Ef að þér er alvara með að smíða svona þá er enginn á Íslandi reyndari í þessum málum en Þröstur í Spilakassahúsinu (
https://www.facebook.com/profile.php?id=61551897782284).
Ef að þú ert með rými til þess þá eru til fullt af teikningum af svona kössum á netinu, bara kaupa MDF plötur í Byko/Húsasmiðjunni/Bauhaus.
Hægt að handfræsa þetta.
Það væri líka hægt að kaupa MDF plötur og fara með í fablab reykjavík. þau eru með geggjaðann CNC fræsara sem getur fræst fyrir þig 275x150cm.
Það var lokað í Fab Lab í sumar og ég veit ekki hvenær þau opna aftur, en það er hægt að plana þetta þangað til.
Svo eru örugglega alveg slatti af trésmíðaverkstæðum sem eru til í að fræsa þetta fyrir þig.
Ég myndi persónulega frekar nota einhverja dell/lenovo minipc frá Fjölsmiðjunni frekar en Raspberry Pi, mín (nb. takmarkaða) reynsla af Raspberry Pi projectum er að maður er jafnmikið að debugga Raspberry Pi dót og það sem að maður er að reyna keyra.
Henda bara upp windows 11 eða hvaða Linux distro sem þig langar og svo hvaða emulator sem er.