Síða 1 af 1
Nýr vélbúnaður
Sent: Fim 20. Nóv 2025 00:15
af emil40
Hvað segiði félagar !!!!!
Hvenær kemur nýr vélbúnaður á markaðinn !!!!
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fim 20. Nóv 2025 04:43
af Sinnumtveir
Tjaaaaah, það virðist óvenjulega langur biðtími framundan. Væntanlega verða einhver Zen-5 "refresh" og Arrow Lake er líka á leiðinni í hressingu.
En það sem ég hef lesið er að Zen-6 fyrir borðtölvur verði sennilega ekki fyrr en snemma árs 2027 en að Nova Lake gæti brotið ísinn eftir ~ ár.
Hressingarnar gætu alveg verið áhugaverðar ef einhver hefði efni á að kaupa minni í þær

PS. Ég hef alveg lifað nokkur svona minnisömurðar / minnisokurstímabil, mjög ófyndið skal ég segja ykkur.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fim 20. Nóv 2025 04:54
af olihar
RAM og SSD eru í algjörlega sky high hækkunum núna og munþað halda áfram, þetta virðast valda miklum seinkunum á mörgu öðru.
Held það séu líkur á að allt annað muni hækka líka í leiðinni, fókusinn hjá öllum er AI, AI, AI svo allt hardware og fab tími fer þangað.
Ekkert sérstaklega bjartir tímar framundan á consumer/prosumer hliðinni.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fim 20. Nóv 2025 21:22
af emil40
Díses kræst er ekki í lagi !!!!!
Búið að hækka úr 100þ í 210þ síðan að ég keypti mitt

- Screenshot_2025-11-20-21-20-10-754_com.android.chrome.jpg (637.36 KiB) Skoðað 1491 sinnum
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 01:49
af Sinnumtveir
emil40 skrifaði:Díses kræst er ekki í lagi !!!!!
Búið að hækka úr 100þ í 210þ síðan að ég keypti mitt
...
Þetta hefur í grundvallaratriðum verið að gerast síðustu 6-9 vikur.
Algjör hörmung fyrir flesta. Sjálfur er ég vel birgur.
Nú er bara tímaspursmál þar til skjákort, sérstaklega "low-end" með miklu minni hækka, sem
er einstaklega fúlt nú þegar skjákort eru að nálgast bærileg verð.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 10:19
af DJOli
Ég er spenntur fyrir því þegar AI búbblan springur. Ég mun finna leið til að kaupa slatta af ódýrum vélbúnaði á slikk.
Fokk þetta bullshit sem er kallað AI sem er ekki alvöru AI.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 12:00
af emil40
sem betur fer var ég búinn að kaupa allt mitt áður en að þetta gerðist !!!!
Minnið sem ég er með er búið að fara úr 100þ í 210þ það er bara klikkun
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 13:39
af Moldvarpan
Emil veistu hvað... ég er enn ótrúlega ánægður með DDR4. Þvílíkt bang for the buck. Allir á eh Ryzen lest, á meðan er hin hraðlestin farin að selja lestarmiðana á betra verði.
Það er nóg annað hægt að eyða í, rúm, skrifborð (sérhönnuð risa "skrifborð"), gæða stóla, konur til þess að þrífa hjá þér, safna í næstu ferð á völlinn.
Ertu ekki Arsenal maður?
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 15:10
af emil40
Moldvarpan skrifaði:Emil veistu hvað... ég er enn ótrúlega ánægður með DDR4. Þvílíkt bang for the buck. Allir á eh Ryzen lest, á meðan er hin hraðlestin farin að selja lestarmiðana á betra verði.
Það er nóg annað hægt að eyða í, rúm, skrifborð (sérhönnuð risa "skrifborð"), gæða stóla, konur til þess að þrífa hjá þér, safna í næstu ferð á völlinn.
Ertu ekki Arsenal maður?
Ef að þú heldur að ég sé Arsenal maður þá ertu haldinn alvarlegum ranghugmyndum .....
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 17:19
af Moldvarpan
emil40 skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Emil veistu hvað... ég er enn ótrúlega ánægður með DDR4. Þvílíkt bang for the buck. Allir á eh Ryzen lest, á meðan er hin hraðlestin farin að selja lestarmiðana á betra verði.
Það er nóg annað hægt að eyða í, rúm, skrifborð (sérhönnuð risa "skrifborð"), gæða stóla, konur til þess að þrífa hjá þér, safna í næstu ferð á völlinn.
Ertu ekki Arsenal maður?
Ef að þú heldur að ég sé Arsenal maður þá ertu haldinn alvarlegum ranghugmyndum .....
Þú getur reynt að láta chatcpt útskýra afhverju Arsenal eru miklu betri.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Fös 21. Nóv 2025 18:42
af emil40
ég held með mínu liði svo hvort það gengur vel eða illa í staðinn fyrir að halda með liði sem endar alltaf í 2 sæti hahahaha
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Lau 22. Nóv 2025 02:25
af Sinnumtveir
emil40 skrifaði:ég held með mínu liði svo hvort það gengur vel eða illa í staðinn fyrir að halda með liði sem endar alltaf í 2 sæti hahahaha
Já, auðvitað halda menn með sínu liði en stóra trixið er að hámarka dramatíkina. þú veist, dýpka dalina, hækka toppana, meiri vonarglætu, meiri vonbrigði, dýpri sorg, alvarlegt þunglyndi, vonarglæta, vonbrigði og svo eftir áratugi: fölskvalaus gleði.
Spóla svo til baka og endurtaka. Semsagt, halda með Liverpool

