Síða 1 af 2
					
				Mottumars !
				Sent: Fös 04. Mar 2011 20:51
				af kubbur
				jæja vaktarar, ég veit að stór hluti af ykkur notar strokleður til að raka sig en engu að síður þá er hér hópur sem ég veit að þarf að nota sköfuna svona eins og einstaka sinnum
sendið inn link á prófílinn ykkar
http://www.mottumars.is/keppnin/keppandi?cid=1263 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 14:56
				af kubbur
				greinilega hærri fjöldi en ég hélt sem notar ennþá strokleður
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 15:02
				af ManiO
				Þetta er bara út um allt á netinu, maður myndi ekkert kvarta ef að vaktin væri laus við þetta  

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 15:05
				af Frost
				ManiO skrifaði:Þetta er bara út um allt á netinu, maður myndi ekkert kvarta ef að vaktin væri laus við þetta  

 
Amen 

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 15:19
				af Páll
				Gerið vaktin team!
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 15:55
				af gardar
				Auðvitað tekur maður þátt í mottumars 

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 17:54
				af biturk
				ManiO skrifaði:Þetta er bara út um allt á netinu, maður myndi ekkert kvarta ef að vaktin væri laus við þetta  

 
sumir sárir yfir því að þeim vex ekki skegg 

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 22:36
				af kubbur
				á ég virkilega að trúa því að það séu bara tveir vaktarar sem taka þátt í þessu ?
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 22:44
				af ManiO
				biturk skrifaði:ManiO skrifaði:Þetta er bara út um allt á netinu, maður myndi ekkert kvarta ef að vaktin væri laus við þetta  

 
sumir sárir yfir því að þeim vex ekki skegg 

 
Þó svo að skeggvöxturinn minn gæti verið þéttari þá er ég engan veginn sár yfir því, væri í raun frekar til að vera alveg skegglaus  

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 22:50
				af bulldog
				í gamla daga var þetta kallað að vera TAÐSKEGGLINGUR  

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 22:52
				af oskar9
				ég er bara svo sóðalegur með svona mottu þannig að ég tek mér breik frá þessum svokallaða mottumars hehe
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 23:38
				af Daz
				kubbur skrifaði:jæja vaktarar, ég veit að stór hluti af ykkur notar strokleður til að raka sig en engu að síður þá er hér hópur sem ég veit að þarf að nota sköfuna svona eins og einstaka sinnum
sendið inn link á prófílinn ykkar
http://www.mottumars.is/keppnin/keppandi?cid=1263 
Þegar þú setur inn mynd af þér með mottu, þá skal ég linka minn prófæl (eða búa hann til og linka hann svo). 
Annars var konan að reka á eftir mér að taka þátt, sé ekki alveg að ég nái að safna fleiri áheitum en bara því sem hún myndi gefa (eða safna almennilegri mottu, tekur mig örugglega allan mars...)
 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 23:51
				af kubbur
				Daz skrifaði:kubbur skrifaði:jæja vaktarar, ég veit að stór hluti af ykkur notar strokleður til að raka sig en engu að síður þá er hér hópur sem ég veit að þarf að nota sköfuna svona eins og einstaka sinnum
sendið inn link á prófílinn ykkar
http://www.mottumars.is/keppnin/keppandi?cid=1263 
Þegar þú setur inn mynd af þér með mottu, þá skal ég linka minn prófæl (eða búa hann til og linka hann svo). 
Annars var konan að reka á eftir mér að taka þátt, sé ekki alveg að ég nái að safna fleiri áheitum en bara því sem hún myndi gefa (eða safna almennilegri mottu, tekur mig örugglega allan mars...)
 
kanski ekki þykkasta motta í heimi, en mér finnst þetta vera skárra en ekkert 

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Lau 05. Mar 2011 23:52
				af Daz
				kubbur skrifaði:kanski ekki þykkasta motta í heimi, en mér finnst þetta vera skárra en ekkert 

