Mér þykir framtakið bæði gott og áhugavert.
Hinsvegar þykir mér mjög varhugavert að skrá mig inn með rafrænum skilríkum og þannig tengja mína persónu með órjúfanlegum hætti við samfélagsmiðil. Miðað við að í Appstore komi fram
"Engar auglýsingar: Við trúum á hreina upplifun. Það eru engar auglýsingar á Slapp", þá geri ég ráð fyrir að varan hjá þeim sé að safna notendaupplýsingum til að selja áfram eða nýta með öðrum hætti.
Fram að því að það kemur betur fram hver varan er eða hvert buisness módelið er þá sé ég ekki fyrir mér að skrá mig.
Það er þó fínt að taka fram að ef varan er söfnun á persónupplýsingum (eins og Facebook og aðrir meginstraumsmiðlar) þá set ég mig ekkert á móti því, vil bara að það sé mjög opið og uppi á borðum áður en ég skrái mig.
Sjá lýsingu í AppStore

- SLAPP-AppStore.png (74.99 KiB) Skoðað 594 sinnum