Síða 1 af 1
Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 21:39
af jonsig
Sælir
Ég skil þetta ekki
http://www.visir.is/meginahersla-a-jafna-stodu-allra-kynja-i-mannrettindastefnu-borgarinnar/article/2016161018688?fb_action_ids=10154494275168213&fb_action_types=og.commentsokey flott málefni með skattpeningunum mínum ,en svo skoðar maður starfsmenn mannréttindastofu.
http://reykjavik.is/skrifstofaogsvid/starfsfolk-mannrettindaskrifstofuMér finnst þetta hræsni á hæsta stigi 9/10 eru kvk. Og hef engan sérstakan áhuga á að skattpeningarnir mínir fari í einhverja hræsnara drullu.
Er ég svona skrítinn og afturhaldssinni,sem skil ekki að konur geta aðeins komið þessu í kring að jafna vestrænt kynjamisrétti ?
jafnréttisstofa er svipað dæmi
http://www.jafnretti.is/jafnretti/?D10cID=Page3&ID=606/7 eru konur..
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 21:43
af Manager1
Jafnréttisbaráttan hefur alltaf snúist um það að jafna hlut kvenna. Þegar minnst er á að karlmenn eru líka í minnihluta í mörgum stöfum horfa konur yfirleitt í hina áttina og segja "svona er þetta bara" eða eitthvað álíka.
En á hinn bóginn má líka færa rök fyrir því að karlar sækist lítið eftir því að fá jafnan hlut og konur í þeim störfum sem þær eru í meirihluta og þessvegna fer lítið fyrir þeirri baráttu.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 21:48
af urban
Ef að þú hefur áhuga á, þá færðu alveg áræðanlega vinnu á jafnréttisstöðu, getur þannig bæði komið þínum sjónarmiðum á framfæri og jafnað ójafnréttið.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 21:50
af jonsig
Annaðhvort er þetta svona illa launað, sem ég efast um reyndar. Eða þetta eru ríkisreknar hápólitískar stofnanir þar sem er æskilegt að hafa "rétta" hugarfarið. Eins og hvernig í ósköpunum hefur hildur lillendal fasta stöðu hjá borginni viðráðin mannréttindamál eftir að hafa verið opinberuð sem netníðingur sem ætlaði að láta kallinn sinn taka fallið .
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 21:53
af jonsig
urban skrifaði:Ef að þú hefur áhuga á, þá færðu alveg áræðanlega vinnu á jafnréttisstöðu, getur þannig bæði komið þínum sjónarmiðum á framfæri og jafnað ójafnréttið.
Ég bjóst við þessu svari reyndar, ég hef séð nákvæmlega sama svar birtast þegar einhver hefur t.d. verið að gagnrýna lamað verkalýðsfélag.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 22:08
af urban
Já ef að menn eru ósáttir við eitthvað, þá hjálpar yfirleitt lang best að ráðast beint á meinið, í staðin fyrir að tala um það á internetinu.
Það sama á akkurat við verkalýsðfélög og önnur félög almennt.
Mér persónulega er slétt sama um það hvort að fólkið sem að vinnur þarna pissar sitjandi eða standandi.
Þér aftur á móti virðist ekki vera sama og hefur möguleika á að lagfæra það með því að sækja um vinnu þarna.
Þetta er alls ekki fyrsta skipti (og verður alveg áræðanlega ekki síðasta heldur) sem að þessi umræða kemur upp hérna, sjálfur hef ég meirað segja nefnt þetta hérna, aftur á móti virðast allir vilja benda á misréttið þarna, en ekki gera neitt í því til að laga það.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 22:12
af rapport
urban skrifaði:Mér persónulega er slétt sama um það hvort að fólkið sem að vinnur þarna pissar sitjandi eða standandi.
Blöðruhálskirtillinn vill að allir pissi sitjandi...
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 22:15
af jonsig
Ég hef ekki menntun á þessu sviði,eða áhuga. En ég má hafa áhyggjur af hvernig skattpeningum mínum er ráðstafað í pólitískar rétttrúnaðarkirkjur eins og nokkur dæmi sýna.
Hvernig hildur lillendal heldur sinni sýnir bara hversu mikill klíkuskapur grasserar þarna. Svo er ég mið-hægri sinnaður kk þannig að það er örugglega ekki vel séð.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 22:18
af urban
rapport skrifaði:urban skrifaði:Mér persónulega er slétt sama um það hvort að fólkið sem að vinnur þarna pissar sitjandi eða standandi.
Blöðruhálskirtillinn vill að allir pissi sitjandi...
Já það er vissulega rétt