 
Ég var ekki að gagnrýna þykktina, það kæmi úr ansi harðri átt, heldur staðreyndina að þú ert ekki með mottu, þú ert með alsherjar andlitshár. Rakað þetta niður í mottu og við tölum saman.
 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 00:02
				af kubbur
				þá er þetta svo latino legt, skal hugsa málið, finnst hitt svo þægilegt
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 00:05
				af beatmaster
				"hitt" er ekki motta
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 00:12
				af kubbur
				beatmaster skrifaði:"hitt" er ekki motta
haha nei ég veit, en mottan er samt þarna
 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 00:21
				af Daz
				Ætli það sé ekki hægt að skilgreina mottu sem skeggvöxt ( í andliti) þar sem meirihluti vaxtarins er sýnilegur á efri vör (sumar mottur ná langt niður á höku). 
Eina undantekningin væri þá motta + bartar. 
Varðandi að það líti ekki nógu vel út þá held ég að fáir séu að fara út í mottusöfnin til að líta vel út, þetta er málefni sem þarf að vekja athygli á og ekki verra að safna pening í leiðinni.
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 00:33
				af teitan
				
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 06:07
				af urban
				ManiO skrifaði:biturk skrifaði:ManiO skrifaði:Þetta er bara út um allt á netinu, maður myndi ekkert kvarta ef að vaktin væri laus við þetta  

 
sumir sárir yfir því að þeim vex ekki skegg 

 
Þó svo að skeggvöxturinn minn gæti verið þéttari þá er ég engan veginn sár yfir því, væri í raun frekar til að vera alveg skegglaus  

 
tjahh skeggvöxtur minn jú gæti svo sem alveg verið þéttari.
en ég er einmitt sammála þér í því að ég væri frekar til í að vera skegglaus.
finnst það einmitt vera helst þeir sem að langar í skegg og þéttaraskegg (semsagt vex helst ekki skegg) sem að tala svona
það leiðinlegasta sem að ég geri er að raka mig, og ég væri svo til í að vera laus við skeggið.
en já, ég tek ekki þátt í  mottu mars, tjahh ég svo sem er yfirleitt með 3+daga skegg (og uppí 14dagaskegg) en það er bara vegna þess að ég einmitt nenni ekki að raka mig
þar að auki ef að ég ætti að raka mig fyrir utan mottuna, þá væri bara talað við mig á pólsku og ég nenni því engan vegin 

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 21:00
				af natti
				http://www.mottumars.is/keppnin/keppandi?cid=1407(myndin er í sloppy gæðum, tekin á innbyggða webcam á macbook, betri myndir þegar líða tekur á mánuðinn)
Auðvitað er maður endalaust sóðalegur með þetta.
Á ekki von á neinum/miklum áheitum, en meina, þetta vekur umræðu, sem að er 90% af hugmyndinni.
Svo finnst mér frábært að fá einn mánuð á ári sem ég "rakað á mig" yfirvaraskegg og gert tilraunir með að líta út einsog ég veit ekki hvað, án þess að konan hafi neitt um þetta að segja. (Hún bíður með eftirvæntingu eftir að ég raki þetta af.)
 
			 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 21:36
				af axyne
				Var búinn að undurbúa mig í 2 vikur, en konan var ekki ánægð með útkomuna svo mottan var látin fara.  

 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 21:46
				af coldcut
				axyne skrifaði:Var búinn að undurbúa mig í 2 vikur, en konan var ekki ánægð með útkomuna svo mottan var látin fara.  

 
 
 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Sun 06. Mar 2011 21:56
				af Kobbmeister
				axyne skrifaði:Var búinn að undurbúa mig í 2 vikur, en konan var ekki ánægð með útkomuna svo mottan var látin fara.  

 
Safnaðu bara í Burt Reynolds og hún getur ekkki neitað þér 
 http://celebrityroast.com/wp-content/up ... stache.jpg
http://celebrityroast.com/wp-content/up ... stache.jpg 
			
					
				Re: Mottumars !
				Sent: Mán 07. Mar 2011 00:14
				af Jim
				Ég er of ungur til að safna í almennilega mottu en ég styð alla þáttakendur! Ég verð víst að láta mér nægja barmmerkið.