Síða 1 af 1

Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Sun 28. Sep 2025 10:48
af Semboy
Hvað er besta leið til að fara læra nýtt tungumál.
Ég á bátt að trúa, bara með því að horfa á myndbönd, bíomyndir, youtube mun láta hlutirnir ganga hraðar
sama með þessi öpp. Þar sem ég tel mig vera að fá mikið af input! og mjög litið af output.
Það er ekki hægt að bera fullorðið fólk við börn! Börn eru mjög hæg að læra tungumál og eina sem þau hafa
yfir fullorðið fólk er tími. Svo ég skil ekki þessa settningu með 'Börn læra tungumál hratt'.

Re: Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Sun 28. Sep 2025 11:04
af joekimboe
Best er að fara á námskeið og reyna að kynnast fólki sem talar portúgölsku svo þú getir æft þig. Einnig er duolingo mjög gott, þættir og myndir og tónlistá portúgölsku. Börn læra tungumál hraðar en þú því heilinn þeirra er meiri svampur en ekki því þau hafa svo mikinn tíma.. þau meðtaka meira og endurtaka, börn eiga auðveldara með að læra mörg tungumál í einu heldur en flestir fullorðnir og það er er staðreynd.

Re: Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Sun 28. Sep 2025 11:18
af Semboy
Námskeið er of snemmt. Verð bara að reyna vera meira duglegur og gera þetta eins og þetta sé skóli, með blað og blýant. Er búinn að gefa mér 4 mánuði til að geta sett saman einfaldar settningar.

Re: Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Sun 28. Sep 2025 14:52
af rostungurinn77
Ætlarðu þér að læra brasilíska portúgölsku eða portúgalska portúgölsku?

Ekki beint sitthvort tungumálið en samt.

Duolingo býður upp á brasilísku útgáfuna og ætti að vera nóg til að hjálpa þér að læra einfalda setningarfræði og framburð.

Chatgpt eða önnur módel geta síðan stutt við það.

Portúgalskan er áhugaverð hvað framburð og stafsetningu varðar.

Re: Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Mán 29. Sep 2025 07:04
af brain

Re: Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Mán 29. Sep 2025 10:12
af Semboy
Mynd
Ég er að fara í gegnum þetta, sem vinur minn sendi mér. Og líka að reyna að setja saman 20 sagnir á hverjum degi.

Re: Mig langar að læra Portúgölsku!

Sent: Mán 29. Sep 2025 16:26
af jericho
Prófa AI?

Getur skoðað þennan þráð sem starters:
https://www.reddit.com/r/dreamingspanis ... was_quite/