appel skrifaði:Veit ekki hvort þú ert búinn að glápa á Goblin, en það er "must watch" kdrama sería, og líklega ein sú þekktasta (fyrir utan Squid Game). https://mydramalist.com/18452-goblin
Takk fyrir þetta. Ekki búinn að sjá þessa þætti, komið á lista hjá mér.
ohh... elska Goblin þættina... var að klára "My roommate is a gumiho" í gær, ætti maður að skella sé á Goblin í 4. sinn?
Var að hugsa um itaewon Class eða Whats worng with secretary Kim eða It´s ok not to be ok eða eitthvað nýtt.
Apple, er eitthvað varið í eitthvað af þessu? henti þessu á playlistann hjá mér einherntíman...
Capture.JPG
Hef bara séð "So I married the anti-fan", hún er svona la la fannst mér. Er með My Strange Hero og Shooting Stars á listanum hjá mér. Myndi sennilega veðja á Shooting Stars. Bendi líka á þessa: Twenty-Five Twenty-One (https://mydramalist.com/695149-twenty-five-twenty-one)
Kannski það sem ég fíla minnst eru dramas sem eru voðalega mikið angish og melodrama. Stundum byrjar serían með húmór, en eftir 3-4 þætti er þetta orðið voðalega þungt í áhorfi. Þessvegna hef ég aldrei náð að klára My Mister, aldrei komist lengra en 3 þætti þó ég hafi reynt að horfa á hana svona þrisvar sinnum.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Fös 31. Mar 2023 17:53
af appel
falcon1 skrifaði:Finn ekki Goblin á Netflix, hvar getur maður horft á þá þætti?
"Goblin" verður stundum "Guardian"... don´t ask me why.
Ef þú ert að reyna finna þetta annarstaðar
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Fös 31. Mar 2023 18:10
af appel
Já, stundum eru þessar asísku seríur með skrítna titla. En ég held að allir tali um seríuna sem "goblin", aldrei þennan official langloku-title, og leitarvélar finna alltaf "goblin" þar sem þær leita leika í þessum alternative titles. Jafnvel kóreubúar tala um "goblin", hef séð vídjó þar sem þeir minnast á seríuna og segja alltaf "goblin". Fyndið.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Fös 31. Mar 2023 18:26
af rapport
appel skrifaði:Já, stundum eru þessar asísku seríur með skrítna titla. En ég held að allir tali um seríuna sem "goblin", aldrei þennan official langloku-title, og leitarvélar finna alltaf "goblin" þar sem þær leita leika í þessum alternative titles. Jafnvel kóreubúar tala um "goblin", hef séð vídjó þar sem þeir minnast á seríuna og segja alltaf "goblin". Fyndið.
Hún hét officially "Goblin: The great guardian" þegar ég sá hana fyrst... svo fór þetta í eitthvað ferðalag.
En mæli líka með Hotel del Luna... hvort hún sé ekki á Netflix og Mr. Sunshine (er á Netflix) og My Name (á Netflix)
Hafið þið skoðað þessa síðu: https://www.iq.com/ Hún virðist svipuð og viki.com Þarf að kaupa aðgang til að fá í fullum gæðum og geta horft á allt efni. Við nánari skoðun er þetta mest kínverskt efni og eitthvað tælenskt.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Mán 03. Apr 2023 11:44
af appel
vatr9 skrifaði:Hafið þið skoðað þessa síðu: https://www.iq.com/ Hún virðist svipuð og viki.com Þarf að kaupa aðgang til að fá í fullum gæðum og geta horft á allt efni. Við nánari skoðun er þetta mest kínverskt efni og eitthvað tælenskt.
Þetta er kínversk efnisþjónusta. Það eru til nokkrar þannig.
Þetta er þrusufín sería er á 4. þætti af 6. Þetta er svona alien invasion horror með skólakrökum sem eru gerðir að hermönnum og eru að reyna halda lífi í þessu apocalypse. Allar klisjur í þessu, dettandi aftur fyrir sig, geta ekki hreyft sig af hræðslu, rekast í allt sem gefur frá sér hljóð sem laðar að sér skrímslin.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Mán 03. Apr 2023 23:21
af appel
Kláraði seríuna. Þetta er nokkuð góð sería, mæli með henni. Blóð og sundurlimuð lík warning. Battle Royale meets Alien Invasion.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Mið 05. Apr 2023 21:48
af agust1337
Horfði á The Glory með konunni, var frekar góð myndi ég segja! Mæli með þeirri seríu.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Mið 05. Apr 2023 22:00
af appel
agust1337 skrifaði:Horfði á The Glory með konunni, var frekar góð myndi ég segja! Mæli með þeirri seríu.
Á eftir að kíkja á hana, sé að hún er að fá fáranlega góða dóma.
edit: ákvað að byrja að horfa á hana, páskaserían!
