Síða 81 af 88

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 06. Des 2020 22:29
af Haffi
Þetta virtist vera einhver hugbúnaðarvilla hjá mér. Uppfærði Google Messages og fékk öll sms-in í einni kássu!

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 21. Des 2020 08:51
af MrIce
Fleiri að lenda í downtime atm? Allt niðri hjá mér

-edit-

ljósleiðaraboxið var komið á reboot tíma... ](*,)
allt komið aftur

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 09:20
af Hjaltiatla
Er að lenda í niðritíma.búinn að endurræsa ljósleiðarabox og router. Internal IP tölur aðgengilegar en ekki t.d 8.8.8.8
Er á línunni hjá hringdu ATM

Edit: Það er bilun í gangi hjá Hringdu skv þjónustuveri, það er verið að vinna að úrlausn.
Það væri ljómandi gott ef HringduEgill gæfi okkur update þegar mál er leyst. Er þessa stundina að vinna í gegnum 4g á símanum og svissa aftur yfir þegar búið er að leysa málið.

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 09:37
af Hjaltiatla
Til upplýsinga: Netið er allavegana komið upp aftur hjá mér

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 09:39
af HringduEgill
Hæ!

Þetta var okkar megin, biðst innilega afsökunar. Það klikkaði eitthvað í stækkun á sambandi á móti Gagnaveitunni en á núna að vera komið í lag.

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 09:39
af hallihg
Allt niðri hér

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 09:46
af HringduEgill
hallihg skrifaði:Allt niðri hér


Sælir! Samkvæmt mínum mönnum á allt að vera komið í lag, gætirðu sent mér skilaboð með kennitölu svo ég geti skoðað?

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 09:47
af hallihg
Komið í lag núna takk

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 11:44
af Dropi
Kannski útúrdúr en ég lagði mér leið á aðsetrið ykkar í Ármúla á laugardaginn, þar stendur á miða að opið sé laugardaga en það var allt í lás og slá. Sé núna á google maps að það er lokað laugardaga... hefði átt að athuga þar fyrst.

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 12:15
af HringduEgill
Dropi skrifaði:Kannski útúrdúr en ég lagði mér leið á aðsetrið ykkar í Ármúla á laugardaginn, þar stendur á miða að opið sé laugardaga en það var allt í lás og slá. Sé núna á google maps að það er lokað laugardaga... hefði átt að athuga þar fyrst.


Sælir! Var að double tékka hvort við værum með einhvern gamlan miða uppi en það stendur á núverandi miða að lokað sé um helgar. Kemur hins vegar fram opnunartími í þjónustuveri á laugardögum og sunnudögum, gæti kannski hafa slegist saman?

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 08. Feb 2021 12:38
af Dropi
HringduEgill skrifaði:
Dropi skrifaði:Kannski útúrdúr en ég lagði mér leið á aðsetrið ykkar í Ármúla á laugardaginn, þar stendur á miða að opið sé laugardaga en það var allt í lás og slá. Sé núna á google maps að það er lokað laugardaga... hefði átt að athuga þar fyrst.


Sælir! Var að double tékka hvort við værum með einhvern gamlan miða uppi en það stendur á núverandi miða að lokað sé um helgar. Kemur hins vegar fram opnunartími í þjónustuveri á laugardögum og sunnudögum, gæti kannski hafa slegist saman?


Pottþétt :happy

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 14. Feb 2021 19:12
af ZiRiuS
Erlenda netið eitthvað hægt hjá fleirum en mér?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 13:16
af jericho
Netið búið að vera úti hjá mér síðan á hádegi.
Eitthvað að frétta af viðgerð?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 13:18
af kjartanbj
Fór út fyrst hjá mér snemma í morgun, kom því inn með því að skipta um nafnaþjón eins og
Ég fengi ekki route á þá, cloud flare og annar Google þjónninn virkaði ekki td, en 8.8.8.8 virkaði, síðan um hádegi datt allt út og hefur ekki komið inn síðan

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 13:54
af Climbatiz
netið er líka niðri hjá mér, nota hringdu dns servera, datt út núna um hádegi

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 14:00
af thrkll
Af Facebook síðu Hringdu:

Uppfært: Alvarleg bilun er nú í miðlægum búnaði sem hefur áhrif á netsamband flestra tenginga. Unnið er að greiningu og lausn. Við biðjumst innilega afsökunar á þessum óþægindum og þökkum þolinmæðina.
Vegna bilunnar geta viðskiptavinir fundið fyrir netleysi þessa stundina. Tæknimenn vinna að lausn og biðjumst við velvirðingar á þessum truflunum.


Þessi tilkynning var fyrst sett inn um kl. 9 í morgun. Einhver segist í athugasemd hafa orðið netlaus kl. 6.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 14:02
af Climbatiz
var akkúrat að fá sms frá hringdu með þetta sama quote

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 14:16
af Uncredible
Fór heim í hádeginu, netlaust heima. Konan sagði að það hefði allavega verið net í morgun og að það hafi orðið netlaust sirka 11:30.

Hef ekki fengið neitt SMS.

Nennti ekki að prófa breyta um DNS á router þegar ég var heim áðan, en geri það ef það er ennþá netlaust þegar maður kemur heim úr vinnunni.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 14:29
af Dropi
Skrapp heim í hádeginu og allt úti, símkerfið í vinnuni er líka búið að vera lamað í allan dag en internetið þar virkar eðlilega. Allt Hringdu.
Nota 1.1.1.1 og 8.8.8.8 dns.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 14:40
af kjartanbj
Netið er komið inn

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 19:33
af growler
Það er spurning hvort þeir muni bæta manni upp tekjutap af þessu downtime í dag, eða í það minnsta bjóða manni fríann mánuð fyrir þetta. Þetta er óafsakanlegt.
Það er kannski spurning að færa sig yfir á traustari netþjóstustu.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 19:49
af arons4
growler skrifaði:Það er spurning hvort þeir muni bæta manni upp tekjutap af þessu downtime í dag

Gera þeir það ekki með því að vera ódýrari en hinir?

Þetta voru 3 klukkutímar.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 20:19
af Cozmic
arons4 skrifaði:
growler skrifaði:Það er spurning hvort þeir muni bæta manni upp tekjutap af þessu downtime í dag

Gera þeir það ekki með því að vera ódýrari en hinir?

Þetta voru 3 klukkutímar.


Nei. Netið fór niður um 3 um nóttina hjá mér og var ekki komið kl 11 í dag áður en ég fór í vinnuna, sumir tilkynntu vesen kl 1300 og 1400 í dag t.d þannig allavegana rúmir 12 tímar.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 20:28
af growler
Það er spurning hversu mikils virði það er fyrir þig að hafa netþjónustu sem þú getur treyst á.
Og hversu miklum fjármunum þú tapar þegar netþjónustan þín bregst þér.
Tjónið af þessum 3 tímum getur verið mun meira en sparnaðurinn af því að vera með örlítið ódýrari netþjónustu.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 06. Maí 2021 20:51
af urban
growler skrifaði:Það er spurning hversu mikils virði það er fyrir þig að hafa netþjónustu sem þú getur treyst á.
Og hversu miklum fjármunum þú tapar þegar netþjónustan þín bregst þér.
Tjónið af þessum 3 tímum getur verið mun meira en sparnaðurinn af því að vera með örlítið ódýrari netþjónustu.


Er það þá ekki eitthvað sem að þú ættir að spá í áður en þú kaupir þá ódýrustu ?
Án þess að hafa neinar tölur um það, þá myndi ég halda að síminn væri lang öruggastur uppá uppitíma að gera.
Þú líka borgar meira þar en annar staðar.