Síða 1 af 1
					
				Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 00:47
				af reyndeer
				Vá! ég var heppinn að geta hent inn þessum þræði, ég held að þetta mikla sólgos sem var í gær/(í dag) sé að fucka öllu þráðlausa stöffinu mínu upp! Ég er varla að fá neitt down né up á tengingunni, búinn að restarta öllu (þ.á.m. reinstalla driverum og laga TCP/IP), og þráðlausu headphonin mín hljóma eins og tómar dósir sem verið er að slá í með kjuða 

Einhver annar að upplifa svona núna???
 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 00:49
				af GuðjónR
				Hvar ertu á landinu?
Þú veist að þetta er bara byrjunin, árið 2012 ná sólgosin fordæmalausu hámarki og þá verður heimsendir!  

 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 00:50
				af reyndeer
				Er í Rvk. Jamm, verður heldur betur gaman 2012, heimsendir og alles...
			 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 00:57
				af Glazier
				Ég held þú ættir bara að fara að leggja þig.. greinilega orðinn þreyttur 

 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 02:20
				af kubbur
				Ég var einmitt að pæla i þessu i dag þegar ég sat inná kaffihúsi með félaga mínum að prófa wifi tethering okkar a milli
			 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 02:53
				af Frost
				Veit ekkert hvort þetta sé útaf gosinu en er búinn að vera í vandamáli að tengjast netinu þegar ég er að kveikja á tölvunni. Þarf alltaf að restarta routernum.
			 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 05:23
				af B550
				þráðlausa netið í borðtölvuni er alveg búna vera í 1-2 strikum í allan dag (er venjulega í 5)
			 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 12:07
				af flottur
				Já ok, gæti það hafa verið málið í gær hjá mér.
tölvan fór að hegða sér furðulega og winamp var á flakki um tölvuskjáinn, flakkarar að aftengjast og þráðlausa lykklaborðið mitt var eitthvað pirrað.
vei heimsendir í nánd.......hvað ætli taki við?
			 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 12:38
				af Frantic
				flottur skrifaði:vei heimsendir í nánd.......hvað ætli taki við?
Snúrur?  

 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 13:24
				af Frost
				Maður samt spyr sig. Sólin er núna að vakna eftir 4 ár án solgoss... Það er spáð stærsta sólgosinu árið 2013. Þetta eru bara svona pælingar hvort 2012 gæti gerst 

 
			
					
				Re: Bilanir á þráðlausu vegna sólgoss
				Sent: Lau 19. Feb 2011 14:02
				af Blackened
				ég hef nú bara alla tíð notað snúru úr tölvunni í Routerinn og ég hef barasta ekki orðið neitt var við neinar truflanir 
 
 svo að snúrur eru klárlega lausnin við heimsendi!