Síða 14 af 97

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:48
af mikkimás
Þessi var mjög stór!!!!!!!!!!!!!!!!!

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:51
af Black
Fann ekki fyrir neinu en síminn hjá mér lét vita að það hefði verið skjálfti uppá 5.5
Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:52
af Viggi
Fyrsta sinn sem maður fær viðvörun í símann :shock:

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:55
af agnarkb
Já fékk þessa tilkynningu líka! Aldrei fengið svona áður.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:59
af jonfr1900
Fyrstu tölur um þennan jarðskjálfta er að stærðina hafi verið Mw5,0 en líklega er þetta mun stærri jarðskjálfti.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:59
af dadik
Var að fara að pósta þessu líka. Kom í miðjum skjálfta hjá mér. Er þetta nýtt?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 17:59
af mikkimás
Sagður 5,2 núna.

Fannst hann vera stærri.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 18:03
af mikkimás
Er ekki farinn að finna neinn eftirskjálfta ennþá.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 18:04
af Hjaltiatla
dadik skrifaði:Var að fara að pósta þessu líka. Kom í miðjum skjálfta hjá mér. Er þetta nýtt?

Fékk þetta líka
Virðist hafa byrjað 2020
https://blog.google/products/android/earthquake-detection-and-alerts/

Sendir tilkynningu 4,5 eða stærri
https://crisisresponse.google/android-alerts/#:~:text=Earthquake%20detections%20can%20also%20be,any%20seismic%20activity%20near%20you.


Ég fékk tilkynninguna 2 sekúndum áður en ég fann fyrir skjálftanum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 18:10
af mikkimás
Núna er hann sagður 4,7.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 18:52
af jonfr1900
mikkimás skrifaði:Núna er hann sagður 4,7.


Það er of lágt. EMSC er að tilkynna jarðskjálftann sem Mw5,3 og USGS eitthvað svipað.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 18:58
af jonfr1900
Veðurstofan segir jarðskjálftann vera Mw5,5 núna en það gæti breyst við frekari yfirferð á jarðskjálftanum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 18:59
af svanur08
Er í rvk fann ekkert, bara heyrði hljóð í símanum sem aldrei heyrt áður.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 20:12
af jonfr1900
Kaldavatnið fór af í Grindavík í kjölfarið á jarðskjálftanum auk þess sem vörur hrundu úr hillum verslana.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 21:05
af jonfr1900
GPS mælar sem senda rauntímagögn eru farnir af stað og hreyfingin er mjög mikil.

https://strokkur.raunvis.hi.is/gps/8h.html

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 21:20
af falcon1
Komin smá gufa í gíginn.... veit ekki hvort það var áður.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 21:31
af mikkimás
falcon1 skrifaði:Komin smá gufa í gíginn.... veit ekki hvort það var áður.

Það er enn hiti og gas í hrauninu sem sleppur öðru hvoru út í andrúmsloftið, sérstaklega þegar jörð skelfur.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Sun 31. Júl 2022 23:19
af jonfr1900
Í mesta lagi mun þetta taka um þrjár vikur eins og gerðist áður en það fór að gjósa í Mars 2021. Þetta gæti þó orðið styttra jarðskjálftatímabil núna þar sem ég tel líklegt að eldgosið verði mun stærra núna en síðast.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 07:07
af mikkimás
Ekki minnsti svefnfriður í nótt.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 10:38
af jonfr1900
Morgunblaðið með grein um hröðunarmælana sem eru í öllum farsímum í dag.

Svona virkaði skjálftaviðvörunin

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 11:37
af Climbatiz
fékk enga viðvörun í mínum síma, er með nýjasta Android, býst við því að það gæti verið að ég hafi disable-að svona notification í símanum mínum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 12:04
af audiophile
Climbatiz skrifaði:fékk enga viðvörun í mínum síma, er með nýjasta Android, býst við því að það gæti verið að ég hafi disable-að svona notification í símanum mínum


Ég fékk heldur ekki í minn Samsung en konan mín sem er með eldri Samsung fékk tilkynningu. Veit ekkert hvaða stilling gæti valdið þessu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 12:09
af Viggi
Þetta er í safety and emergency í Xiaomi símanum mínum. Earthquake flokkur þar

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 15:17
af benony13
Sem íbúi í nánasta umhverfi þá fara þessir yfirlýsingaglöðu upphróparar í mínar allra fínustu. Með ólíkindum að svona menntaðir einstaklingar leyfi sér að ítrekað að fara með dómsdagsspár í fjölmiðla .
veit að þetta er hræsni :megasmile

Er ánægður með þennan https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022 ... a_ad_gera/


Fólki er ekki sama, ég sjálfur er í fyrsta sinn með ónotatilfinningu gagnvart þessi. Þessi stóri styggðu mig og aðrir í kringum mig eru á sama mál, þetta var erfið nótt

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mán 01. Ágú 2022 15:46
af jonfr1900
benony13 skrifaði:Sem íbúi í nánasta umhverfi þá fara þessir yfirlýsingaglöðu upphróparar í mínar allra fínustu. Með ólíkindum að svona menntaðir einstaklingar leyfi sér að ítrekað að fara með dómsdagsspár í fjölmiðla .
veit að þetta er hræsni :megasmile

Er ánægður með þennan https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022 ... a_ad_gera/


Fólki er ekki sama, ég sjálfur er í fyrsta sinn með ónotatilfinningu gagnvart þessi. Þessi stóri styggðu mig og aðrir í kringum mig eru á sama mál, þetta var erfið nótt


Færslan síðsta sólarhring virðist vera um 40mm til 60mm og það er rosalega mikið. Meira en helmingi meira en rétt áður en það fór að gjósa í Fagradalsfjalli. Þá tók þetta sama ferli í kringum þrjár vikur. Hvort að það gerist núna verður að koma í ljós en staðan er að breytast hratt og það getur mikið gerst á hverjum klukkutíma.