Síða 1 af 1
Valve hardware
Sent: Mið 12. Nóv 2025 20:06
af gunnimikki
Ný fjarstýring, tölva og VR frá valve
https://store.steampowered.com/sale/hardware Alveg kúl
Re: Valve hardware
Sent: Mið 12. Nóv 2025 20:21
af Henjo
Þetta er geggjað. Flott að það er hérna fyrirtæki sem stýður frelsi okkar sem notendur. Þetta kemur með Linux kerfi frá Valve, en öllum er auðvitað frjálst að installa t.d. Windows ef slík sjálfspynting er til staðar hjá fólki.
Er spenntur fyrir þessu.
Re: Valve hardware
Sent: Mið 12. Nóv 2025 20:33
af ABss
Magnað, það virðist enn langt í skítvæðinguna (e. enshitification) hjá Steam!
Þetta er í fyrsta skipti í... Jah, einn eða tvo áratugi sem mig langar í raun og veru í eitthvað leikjadót. Og tölvan væri ekki bara leikjatölva heldur væri hún líka gagnleg í annað.
Miðað við þetta, 10/10!
Það verður forvitnilegt að sjá verðin, en mögulega er hægt að nota krakkana til að réttlæta þetta :-)
P.s. Held enn tryggð við steam eftir að þeir gerðu tölvuleikjastuldur óþarfa!
Re: Valve hardware
Sent: Mið 12. Nóv 2025 23:16
af TheAdder
Það verður mjög freistandi að bæta við Frame og Controller 2 við Steam Hardware safnið.
Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 08:09
af Hausinn
Þessi nýja fjarstýring minnir mig svolítið á Atari Jaguar fjarstýringarnar.
En það er frábært að leikjatölvumarkaðurinn sé að fá annan keppinaut sem byggist á frelsi. Stór ástæða fyrir því af hverju ég hætti að kaupa leikjatölvur er akkúrat því að ég finnst of margar takmarkanir á því hvað hægt sé að gera nema maður moddar þær.
Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 08:39
af Viggi
Frame lúkkar rosalega næs en manni langar svo í oled inn í þessi gleraugu. Kanski frame 2 komi með það

fyrir utan það er ég sold.
En alveg geggjað hvað þeir standa sig vel í að styðja við open source.
Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 09:35
af GuðjónR
Þetta er kúl svo lengi sem þeir skemma það ekki með himinháum áskriftargjöldum...
Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 09:39
af TheAdder
GuðjónR skrifaði:Þetta er kúl svo lengi sem þeir skemma það ekki með himinháum áskriftargjöldum...
Hefur eitthvað bent til þess að það verði einhver áskriftargjöld?
Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 11:08
af gnarr
Valve hefur bókstaflega aldrei verið með eina einustu áskrift í boði, svo að mér þykir það gífurlega ólíklegt.
Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 11:11
af TheAdder
gnarr skrifaði:Valve hefur bókstaflega aldrei verið með eina einustu áskrift í boði, svo að mér þykir það gífurlega ólíklegt.
Nema náttúrulega áskrift að veskinu hjá manni í þessum árlegu útsölum sínum.

Re: Valve hardware
Sent: Fim 13. Nóv 2025 12:12
af Mondieu
gnarr skrifaði:Valve hefur bókstaflega aldrei verið með eina einustu áskrift í boði, svo að mér þykir það gífurlega ólíklegt.
Dota 2, einn stærsti leikur Valve, er með áskriftarmódel til margra ára sem heitir
Dota Plus, þannig að það eru fordæmi fyrir einhvers konar áskrift af hálfu Valve. Leikurinn er þó ókeypis og þetta er ekki nauðsynleg áskrift. Mér þykir ólíklegt að þeir fari að keyra á einhverjum áskriftum.
Re: Valve hardware
Sent: Fös 14. Nóv 2025 10:50
af Hannesinn
Mér líst alveg ótrúlega vel á þetta. Lítur út fyrir að vera smekkleg "smátölva", sem auðvelt verður fyrir fólk að planta í stofunni með sjónvarpinu og hinum leikjavélunum.
Þetta er reyndar ekkert nýtt fyrir þá sem hafa notað Steamdeck eða linux, en það hefur aldrei hentað vel fyrir Dúdda majones úti í bæ. Svona vél hins vegar gerir það.
LTT talaði um það í gær að vélin verði verðlögð eins og entry-level PC tölva, því þó þessar tölvur séu í samkeppni við leikjatölvur er ekkert sem kemur í veg fyrir að fyrirtæki kaupi svona vélar fyrir desktop vinnslu og því éti upp niðurgreiðsluna sem annars ynnist upp með leikjasölu, eins og xbox/playstation hafa gert seinustu áratugina.
En mér þykja þetta spennandi fréttir og á eflaust eftir að kaupa eina þegar þær koma á markað fyrri hluta næsta árs.
Re: Valve hardware
Sent: Lau 15. Nóv 2025 08:36
af DJOli
Fleiri flott tæki fyrir console-gamera til að lýta í kringum sig og kynna sér alvöru leikjahagkerfi þar sem þú tekur leikina þína með þér yfir í næstu tölvu, svo gott sem sama hvað, og þarft næstum aldrei að hugsa út í compatibility nema ef þú ert með 15-20 ára gamla leiki. Jaaaaafnvel þá, þá virkar t.d. cs 1.6 enn hjá mér í gegnum Steam án þess að þurfa að fara í einhverjar aðgerðir. Sama með fyrstu tvo Rollercoaster Tycoon leikina.
Mig minnir að Worms Armageddon hafi þurft fix vegna þess að frá og með sirka Windows 7 startast leikurinn með invertaða liti. Hef ekki sannreynt það aftur og nenni ekki að staðfesta það núna.
Re: Valve hardware
Sent: Lau 15. Nóv 2025 12:47
af GuðjónR
Er búinn að sjá meira og meira af þessu á TikTok og verð að segja að þetta er spennandi kostur, sérstaklega í samkeppni við aðrar leikjatölvur.