Annað sem ég hef uppgötvað eftir að hafa byrjað að horfa á efni frá a-asíu er... hve menningarsnautt Ísland er. Hér er eiginlega engin menning sem er hægt að eyða tíma í. Allt voðalega yfirborðskennt og grunnt og lítið. RÚV er eiginlega bara sjónvarpsstöðin sem er stillt á hjá elliheimilinum, svo er ekkert umfram það gert í raun varðandi menningu hérna. Íslensk tunga er löngu útdauð.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Lau 04. Nóv 2023 08:49
af rapport
appel skrifaði:..., svo er ekkert umfram það gert í raun varðandi menningu hérna. Íslensk tunga er löngu útdauð.
Þetta er ekki alveg satt, íslensk framleiðsla hefur stórbatnað í seinni tíð, allt frá Radíusbræðrum til Ófærðar til Iceguys...
Við ættum bara að sameinast Kóreu... spurning hvort að Norður Kórea sé til í að skipta um pláss við okkur... hún er rétt um 120þ. fer.km. Þannig að við græðum smá pláss + mun lægri flutningskostnað frá Kína...
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Mið 24. Jan 2024 17:21
af appel
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242519672d/slo-o-vaent-i-gegn-i-kina-eftir-lygi-lega-at-burda-ras-a-lauga-veginum
Við ættum bara að sameinast Kóreu... spurning hvort að Norður Kórea sé til í að skipta um pláss við okkur... hún er rétt um 120þ. fer.km. Þannig að við græðum smá pláss + mun lægri flutningskostnað frá Kína...
Vá, Dilraba Dilmurat á klakanum, spes, hún er mega celebrity í Kína og víða í asíu. Hef séð margar þáttaraðir með henni. ég hefði líklega stoppað með kínversku túristunum og gónað einsog kjáni
Veit að langflestir vita ekkert hver þetta er. En bara svo menn átti sig á vinsældunum, þá er hún að leika main lead í þáttaröðum sem mörg hundruð milljónir manna horfa á. Ein vinsælasta þáttaröðin sem hún hefur leikið í, Eternal Love, fékk 50 milljarða í áhorfi og er sögð vera vinsælasta þáttaröð heimsins frá upphafi. Til samanburðar þá fékk Stranger Things 4 um 140 milljón í áhorf hjá Netflix og Squid Game 265 milljónir í áhorfi. (þetta eru "episodes watched"). Game of Thrones er eina sem kemst í þennan flokk í vestræna heiminum.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Fös 26. Jan 2024 16:38
af Nariur
appel skrifaði:

Mér finnst mjög fyndið hvernig kínverski editing stíllinn kemur fyrir sem mjög amateurish.
Það eru 58 þættir af Eternal Love, þannig að við erum að tala um að 70% af Kína hefur horft á hvern einasta þátt. Mér þykir þetta hæpið. Til samanburðar, þá var Top Gear á toppnum með 350 milljón áhorfendur. Ef við gerum ráð fyrir að þeir allir hafi horft á alla 186 þættina sem Clarkson er í er það 65 milljarðar. Annars, ef við tökum endurtekin áhorf hlýtur Friends að eiga kórónuna. Það eru svo margir búnir að vera með það á repeat svo lengi.
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Fös 26. Jan 2024 17:05
af rapport
Nariur skrifaði:Það eru 58 þættir af Eternal Love, þannig að við erum að tala um að 70% af Kína hefur horft á hvern einasta þátt. Mér þykir þetta hæpið.
Þú taldir alþjóðlegar tölur TopGear en bara Kína fyrir Eternal Love...
Punkturinn er hvað hinn vestræni heimur er í raun lítill og fámennur.
Mér finnst alltaf jafn magnað að færa Chile þannig að toppurinn er yfir Egilsstöðum á https://www.thetruesize.com
Innanlandsflug á Chile væri eins og fljúga frá Egilsstöðum til Tene.
Og setja Brasilíu yfir Evrópu er svakalegt...
Re: Squid Games og kdrama?
Sent: Fös 26. Jan 2024 17:45
af Nariur
rapport skrifaði:
Nariur skrifaði:Það eru 58 þættir af Eternal Love, þannig að við erum að tala um að 70% af Kína hefur horft á hvern einasta þátt. Mér þykir þetta hæpið.
Þú taldir alþjóðlegar tölur TopGear en bara Kína fyrir Eternal Love...
Punkturinn er hvað hinn vestræni heimur er í raun lítill og fámennur.
Mér finnst alltaf jafn magnað að færa Chile þannig að toppurinn er yfir Egilsstöðum á https://www.thetruesize.com
Innanlandsflug á Chile væri eins og fljúga frá Egilsstöðum til Tene.
Og setja Brasilíu yfir Evrópu er svakalegt...
Mér þykir ekki voða líklegt að þessir þættir séu með rosalegt traction utan Kína, á meðan Top Gear var sýnt ALLS STAÐAR.