Efni í sjónvarpsþátt

Allt utan efnis

Höfundur
guzt
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Lau 03. Maí 2008 23:32
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Efni í sjónvarpsþátt

Pósturaf guzt » Sun 04. Maí 2008 00:00

Sælir, ég er í Kvikmyndaskólanum og er að vinna að sjónvarpsþætti í sumar. Okkur vantar efni af netinu úr nokkrum erlendum þáttum og ég var spá hvort að einhver gæti boðið mér á Viking Bay svo ég geti downloadað þeim, ég á helling af efni til að halda hlutfallinu góðu þegar ég er kominn inn.

Ef einhver er til í að hjálpa með þennan boðslykil þá er e-mailið: donguzto@hotmail.com - þú færð að sjálfsögðu þakkir í kreditlistanum ;)

Svo var ég líka að spá hvort einhver kann að rippa myndböndum af youtube.com og breyta því í eitthvað viðráðanlegt form eins og mpeg eða .mov? Ég er búinn að prófa nokkur forrit en þau fucka alltaf hjóðinu upp eða virka bara ekki.

kv.
Gústi
donguzto@hotmail.com




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Efni í sjónvarpsþátt

Pósturaf Dazy crazy » Sun 04. Maí 2008 00:12

Það er til youtube ripper og boðslyklaþráðaspurningarnar eiga einungis að fara í þann þráð og boðslyklakerfið kemur ekki í gagnið fyrr en eftir 1-3 mánuði á TVB.


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2768
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Efni í sjónvarpsþátt

Pósturaf zedro » Sun 04. Maí 2008 01:00

Reglurnar skrifaði:Þessar reglur eru til að gera spjallið okkar betra og þægilegra í notkun. Ef allir reyna að fara eftir
þeim verður spjallið mun betri staður til að fræðast og spjalla um tölvur og allt þeim tengt.


1. gr.

Taktu þér tíma og vandaðu uppsetningu, stafsetningu og frágang bréfa.
Bréf sem eru illa gerð verður breytt eða þeim læst/eytt.


2. gr.

Það á að nota lýsandi titla á nýjum bréfum
dæmi: Titillinn á ekki að vera "Hjálp!" eða "Hvort?" heldur frekar
"Vantar hjálp með fps drop í CS" eða "P4 3.0 GHz eða AMD64 3000+?".



3. gr.

Ekki senda inn sama bréfið á tvo eða fleiri mismunandi flokka
Ef þú ert ekki viss um hvar bréfið þitt á heima settu það þá þar sem þér finnst
líklegast að það eigi að vera. Stjórnendur munu svo færa það á réttan stað ef það þarf.



4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.



5. gr.

Breyta takkinn er til að breyta bréfum, ekki til að eyða þeim.
Ef hann væri til að eyða þeim þá myndi hann ekki heita breyta takki. Það er ekki
vel séð að það sé verið að breyta meginmáli bréfs eftir að búið er að svara þeim.



6. gr.

Ekki koma með fullyrðingar ef þú ert ekki viss um það sem þú ert að segja
Segðu t.d."ég held að ef að þú breytir MBR þá breytist partion table ekki" frekar heldur en
"ef að þú breytir MBR breytist partion table ekki" nema þú sért fullkomlega viss.



7. gr.

Undirskriftin má ekki vera meira en tvær línur. Hún má ekki innihalda myndir og má ekki vera of áberandi.
Stjórnendur dæma um hvað er of áberandi og geta eytt henni alveg út ef þeir vilja.


8. gr.

Þú mátt aðeins hafa eitt notandanafn að þessu spjallborði.
Athugið að ekkert mál er fyrir okkur að sjá hverjir eru með tvo eða fleiri notendur.


9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum.



10. gr

Allt ósiðlegt eða ósæmilegt efni er stranglega bannað.
dæmi: rasismi, klám af hvaða toga sem er o.s.frv.


11. gr.

Menn sem eiga hagsmuna að gæta í umræðum sem þeir taka þátt í skulu taka það fram.
dæmi: Starfsmenn tölvu-, síma- eða annara fyrirtækja sem tengjast því sem spjallað er um.


12. gr

Notendur sem brjóta rеglurnar verða áminntir. Notendur sem brjóta rеglurnar alvarlega eða ítrekað verða bannaðir.

13. gr.

Reglum þessum ber að fylgja nema stjórnandi segi annað
Ef stjórnandi segir eitthvað á að fara eftir því óháð þessum reglunum.

14. gr.

Óheimilt er að biðja um eða óska eftir boðslyklum á Istorrent og aðrar Bittorrent síður nema hér.
Brot á þessari reglu leiðir til IP banns á spjallinu!



Reglurnar eru ekki tæmandi, þótt eitthvað sé ekki bannað þá þarf ekki endilega að vera að það sé í lagi, notið skynsemina.

Færð sjens í þetta skipti!


Kísildalur.is þar sem nördin versla