Maður er að velta fyrir sér þessu tapi rússa á hertækjum. Þessi hertæki eru bestu hertæki rússanna, nútímalegustu, allt annað sem þeir eiga til "á blaði" eru úreld hertæki frá sóvétríkjunum sem eru í mörgum tilfellum ógangfær eða svo úreld að þau gera lítið gagn í nútíma stríði.
Þessar tölur sem ég hef séð um tap rússanna er svakalegt. Hvort sem það er low-end 200 skriðdrekar eða high-end 500 skriðdrekar þá er þetta stórt hlutfall af öllum GANGFÆRUM rússneskum skriðdrekum (það sem er "á blaði" er "in storage" og ekki hægt að koma á vígvöllinn). Hef heyrt að þeir hafi farið í stríðið með um 2000 skriðdreka, og eru búnir að tapa nokkuð stóru hlutfalli þeirra. En það á aðeins við um skriðdrekana, þeir hafa misst ógrynni af öðrum hertækjum, t.d. APC, jeppum, trukkum, og bara ógrynni af hertækjum á hjólum eða beltum.
Það er frekar erfitt að finna upplýsingar um hve marga skriðdreka þeir eru að nota í þessu stríði, en ég held að það sé meginþorri allra gangfærra skriðdreka í rússneska hernum sem voru sendir yfir til Úkraínu.
Þeir missa ekki hertæki bara útaf því að úkraínskur hermaður skýtur á þá, heldur verða þeir eldsneytislausir eða skotfæralausir á óvinastað og ákveða að flýja.
Og þeir eiga eftir að missa fleiri. Kæmi ekki á óvart að þetta stríð muni gera út af við 50% getu rússneska hersins. Og þeir munu ekki geta endurbyggt þetta á næstunni, enda landið á leið í þjóðargjaldþrot, efnahagshrun og hvaðeina.
Þetta stríð Pútíns er algjört clusterfokk fyrir Rússland.
Pictured: A graphic showing Russian army equipment that has been visually confirmed as destroyed by Oryx - a military blog that is tracking Moscow's losses during its invasion of Ukraine. Oryx says its figures are based on 'photo or videographic evidence. Therefore, the amount of equipment destroyed is significantly higher than recorded here'
https://www.dailymail.co.uk/news/articl ... perts.html