Síða 1 af 2
Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 03:30
af Tonikallinn
Veit einhver um ódýran, þægilegan "leikja stól" sem er ekki úr leðri?
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 07:46
af Njall_L
Re: RE: Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:01
af Tonikallinn
Þeir eru úr leðri.... vill helst ekki leður því að það er ekkert svakalega gaman að reyna að standa upp þegar maður er búinn að sitja lengi.... xD
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:27
af Urri
http://www.rumfatalagerinn.is/stok-vara ... 9828d462dchvað með eithvað svona

er svipað og þetta sem ég hef notað seinustu 5 árin...
Re: RE: Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:28
af Tonikallinn
Urri skrifaði:http://www.rumfatalagerinn.is/stok-vara/Tulsa-rafmagns-haegindastoll-dokkbrunn/?CategoryId=c4611289-0b51-4018-b0b1-119828d462dc
hvað með eithvað svona

er svipað og þetta sem ég hef notað seinustu 5 árin...
Vill helst geta hreyft stólinn um léttilega og svo er þetta svolítið dýrt
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:34
af Urri
http://www.rumfatalagerinn.is/stok-vara ... 9828d462dcer reyndar á tilboði núna fyrir 1/3 af verðinu á hinum en það eru ekki eins góðir púðar fyrir hendurnar en það er hækt að búa til eithvað fyrir músina
En annars ertu þá að tala um að hann yrði að vera á hjólum ?
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:37
af Tonikallinn
Urri skrifaði:http://www.rumfatalagerinn.is/stok-vara/Madison-rafknuinn-lyftistoll/?CategoryId=c4611289-0b51-4018-b0b1-119828d462dc
er reyndar á tilboði núna fyrir 1/3 af verðinu á hinum en það eru ekki eins góðir púðar fyrir hendurnar en það er hækt að búa til eithvað fyrir músina
En annars ertu þá að tala um að hann yrði að vera á hjólum ?
pretty much já. Vill ekki skrifstofustóla lengur því leðrið festist við bæði bak og læri ef maður er á næríunni og ber að ofan. Er með skrifstofustól sem ég hef ekkert notað síðan ég keypti hann. Er frekar í sófa sem er uppvið skrifborðið
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:40
af Urri
Ég skil þig ósköp vel Leðrið klístrast við mann, en allanvegana hef ég góða reynslu af þessari týpu af stólum til að nota við tölvuna (vera með þráðlaust sett og sit með lyklaborðið í kjöltunni og músina á þykkum barmi stólsins).
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:46
af Tonikallinn
Urri skrifaði:Ég skil þig ósköp vel Leðrið klístrast við mann, en allanvegana hef ég góða reynslu af þessari týpu af stólum til að nota við tölvuna (vera með þráðlaust sett og sit með lyklaborðið í kjöltunni og músina á þykkum barmi stólsins).
er ekki viss hvort stóllin er nógu hár fyrir mig, er ekki með wireless
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:56
af Jonssi89
https://www.ikea.is/products/38777 þessi er ekki með leðri. Besta stóll sem ég hef átt
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 12:58
af Tonikallinn
Jonssi89 skrifaði:https://www.ikea.is/products/38777 þessi er ekki með leðri
Þessi lítur ágætlega út. Spurningin er reyndar hvort það sé þægilegt að sitja í langann tíma í þessum? Sagði leikjastóll því þeir eru hannaðir fyrir þannig
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 13:36
af Njall_L
Getur prófað þennan, hann er allavega með leikjalúkkið og ekki úr leðri
http://www.rumfatalagerinn.is/stok-vara ... a90f1bf326Annars myndi ég bara fara í Ikea, Rúmfó, Hirzluna og þannig búðir til að prófa. Það er hægt að benda endalaust á eitthvað en þú einn getur fundið hvað er gott fyrir þinn líkama. Flestir stólar sem að eru stílaðir inn á leiki eru úr einhverskonar Pleather efni. Myndi alls ekki útiloka stól úr neti ef ég væri í þinum sporum eins og Jonssi benti á.
Hinsvegar þar sem þú ert að horfa á stól sem að er þæginlegt að sitja í til lengri tíma þá ættirðu að skoða alvöru skrifstofustól. "Leikjastólar" eru upp til hópa hannaðir frekar til að lúkka vel og vera þæginlegir á meðan að skrifstofustólarnir eru hannaðir til að veita réttan stuðning við líkamann þegar að setið er í þeim til lengri tima.
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 13:37
af ZoRzEr
Markus stóllinn er ágætur. Átti einn í mörg ár sem ég notaði aðalega við tölvuna. Fínt að geta hallað sér i honum og bakið er net þannig það loftar vel. Sessan er ekki sú besta, hálf stíf og þreytir stundum afturendann. Einnig eru armpúðarnir soldið harðir og ekki hægt að hreyfa þá neitt. Endilega bara að prófa hann í IKEA. Hann er í skrifstofu deildinni og ef ég man rétt þá er einn við eitt skrifborð til að prófa.
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 14:22
af Jon1
ég er í sömu pælingum go spenntur að sjá hvað kemur útur þessu ! á markus stól núna sem er orðinn gamall og langar í eitthvað með betri sessu
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 14:24
af Tonikallinn
Og líka svona off-topic. Góð headset? Var með fína áður en þau biluðu og ég keypti einhver léleg á 10k
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 14:30
af baldurgauti
https://www.ikea.is/products/16390 þessi er góður, keypti mér hann í fyrra

Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 15:38
af Jon1
Tonikallinn skrifaði:Og líka svona off-topic. Góð headset? Var með fína áður en þau biluðu og ég keypti einhver léleg á 10k
ef þú gott sound en samt headset þá fannst mér game zero bara í sínum egin flokki með það! annars modmic og góð headphone er líka alltaf mjög valid leið
Re: Leikjastóll
Sent: Fös 16. Sep 2016 15:52
af Tonikallinn
Jon1 skrifaði:Tonikallinn skrifaði:Og líka svona off-topic. Góð headset? Var með fína áður en þau biluðu og ég keypti einhver léleg á 10k
ef þú gott sound en samt headset þá fannst mér game zero bara í sínum egin flokki með það! annars modmic og góð headphone er líka alltaf mjög valid leið
mig langar nú helst að setja budget á 20-30k
Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 10:32
af Alfa
Ég veit ekki með þig en ég sit stundum 4-8klst í þessum straight í Battlefield og límist ekki við hann, þrátt fyrir að hann sé að hluta gervileður.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/AK_Rac ... etail=true
Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 10:47
af HalistaX
Við Tonikallinn erum náttúrulega svo hágæða menn að við spilum alltaf leiki naktir... og erum helst að live stream'a á meðan á Twitch.
En for realsies, ekki kaupa þér einn á 20k úr Ikea eða Rúmfatalagernum. Þeir lúkka vel og eru alveg þæginlegir, en þeir endast ekki neitt.
Sparaðu bara í tvo mánuði í viðbót og fáðu þér alvöru stól eins og Alfa linkar á. Það er eina vitið

Re: RE: Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 11:24
af Tonikallinn
HalistaX skrifaði:Við Tonikallinn erum náttúrulega svo hágæða menn að við spilum alltaf leiki naktir... og erum helst að live stream'a á meðan á Twitch.
En for realsies, ekki kaupa þér einn á 20k úr Ikea eða Rúmfatalagernum. Þeir lúkka vel og eru alveg þæginlegir, en þeir endast ekki neitt.
Sparaðu bara í tvo mánuði í viðbót og fáðu þér alvöru stól eins og Alfa linkar á. Það er eina vitið

Ég verð að athuga það. Er bara að bíða eftir að ég finni stöðuga vinnu því mig langar ekki að eyða öllu sem ég á
Re: RE: Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 11:42
af HalistaX
Tonikallinn skrifaði:HalistaX skrifaði:Við Tonikallinn erum náttúrulega svo hágæða menn að við spilum alltaf leiki naktir... og erum helst að live stream'a á meðan á Twitch.
En for realsies, ekki kaupa þér einn á 20k úr Ikea eða Rúmfatalagernum. Þeir lúkka vel og eru alveg þæginlegir, en þeir endast ekki neitt.
Sparaðu bara í tvo mánuði í viðbót og fáðu þér alvöru stól eins og Alfa linkar á. Það er eina vitið

Ég verð að athuga það. Er bara að bíða eftir að ég finni stöðuga vinnu því mig langar ekki að eyða öllu sem ég á
Skil þig fullkomnlega, er í sömu hugleiðingum núna. En þetta slys mitt setur smá strik í reikninginn. Kannski að hægt sé að væla út bætur, ég veit það ekki...
En allavegana, já, þá eru stólar ein af þeim vörum sem borgar sig ekki að skimp'a á, því allar líkur eru á því að þú eigir eftir að eyða 1/3 af lífi þínu í honum og þú vilt ekki standa upp einn daginn og fatta það að þú sért með ónýtt bak útaf litlu sem engu bak support'i.
Kannski ekki alveg að kaupa sér stól á 150-200k, það finnst mér vera overkill, en að finna eitthvað þæginlegt, sem er þæginlegt að sitja á í marga klukkutíma í senn og sem styður á þér bakið almennilega.
Re: RE: Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 12:33
af Jon1
HalistaX skrifaði:En allavegana, já, þá eru stólar ein af þeim vörum sem borgar sig ekki að skimp'a á, því allar líkur eru á því að þú eigir eftir að eyða 1/3 af lífi þínu í honum og þú vilt ekki standa upp einn daginn og fatta það að þú sért með ónýtt bak útaf litlu sem engu bak support'i.
Kannski ekki alveg að kaupa sér stól á 150-200k, það finnst mér vera overkill, en að finna eitthvað þæginlegt, sem er þæginlegt að sitja á í marga klukkutíma í senn og sem styður á þér bakið almennilega.
þetta er það sem ég er að hugsa, ég er mikið við tölvu sama hvað ég er að gera, eru svona körfu stólar góðir ? ég er svo hræddur við þetta leikjastóla æði sem er að ganga. mig persónulega langar að finna stól sem hægt er að leggja svoldið aftur og letingjast í og þess á milli sitja rétt með góðan bak stuðning. var búinn að horfa á þennann
http://hirzlan.is/product/open-point-sk ... rettyPhoto
Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 12:51
af Alfa
Ef það er eitthvað til að miða við þá er ég 115lg af 25 árum af lyftingum og ofáti og ég get lagst 180gr ì minn. En ég geri það aldrei svo langt. Varð bara prufa. Svona körfustòlar eru ekki fyrir alla þò.
Re: Leikjastóll
Sent: Þri 20. Sep 2016 12:57
af Jon1
hvað ertu hár ? ég er sirka 190 cm ( 189 >.< ) !