Síða 1 af 1

Auðkennisappið og millifærsla erlendis

Sent: Lau 28. Feb 2026 08:54
af Fennimar002
Sælir félagar!

hvernig kemst maður að því að borga reikninga og slíkt í gegnum bankaappið með auðkennisappinu þegar það kemur "skannaðu QR kóða" þegar það er enginn QR í hvoru appinu?
Málið er þannig að foreldrar mínir eru í asíu og nota auðkennisappið í stað rafræn skilríki því það hefur ekki alltaf virkað þar úti. Þegar móðir mín ætlar að borga reikninga eða millifæra pening, þá kemur upp "skannaðu QR kóða", en enginn qr kóði kemur upp í bankaappið. Á sama tíma er ekkert hægt að skanna qr kóða af sama síma og auðkennisappið og bankaappið eru á...

Hafa aðrir lent í þessu? Og eru með ráðleggingar?

Re: Auðkennisappið og millifærsla erlendis

Sent: Lau 28. Feb 2026 10:58
af depill
Uppfæra auðkennis appið ? Það er bara verið að auka öryggið á því hvernig við erum að nota rafræn skilrýki.

Þegar auðkennis appið er opnað stendur skanna QR kóða, skannar QR kóðann.

Re: Auðkennisappið og millifærsla erlendis

Sent: Lau 28. Feb 2026 11:15
af Fennimar002
Hvaða QR kóða?
Það kemur hvergi kóði í bankaappinu eða öðru

Re: Auðkennisappið og millifærsla erlendis

Sent: Lau 28. Feb 2026 14:17
af depill
ahh ég misskyldi. Eisn og á island.is er komið QR kóði við auðkenningu.

Ef bankaaðilinn styður ekki QR kóða, þá þegar þau reyna að millifæra eða tengja sig inn, þá kemur bara eins og í síma skilríkjum inní appið beiðni um að skrá inn og að velja númer sem kemur á skjáinn. Það kemur ekki fyrr enn þau reyna að auðkenna sig.