Síða 1 af 1

Breyta rafbókum frá Forlaginu yfir á Epub

Sent: Mið 26. Des 2012 15:09
af capteinninn
Foreldrar mínir keyptu tvær rafbækur frá Forlaginu og Forlagið vill að ég nái í eitthvað Bluefire reader til að geta lesið þetta á iPadinum
Þeir leyfa ekki heldur að lesa þær á Kindle

Veit einhver leið til að breyta bókunum frá þessu formatti yfir á epub svo ég geti lesið þessar bækur með iBook og Kindle græjum í staðinn fyrir þessu forriti sem þeir vilja að sé notuð?

Re: Breyta rafbókum frá Forlaginu yfir á Epub

Sent: Mið 26. Des 2012 15:56
af Pandemic
Ættir að geta notað http://calibre-ebook.com/

Re: Breyta rafbókum frá Forlaginu yfir á Epub

Sent: Mið 26. Des 2012 17:58
af Kobbmeister
Til að lesa þetta á kindle þá þarftu að taka DRM í burtu fyrst og svo nota calibre til að setja inná kindle-inn.
Annars ætti Aldiko að virka mikið betur til að lesa þessar bækur á iOS eða android heldur en bluefire reader.

Re: Breyta rafbókum frá Forlaginu yfir á Epub

Sent: Mið 26. Des 2012 22:51
af capteinninn
Okei ég prufa að setja upp Aldiko á iPadinum hjá foreldrunum.

Mér finnst þetta vera svo röng aðferð við að selja þessar bækur, það er enginn að fara að deila þeim á netinu og það er miklu frekar að leyfa fólki að stjórna því hvernig það les bækurnar