Síða 1 af 2
					
				Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 14:18
				af chaplin
				Ss. mig langar að bora smá í P182 hurðina mína, hvert fer ég? Þarf að vera alveg virkilega vel gert. 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 14:22
				af vesley
				daanielin skrifaði:Ss. mig langar að bora smá í P182 hurðina mína, hvert fer ég? Þarf að vera alveg virkilega vel gert. 

 
Hvað er verið að fara að bora viftu-göt ? 
Best væri bara að fara á næsta verkstæði sem er með svokallað waterjet eða laser cut  eða það held ég allavega 

 . 
Gætir jafnvel sloppið við kostnað ef þú lendir á eitthverjum skemmtilegum kall og þetta taki stuttan tíma.
 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 14:27
				af mercury
				veit að klst á vatnsskurðar vélinni í vinnunni hjá okkur er 20k + maður
svo það er sennilega um 25þús klst
veit ekki hvað það tekur langan tíma að græjja þetta
sennilega enga stund gert.
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 14:34
				af biturk
				fer dáldið eftir hvað gatið er stórt vinur?
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 14:50
				af DabbiGj
				Getur líka bara gert þetta sjálfur ef að þetta er bara einfalt gat að þá geturðu gert þetta sjálfur með dremmel, dregur gatið með sirkli og skerð það út.
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 15:20
				af chaplin
				2 x 140/120mm göt, + 8 x lítil göt fyrir skrúfurnar, myndi reikna með að þetta tæki góðar 2 mínútur ef ég myndi koma með kassa merktan hvar á nákvæmlega að bora, ef einhver þekkir einhvern sem gæti gert þetta (ath. þarf að vera vel gert) að þá má endilega senda mér skilaboð. Annars prufa ég að renna bara á eitthvað verkstæði og sjá hvað þeir myndu taka fyrir það eitt að bora 10 göt, var alveg að vonast til að sleppa undir 25 kallinn haha.. =)
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 15:24
				af biturk
				ef þú átt nægan pening og vilt fá þetta 300% þá ferðu í laser skurð
ef þú ert þokkalega fær í höndunum og vilt þetta 100% þá færðu þér dremmel og sirkil
ef þú ert með góða borvél sem snýst hægt þá færðu þér dósabor fyrir stál og borar
ef þú átt litla járnsög þá geturu borað gat og notað hana, bara bora nokkur göt og saga á milli, pússa síðan með þjöl
neðsta er ódýrust, getu fengið lánað dót og gert sjálfur ef þú hefur tíma og smá þolinmæði, max 1 klt á gat
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 16:04
				af chaplin
				Já en hvað kostar svona laserskurður? Ég á jú peninginn fyrir þessu, en ég fer frekar að sleppa því að hafa hurð, en að fara eyða fleiri þúsundköllum í þetta.  
 
 Svo er reyndar bara gaman að gera þetta sjálfur, á alla bora sem ég gæti hugsanlega þurft en vantar aðstöðuna í þetta littla project og er það eina ástæðan afhverju ég er að leita af "ódýru" verkstæði.
 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 16:09
				af biturk
				veit allaveganna að hjérna á ak að sem hafa svona vél að þeir rukka lágmark klukkutíma fyrir svona, fynnst líklegt að aðrir geri það líka.
ef ég væri þú myndi ég setja batteríið í hleðsu, snúa sirkilinn í gang og staðsetja götin, draga fram 3mm,7mm og 10mm bora og gera göt allan hringinn svona 1 mm frá brún hringsins að innan verðu
síðan bara að ná í litla járnsagablaðið og kúptu fíngerðu stál þjölina og massa detta dáldið.
færð slatta af reinslu og skemmtir þér vel við þetta.
einnig gef ég þér sér ráð að láta borina snúast mjög hægt og hafa kippu af bjór við hendina, bjórinn er nefnilega býsna góður! 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 16:40
				af Black
				þar sem ég var að vinna í sumar..(stálsmiðju) þar notuðum við einhverja vél sem hreinlega þrýsti úr stálinu svona göt xD man ekkert hvað vélin heitir allavega þetta er bara stór gatari, tekur enga stund að gera þetta með svoleiðis vél og hægt að gera það vel myndi prufa fara niðrí einhverja stálsmiðju og sjá hvað þeir taka fyrir að gera svona  

lokkur er vélin kölluð ;þ mundi það alltíeinu, lock lokkur einhvað shit 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 16:43
				af Zpand3x
				daanielin skrifaði:Svo er reyndar bara gaman að gera þetta sjálfur, á alla bora sem ég gæti hugsanlega þurft en vantar aðstöðuna í þetta littla project og er það eina ástæðan afhverju ég er að leita af "ódýru" verkstæði.
Það er bara gaman að gera þetta sjálfur.. gerir þetta bara á skrifborðnu þínu, eða eldhúsborðinu 

 mitt reyndar komið með nokkrar sag línur eftir jigsawið ;P
gætir gert þetta með dremmel 

 hallar honum bara í 45 ° eins og er 
kennt hér og 
hér og það eru engin mörk á hversu nákvæmt þú getur gert þetta .. það er bara í hlutfalli við tímann sem þú tímir í þetta.
Ég persónulega myndi gera þetta sjálfur í stað þess að borga 20 þús fyrir hárfín smáatriði sem enginn tekur eftir. getur fengið dremmel í byko á 9 þús kall 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 17:24
				af biturk
				Black skrifaði:þar sem ég var að vinna í sumar..(stálsmiðju) þar notuðum við einhverja vél sem hreinlega þrýsti úr stálinu svona göt xD man ekkert hvað vélin heitir allavega þetta er bara stór gatari, tekur enga stund að gera þetta með svoleiðis vél og hægt að gera það vel myndi prufa fara niðrí einhverja stálsmiðju og sjá hvað þeir taka fyrir að gera svona  

