Síða 25 af 97

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 01:37
af jonfr1900
Jarðskjálftavirknin er mjög stöðug og kröftugur gangur í óróanum. Það er spurning hvort að þetta nái að brjótast upp úr jarðskorpunni á næstu klukkutímum. Þarf ekki að gerast en hugsanlega er möguleiki á því.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 02:07
af Stofus
Ég bý við Snorrabrautina og er búinn að finna nokkra skjálfta. Þetta er fríkí.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 04:23
af Stuffz
Smá skjálfti núna..

4.2

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 10:03
af AntiTrust
Það nötrar allt vel hér í Njarðvíkinni. Ég sit bara í gönguskónum og bíð eftir gosinu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 11:09
af jonfr1900
Stærsti jarðskjálftinn hingað til er með stærðina Mw4,8. Þetta virðist vera meira af kviku núna og atburðarrásin er mun hraðari en árið 2021.

230705_1055.png
230705_1055.png (25.15 KiB) Skoðað 1786 sinnum

230705_1055_trace.png
230705_1055_trace.png (36.24 KiB) Skoðað 1786 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 12:22
af jonfr1900
Síðan er þetta einnig að gerast.

Gufa sést á nýjum stöðum á Hellisheiði (mbl.is)

Ef þetta er allt saman ein eldstöð, eins og GPS gögn benda til. Þá getur gosið hvar sem er á svæðinu án fyrirvara.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 13:23
af zetor
jonfr1900 skrifaði:Síðan er þetta einnig að gerast.

Gufa sést á nýjum stöðum á Hellisheiði (mbl.is)

Ef þetta er allt saman ein eldstöð, eins og GPS gögn benda til. Þá getur gosið hvar sem er á svæðinu án fyrirvara.

ekki alveg svo dramatískt..." án fyrirvara" er ekki rétt.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 14:29
af Nariur
jonfr1900 skrifaði:Síðan er þetta einnig að gerast.

Gufa sést á nýjum stöðum á Hellisheiði (mbl.is)

Ef þetta er allt saman ein eldstöð, eins og GPS gögn benda til. Þá getur gosið hvar sem er á svæðinu án fyrirvara.

Hættu. Hellisheiði er þekkt heitt svæði og alls ekki partur af þessari eldstöð. Það er búið að segja þér þetta margoft.
Þú ert bara að vekja óöryggi hjá fólki sem les bullið þitt og veit ekki að þú veist lítið sem ekkert um jarðfræði og ert bara að draga þetta út úr rassgatinu á þér.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 14:46
af rapport
zetor skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Síðan er þetta einnig að gerast.

Gufa sést á nýjum stöðum á Hellisheiði (mbl.is)

Ef þetta er allt saman ein eldstöð, eins og GPS gögn benda til. Þá getur gosið hvar sem er á svæðinu án fyrirvara.

ekki alveg svo dramatískt..." án fyrirvara" er ekki rétt.

Hann meinti "án ábyrgðar" ... disclaimer

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 14:49
af jonfr1900
Veðurstofan er farin að búast við jarðskjálfta upp á Mw6,3 að stærð.

Býst við skjálftum hátt í 6,3 að stærð (Vísir.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 14:51
af jonfr1900
Nariur skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Síðan er þetta einnig að gerast.

Gufa sést á nýjum stöðum á Hellisheiði (mbl.is)

Ef þetta er allt saman ein eldstöð, eins og GPS gögn benda til. Þá getur gosið hvar sem er á svæðinu án fyrirvara.

Hættu. Hellisheiði er þekkt heitt svæði og alls ekki partur af þessari eldstöð. Það er búið að segja þér þetta margoft.
Þú ert bara að vekja óöryggi hjá fólki sem les bullið þitt og veit ekki að þú veist lítið sem ekkert um jarðfræði og ert bara að draga þetta út úr rassgatinu á þér.

Vandamálið er að það er gamla túlkunin. Sú túlkun er að þróast, út frá GPS gögnum og öðrum mælingum að frá uþb Eldey eða Eldeyjarboða og fram að Hellisheiði sé í raun ein stór eldstöð en ekki margar litlar, fimm til sex eins og er sýnt á kortum í dag. Það er ýmislegt í gögnum sem er fari að ýta undir þetta, þensla, færslur á GPS og hvernig eldgosin hafa hagað sér hingað til. Þetta þarf samt að rannsaka nánar til að fá staðfestingu en mjög líklega er þetta raunveruleikinn.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 15:10
af demaNtur

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 15:37
af zetor
jonfr1900 skrifaði:

en þrátt fyrir mögulega nýja túlkun á þessu, þá er nú goshegðun Reykjaness ekkert að fara að breytast. Þetta eru oftast ekki stórgos og koma í hrinum frá Hellisheið/Henglinum og fram út fyrir eldey. Mestar líkur eru að þetta mögulega næsta gos verði mjög svipað síðust tveimur gosum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 16:14
af jonfr1900
Gosin verða stærri eftir því sem þau fara austar virðist vera. Ég þekki ekki mögulega ástæður fyrir því. Einnig sem að kvikan þar virðist verða súrari (sprengigos) á sama tíma.