PS. Mér er slétt sama um Arsenal, Liverpool og hvað allt þetta drasl í enska boltanum heitir.
Ég fylgist með miklu þróaðri og áhorfsvænni bolta: þeim ameríska, þeas NFL.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Lau 22. Nóv 2025 10:39
af GuðjónR
56% hækkun í nótt á þessu venjulega vinnsluminni.
Sé svona hækkanir oft í viku. Þetta er ferlegt ástand.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Lau 22. Nóv 2025 12:59
af emil40
Sinnumtveir skrifaði:emil40 skrifaði:ég held með mínu liði svo hvort það gengur vel eða illa í staðinn fyrir að halda með liði sem endar alltaf í 2 sæti hahahaha
Já, auðvitað halda menn með sínu liði en stóra trixið er að hámarka dramatíkina. þú veist, dýpka dalina, hækka toppana, meiri vonarglætu, meiri vonbrigði, dýpri sorg, alvarlegt þunglyndi, vonarglæta, vonbrigði og svo eftir áratugi: fölskvalaus gleði.
Spóla svo til baka og endurtaka. Semsagt, halda með Liverpool

PS. Mér er slétt sama um Arsenal, Liverpool og hvað allt þetta drasl í enska boltanum heitir.
Ég fylgist með miklu þróaðri og áhorfsvænni bolta: þeim ameríska, þeas NFL.
auðvitað er ég búinn að halda með Liverpool frá 1984

Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Lau 22. Nóv 2025 13:09
af emil40
GuðjónR skrifaði:56% hækkun í nótt á þessu venjulega vinnsluminni.
Sé svona hækkanir oft í viku. Þetta er ferlegt ástand.
það er ekki eins og þetta sé premium minni eða neitt þannig. Þetta er rán um hábjartann dag !
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Lau 22. Nóv 2025 23:07
af Dropi
Ég borgaði 18.000 fyrir 2x16GB 3200MHz DDR4 árið 2018 og enn að nota það :/ ætlaði að kaupa 2x48GB DDR5 á þessu ári og fara í AM5 en ég bíð eftir að búbblan springi og oversupply tekur við.
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Sun 23. Nóv 2025 09:02
af Hjaltiatla
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Sun 23. Nóv 2025 11:57
af Moldvarpan
Emil... þú ert með langbesta búnaðinn á vaktinni. Þetta er að detta út í rugl. Bara svo to be honest. Ekki taka þessu illa.
Það er hægt að gera margt annað með peninginn, ég veit að þú ert ekki Arsenal maður, var bara aðeins að æsa þig upp með því.
Kíkja á völlinn,, njóta lífsins.
Flottur dagur í dag t.d. Njóttu dagsins

Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Mán 24. Nóv 2025 03:07
af olihar
Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Mán 24. Nóv 2025 13:39
af emil40
Moldvarpan skrifaði:Emil... þú ert með langbesta búnaðinn á vaktinni. Þetta er að detta út í rugl. Bara svo to be honest. Ekki taka þessu illa.
Það er hægt að gera margt annað með peninginn, ég veit að þú ert ekki Arsenal maður, var bara aðeins að æsa þig upp með því.
Kíkja á völlinn,, njóta lífsins.
Flottur dagur í dag t.d. Njóttu dagsins

Mikið var nú yndislegt að heyra þetta. Takk fyrir að bjarga deginum !!!!

Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Mán 24. Nóv 2025 13:48
af Jón Ragnar
Sinnumtveir skrifaði:Ég fylgist með miklu þróaðri og áhorfsvænni bolta: þeim ameríska, þeas NFL.
Þú meinar auglýsingar með dash af gæjum hlaupa 20 yarda og svo reset með auglýsingahléi

Re: Nýr vélbúnaður
Sent: Mán 24. Nóv 2025 21:21
af emil40
Moldvarpan skrifaði:Emil... þú ert með langbesta búnaðinn á vaktinni. Þetta er að detta út í rugl. Bara svo to be honest. Ekki taka þessu illa.
Það er hægt að gera margt annað með peninginn, ég veit að þú ert ekki Arsenal maður, var bara aðeins að æsa þig upp með því.
Kíkja á völlinn,, njóta lífsins.
Flottur dagur í dag t.d. Njóttu dagsins

Hvernig líst þér á nýju undirskriftina mína