lokkur er vélin kölluð ;þ mundi það alltíeinu, lock lokkur einhvað shit 

 
lokkurinn er sniðugur
gallinn við hann er að hann þrýstir stálinu niður og þar með er hætta á að hann muni beygla þetta leiðinlega mikið.
fékk mikið að nota hann þegar ég var í grunndeild málmiðna 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 18:39
				af Klaufi
				Sæll,
Ég get lánað þér Dremel ef þú vilt kíkja á þetta sjálfur..
Ég skar út 2x 120mm göt í toppa og Múmínálfa lógó (Múmínálfur með Ak47 vélbyssu) í hliðar á þrjá kassa með dremel, með þolinmæði er hægt að gera þetta alveg 100%
Ef þú ferð með þetta í vatnsskurð þá þyrftirðu á flestum stöðum að koma með CAD teikningu af þessu býst ég við, flestar vatnskurðarvélar taka CAD teikningar beint en sumsstaðar þarftu að borga fyrir að láta breyta því yfir í format sem vélin tekur..
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 18:52
				af chaplin
				Sæll klaufi, ég gæti þurft að fá hann lánaðann hjá þér ef það væri í lagi, annars gæti ég reyndar gert CAD teikningar, en getur vel verið að þeir myndu samt rukka mig fyrir það sama.. Ég verð kannski í bandi í vikunni. =)
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 18:57
				af vesley
				daanielin skrifaði:Sæll klaufi, ég gæti þurft að fá hann lánaðann hjá þér ef það væri í lagi, annars gæti ég reyndar gert CAD teikningar, en getur vel verið að þeir myndu samt rukka mig fyrir það sama.. Ég verð kannski í bandi í vikunni. =)
Mæli með að kaupa málmplötu á klink og æfa þig aðeins áður en þú ferð að bora útum allt á hurðinni 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Lau 27. Nóv 2010 22:19
				af Gets
				Sammála, alltaf gott að gera smá prufu og æfa sig smá þegar ráðist er í eitthvað nýtt, útkoman verður oftast skemmtilegri.
Og til að gera prufu og æfa sig er til dæmis gott að merkja bara 120mm gat þar sem 140mm gatið á að koma og prófa að skera, þú sérð svo fljótlega hvernig þú veldur þessu og getur þá sagað 140mm gatið  

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Sun 28. Nóv 2010 03:48
				af Dazy crazy
				Ég skar úr kassa með stingsög bara, hafði hana bara á "sheet metal" stillingunni 

 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Sun 28. Nóv 2010 14:06
				af DabbiGj
				Það er líka hætta á að þú skemmir málninguna ef að þú ferð að bora eða skera í hurðina, notaðu málningarlímband í kringum allt sem að þú skerð  og notaðu síl áður en að þú borar.
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 11:24
				af Klaufi
				daanielin skrifaði:Sæll klaufi, ég gæti þurft að fá hann lánaðann hjá þér ef það væri í lagi, annars gæti ég reyndar gert CAD teikningar, en getur vel verið að þeir myndu samt rukka mig fyrir það sama.. Ég verð kannski í bandi í vikunni. =)
Ég var búinn að gleyma þessu, vertu bara í bandi, minnsta málið.. Get látið þig hafa blikkplötu með til að æfa þig á..
 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 13:07
				af Nördaklessa
				hvenrig væri bara að hafa þetta einfallt og nota Dósabor?
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 13:48
				af Pandemic
				Nördaklessa skrifaði:hvenrig væri bara að hafa þetta einfallt og nota Dósabor?
Ég kvitta fyrir það að það virkar ekki vel, gatið verður ljótt og svo fann ég hvergi dósabor sem virkar á járn.
 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 15:04
				af DabbiGj
				Það er alveg hægt að nota dósabor á málma, það sem ða þarf að gera er einfaldlega að vera með dósabor fyrir málma og ef að menn eru ekki alveg að ná að fá lánaða bora í þetta eða týma ekki 10.000  krónum sem að góður  92 - 100mm bor kostar að þá er hugsanlega hægt að nota trébor ef að það er farið alveg rosalega hægt og skurðarolía er notuð.
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 15:09
				af Klaufi
				DabbiGj skrifaði:Það er alveg hægt að nota dósabor á málma, það sem ða þarf að gera er einfaldlega að vera með dósabor fyrir málma og ef að menn eru ekki alveg að ná að fá lánaða bora í þetta eða týma ekki 10.000  krónum sem að góður  92 - 100mm bor kostar að þá er hugsanlega hægt að nota trébor ef að það er farið alveg rosalega hægt og skurðarolía er notuð.
Þetta er svo þunnt að það eru 90% líkur á að tennurnar í trédósabór myndi naga kantana með sér og beygja þá.
 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 15:11
				af chaplin
				Nokkuð viss um að hurðin sé úr plasti + gúmmí á milli.
			 
			
					
				Re: Hvert fer ég til að láta bora í hurðina hjá mér?
				Sent: Fös 03. Des 2010 15:30
				af spankmaster
				ein spurning, hvar fær maður dremel í dag? held að þeir séu hættir að selja svoleiðis í byko, var allaveganna ekki til þegar ég tékkaði síðast, sem er reyndar orðið soldið síðan 
](./images/smilies/eusa_wall.gif)