Hérna er hægt að fylgjast með jarðskjálftum í rauntíma á Reykjanesinu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 17:02
af jonfr1900
Þetta er ekki gott ef þetta er það sem gerist.

Land­risið bendi til kraft­mikils goss (Vísir.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 17:59
af Black
Einhverja hugmynd um afhverju ég er ekki að fá Earthquake warning í samsung símann hjá mér, en konan mín fær warning :o
En eins og venjulega fann ég ekki fyrir neinu hérna í Úlfarsfellinu :happy

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 18:03
af hfwf
Black skrifaði:Einhverja hugmynd um afhverju ég er ekki að fá Earthquake warning í samsung símann hjá mér, en konan mín fær warning :o
En eins og venjulega fann ég ekki fyrir neinu hérna í Úlfarsfellinu :happy

GÆtir þurft að kveikja á því
https://blog.google/products/android/ea ... EAccbjky9c

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 19:27
af appel
Einhverjar vefmyndavélar sem sýna frá þar sem gos er líklegast til að koma upp?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 20:02
af jonfr1900
appel skrifaði:Einhverjar vefmyndavélar sem sýna frá þar sem gos er líklegast til að koma upp?

Ég hef bara fundið vefmyndavélina hjá mbl.is á Perlunni. Það er hægt að skoða vefmyndavélina hérna.

GPS mælirinn á Vogum er farinn að reka hratt norður og vestur. Keyrslan þar er á 8 tíma fresti. Hægt er að sjá alla GPS mælana hérna.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 20:59
af jonfr1900
Það er farið að draga úr jarðskjálftum. Þetta er hlé eða kvikan er komin svo hátt upp í jarðskorpuna að eldgos er yfirvofandi næstu klukkutímana.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 21:53
af Mossi__
Ætti ég að poppa?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 22:06
af Hrotti
djöfull er ég til í eldgos, nenni amk ekki meiri jarðskjálftum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 22:50
af appel
Þvílík ógnaröfl sem eru þarna í gangi sem geta hrist upp í öllu í 50 km radíus.
En já, ég nenni ekki jarðskjálftum, hefur alltaf áhyggjur af tjóni á húsum, dýrt dæmi.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 23:08
af Stofus
jonfr1900 skrifaði:
Nariur skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Síðan er þetta einnig að gerast.

Gufa sést á nýjum stöðum á Hellisheiði (mbl.is)

Ef þetta er allt saman ein eldstöð, eins og GPS gögn benda til. Þá getur gosið hvar sem er á svæðinu án fyrirvara.

Hættu. Hellisheiði er þekkt heitt svæði og alls ekki partur af þessari eldstöð. Það er búið að segja þér þetta margoft.
Þú ert bara að vekja óöryggi hjá fólki sem les bullið þitt og veit ekki að þú veist lítið sem ekkert um jarðfræði og ert bara að draga þetta út úr rassgatinu á þér.

Vandamálið er að það er gamla túlkunin. Sú túlkun er að þróast, út frá GPS gögnum og öðrum mælingum að frá uþb Eldey eða Eldeyjarboða og fram að Hellisheiði sé í raun ein stór eldstöð en ekki margar litlar, fimm til sex eins og er sýnt á kortum í dag. Það er ýmislegt í gögnum sem er fari að ýta undir þetta, þensla, færslur á GPS og hvernig eldgosin hafa hagað sér hingað til. Þetta þarf samt að rannsaka nánar til að fá staðfestingu en mjög líklega er þetta raunveruleikinn.

Tja.. líkan vísindamanna telja gos á þessu svæði, úr kviku úr þessari dýpt, líkleg til dyngjugosa. Gosa sem mynda fjöll eins og Skjaldbreið, Trölladyngju, Heiðina Háu, og svo mætti lengi telja. Þau gjósa í mörg ár, ýktustu dæmin eru 10+ ár eins og með Skjaldbreiði.

Það er ekki hægt að spá almennilega fyrir um hegðun þessara gosa. Vísindamenn og eldfjallasérfræðingar sitja svolítið í startholunum og bíða svara sjálfir.

Það er heldur engin ástæða til að ala á einhverri histeríu, nótabene.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 05. Júl 2023 23:11
af appel
Sýnist vera byrjað, sé glitta í eldglæru á vefmyndavélinni
https://www.youtube.com/watch?v=iAD3F0EWvnQ