættu eins aðila ætti ekki að deila svona á alla.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3858
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 169
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf Daz » Sun 15. Feb 2026 14:22

rapport skrifaði:Hef heyrt um fólk sem tekur þátt í svona kaupkeðju sem svo klikkar, fær ekki lánshæfismat eða reyndi aldrei 100% en skapar örvæntingu hjá þeim var að selja þeim.

Það var grunur um að þau hefðu verið í samráði við fasteignasalann því önnur keðja með sama fólki hafði klikkað áður.

Hver væri hagur fasteignasala að rjúfa sölukeðju? Þeir fá borgað fyrir að selja fasteignir, ekki hafa þær á sölu??
rapport skrifaði:Tilboð með fyrirvara um sölu innan x tíma o.þ.h. eru fáránleg, eignir seljast alltaf og áhættu eins aðila ætti ekki að deila svona á alla.

Þá fækkar tilboðum rosalega. Fólk almennt fær ekki lán fyrir íbúð nr 2, fá bara lánveitingu þegar staðfest er að núverandi lán sé uppgreitt.
Eignir seljast einmitt ekki alltaf og ef það kemur töf á sölu þá fær næsti seljandi í keðjunni ekki peninga sem þau líklegast þurfa til að borga sína eigin innborgun í íbúð.
Myndi þar af leiðandi hafa geysilega keðjuverkun og hægja á markaðinum. Einnig auka kostnað mikið fyrir þá sem ná að kaupa , því þeir aðilar þyrftu að brúa lengra tímabil með (viðbótar) lánsfjármagni meðan beðið er eftir sölu á þeirra eign eign.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8792
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1414
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf rapport » Sun 15. Feb 2026 15:02

Daz skrifaði:

Trixið átti að fá viðkomandi til að selja á hrakvirði, taka lægra tilboði.

Að sleppa fyrirvörum er áhætta en lánveitendur geta vel útfært einhverskonar brúarlán til að greiða fyrir þessum viðskiptum, það er ekki eins og það mundi skorta veð.

lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 493
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf lyfsedill » Sun 15. Feb 2026 16:46

hæ er ekki að fara kaupa íbúð eða hús en vil bara segja að þessi þráður er mega gott framtak, takk fyrir

falcon1
</Snillingur>
Póstar: 1037
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 139
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf falcon1 » Sun 15. Feb 2026 17:48

Algjörlega eðlilegt að hafa fyrirvara í tilboði um að geta selt eignina sína áður en næsta eign er keypt. Seljandinn getur alltaf hafnað slíku tilboði en það er óþarfa áhætta að setja ekki fyrirvarann fyrir tilboðsgjafann.
Ég veit um nokkur dæmi þar sem fyrirvari var ekki gerður og það var svakalegt vesen sem varð úr því.
Síðast breytt af falcon1 á Sun 15. Feb 2026 17:50, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8792
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1414
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fasteignaþráðurinn - Ráð, gögn og umræða

Pósturaf rapport » Sun 15. Feb 2026 19:00

falcon1 skrifaði:Algjörlega eðlilegt að hafa fyrirvara í tilboði um að geta selt eignina sína áður en næsta eign er keypt. Seljandinn getur alltaf hafnað slíku tilboði en það er óþarfa áhætta að setja ekki fyrirvarann fyrir tilboðsgjafann.
Ég veit um nokkur dæmi þar sem fyrirvari var ekki gerður og það var svakalegt vesen sem varð úr því.

Það er eðlilegt að gera fyrirvara um fjármögnun (og þá að það seljist) en ég er á þeirri skoðun að lánastofnanir ættu að bjóða brúarlán fyrir fólk sem er að kaupa eina fasteign og selja aðra/r.

Það er ekki eins og það sé skortur á veðum í slíku tilfelli, lánveitandinn er helvíti vel tryggður.

Ósköp einfalt, það er greitt af því láni þar sem eigandi hefur lögheimili en á því láni sem eftir stendur þá bætist (afborgun+vextir+brúarálag) við höfuðstól.

Þetta hjálpar fólki sem þarf að standsetja eignir áður en flutt er inn ofl. ofl.

Í raun er eitthvað óeðlilegt við að svona "hópviðskipti" eigi sér stað þar sem árangur allra ræðst af lægsta samnefnara í keðjunni.