Síða 1 af 1
400 millz í tæknifokkup
Sent: Mán 03. Nóv 2025 20:56
af rapport
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Mán 03. Nóv 2025 23:12
af appel
rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20252798349d/eyddu-illa-fengnum-milljonum-i-bila-og-rafmyntir
Hvað ætli hafi gerst?
millifæra mínus tölu, -400.000.000 er minni en 0
Kóði: Velja allt
var transferAmount = -400000000;
var balance = 0;
if(transferAmount < balance) {
balance -= transferAmount;
}
console.log(balance); // balance orðið 400000000 eitthvað svona.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 06:45
af Hjaltiatla
Bendir til að kerfisgalli hafi verið nýttur hvað sem það þýðir. Er að skrifa þetta meðan ég er að patcha netþjón

Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 12:44
af rostungurinn77
Allar líkur á að það hafi verið einhver tæknigalli þarna, hvernig sem það virkar. Er að skrifa þetta í miðri heilaskurðaðgerð, meira síðar.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 13:47
af olihar
Hjaltiatla skrifaði:Bendir til að kerfisgalli hafi verið nýttur hvað sem það þýðir. Er að skrifa þetta meðan ég er að patcha netþjón

rostungurinn77 skrifaði:Allar líkur á að það hafi verið einhver tæknigalli þarna, hvernig sem það virkar. Er að skrifa þetta í miðri heilaskurðaðgerð, meira síðar.
Ég held að einhver hafi verið að reyna að deila með 0.... Er að skrifa þetta á leiðinni til mars
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 13:59
af worghal
grunar að einhver í QA testing gleymdi að prófa neikvæðar tölur

ætli þetta hafi verið vibe kóðað með chatgpt?

Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 15:31
af peer2peer
Áhugaverður öryggisgalla svo ekki sé meira sagt.
Er að skrifa þetta á meðan ég er að skíta.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 15:40
af Hjaltiatla
Verður áhugavert að sjá hvað í "Kerfisuppfærslunni" olli þessum vandræðum.
Edit: spurning hvort það gerist.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 16:40
af Fridvin
peer2peer skrifaði:Áhugaverður öryggisgalla svo ekki sé meira sagt.
Er að skrifa þetta á meðan ég er að skíta.
Sá eini hérna sem ég hugsa að hafi sagt satt

Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 17:10
af rapport
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025 ... num-458040Ég skil þetta ekki, af hverju fá þeir að ganga lausir?
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 17:15
af rostungurinn77
rapport skrifaði:https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-11-04-landsrettur-hafnadi-lika-gaesluvardhaldskrofu-yfir-fjarglaeframonnum-458040
Ég skil þetta ekki, af hverju fá þeir að ganga lausir?
Væntanlega vegna þess að þeir geta ekki átt við sönnunargögn í málinu þó svo þeir gangi lausir, vænti ég. Það á allavega að vera tilgangurinn með gæsluvarðhaldi að koma í veg fyrir að sakborningar spilli rannsókninni.
„Við erum búin að leggja hald á rafmynt og bankainnistæður og við höfum lagt hald á bifreiðar. Staðan er samt sú og ástæðan fyrir því að við óskum eða förum fram á gæsluvarðhald er sú að það er töluverð vinna eftir í þessum málum og þetta er það sem við erum að gera núna. Við erum að reyna að rekja fjármunina og erum að reyna að endurheimta þá,“ segir Agnes.
Þeir eru í farbanni að því er ég best veit.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 18:41
af appel
Veit ekki hvað þeir gátu komið miklu í skjól, þannig að þó þeir verði dæmdir hérna fyrir þetta þá er það kannski bara 3 mánuðir í fangelsi og svo 1 ár á skilorði. Glæpir svo sannarlega borga sig á Íslandi!
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Þri 04. Nóv 2025 21:27
af appel
Fimm gæjar, frá tvítugt til fertugs.
https://www.visir.is/g/20252798876d/eng ... m-tvi-tugtÞeir virðast hafa bara náð að koma um 150 milljónum undan, restin var fryst.
Það eru 30 milljónir á haus, ef þeir hafa náð að koma því í skjól með einhverjum hætti.
þessi um tvítugt búinn að stúta allri sinni framtíð líklegast fyrir 30 millur, kannski ágætis upphæð ef þú kemst upp með það, en ef ekki þá nýtist þetta takmarkað því þú getur eiginlega ekki eytt þessum pening nema þú flýjir land í einhvern frumskóg í kambódíu.
Svona kauðar fá ekki einu sinni starf hjá KFC eða Metro við að flippa borgurum útaf sakaskrá, hvað þá hjá neinum öðrum fyrirtækjum.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Mið 05. Nóv 2025 08:59
af worghal
appel skrifaði:þessi um tvítugt búinn að stúta allri sinni framtíð líklegast fyrir 30 millur, kannski ágætis upphæð ef þú kemst upp með það, en ef ekki þá nýtist þetta takmarkað því þú getur eiginlega ekki eytt þessum pening nema þú flýjir land í einhvern frumskóg í kambódíu.
Svona kauðar fá ekki einu sinni starf hjá KFC eða Metro við að flippa borgurum útaf sakaskrá, hvað þá hjá neinum öðrum fyrirtækjum.
þetta er svo rangt hjá þér að hálfa væri nóg. ég veit um og heyrt um nógu marga sem hafa sína sakaskrá og lifa ágætu lífi með góða vinnu.
fjárhagslegir glæpir á sakaskrá setja þér eingar hömlur.
Re: 400 millz í tæknifokkup
Sent: Mið 05. Nóv 2025 12:16
af rostungurinn77
appel skrifaði:Fimm gæjar, frá tvítugt til fertugs.
https://www.visir.is/g/20252798876d/eng ... m-tvi-tugtÞeir virðast hafa bara náð að koma um 150 milljónum undan, restin var fryst.
Það eru 30 milljónir á haus, ef þeir hafa náð að koma því í skjól með einhverjum hætti.
þessi um tvítugt búinn að stúta allri sinni framtíð líklegast fyrir 30 millur, kannski ágætis upphæð ef þú kemst upp með það, en ef ekki þá nýtist þetta takmarkað því þú getur eiginlega ekki eytt þessum pening nema þú flýjir land í einhvern frumskóg í kambódíu.
Svona kauðar fá ekki einu sinni starf hjá KFC eða Metro við að flippa borgurum útaf sakaskrá, hvað þá hjá neinum öðrum fyrirtækjum.
Er búið að dæma í málinu?
Nei?
Slaka á!