en ég er ekki hann

Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 23:30
af rapport
jonsig skrifaði:Ég hef ekki menntun á þessu sviði,eða áhuga. En ég má hafa áhyggjur af hvernig skattpeningum mínum er ráðstafað í pólitískar rétttrúnaðarkirkjur eins og nokkur dæmi sýna.
Hvernig hildur lillendal heldur sinni sýnir bara hversu mikill klíkuskapur grasserar þarna. Svo er ég mið-hægri sinnaður kk þannig að það er örugglega ekki vel séð.
Það kemur ekki á óvart að þetta sé svona, karlar hafa lítið verið að ota sínum tota í þessum geira og hafa lítið sinnt þessu af áhuga.
Sem útskýrir af hevrju við erum ekki lengra komin í jafnréttinu öllusaman.
Þú s.s. ert að kvarta yfir að hugsanlega var einhverjum karli mismunað eða að þarna sé vinnustaður þar sem karli þætti óþægilegt að fóta sig.
En bara til að fá samhengi, þá sá ég þetta í vikunni.

Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 23:31
af rapport
p.s. það er augljós fylgni milli kvenna sem útskrifast úr tölvunarfræði og gengi ISK.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Þri 18. Okt 2016 23:48
af I-JohnMatrix-I
rapport skrifaði:jonsig skrifaði:Ég hef ekki menntun á þessu sviði,eða áhuga. En ég má hafa áhyggjur af hvernig skattpeningum mínum er ráðstafað í pólitískar rétttrúnaðarkirkjur eins og nokkur dæmi sýna.
Hvernig hildur lillendal heldur sinni sýnir bara hversu mikill klíkuskapur grasserar þarna. Svo er ég mið-hægri sinnaður kk þannig að það er örugglega ekki vel séð.
Það kemur ekki á óvart að þetta sé svona, karlar hafa lítið verið að ota sínum tota í þessum geira og hafa lítið sinnt þessu af áhuga.
Sem útskýrir af hevrju við erum ekki lengra komin í jafnréttinu öllusaman.
Þú s.s. ert að kvarta yfir að hugsanlega var einhverjum karli mismunað eða að þarna sé vinnustaður þar sem karli þætti óþægilegt að fóta sig.
En bara til að fá samhengi, þá sá ég þetta í vikunni.

Ekki það að ég sé að taka neina afstöðu hvað þetta mál varðar, en þetta graf minti mig á þessa snilld sem ég sá einhverntíman á vafrinu.


Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Mið 19. Okt 2016 00:50
af rapport
Ef við mundum setja hlutina í samhengi t.d. aðskilnaðarstefnunar í Suður Afríku.
Það var augljóst skv. allri tölfræði og öllum sem voru með skilnigarvitin opin, að staða svartra og hvítra var ekki sú sama og varð jafnrétti í Afríku.
Ef þú kíkir í heimsókn þangað í dag, þá sérðu ekkert nema jafnrétti... og jafnvel þó að tölfræðin hafi lítið breyst, þá er það bara af því að svarti maðurinn er ekki búinn að asnast að fatta.
Hann þarf bara að fara í verkfræði.
Eða, vandamálið er ekki fólgið í að breyta lagabókstafnum, heldur að breyta samfélaginu.
p.s. þetta er ekki þankagangur sem maður lærir í háskóla.
Ef samfélagið er sprungin ljósapera, þá skiptir engu máli hvort þú kveikir eða slekkur á henni a.k.a. réttindum fólks, það kveiknar ekkert ljós.
Það þarf fyrst að skipta um ljósaperu, svo kemur kannski ljós ef nýja peran er í lagi.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Mið 19. Okt 2016 07:40
af Urri
Þetta er bara barátta mentakvenna svo einfallt er það... ekki eru þær að berjast fyrir því að fara í íðnaðarstörfin t.d. smiði, rafvirkja, pípara, bifvélavirkja og þess háttar.
Ég er ekki að segja að þetta sé allt glatað, sumt hefur líklega verið gott og vel gert hjá þeim en ef svona á að vera í gangi á það ekki að skipta máli hvort það sé forstjórastaða eða ólærð vinna.
Einnig að mínu mati fynnst mér að það á að ráða í stöður samkvæmt þekkingu/menntun EKKI til þess að fylla einhvern kvóta um hvort fólkið pissar standandi eða sitjandi.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Mið 19. Okt 2016 11:27
af Hizzman
Einhver könnun sýndi að launabilið væri mun meira ef kvennkynslaunþegin hefði yfirmann sem væri kona.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Lau 22. Okt 2016 13:06
af Viktor
Ef kvenfólk sætti sig 10-20% lægri laun þá myndu auðvitað flest fyrirtæki bara ráða konur... en það er bara ekki svoleiðis.
Re: Jafnréttisbarátta með double standard?
Sent: Lau 22. Okt 2016 14:01
af jonsig
Sallarólegur skrifaði:Ef kvenfólk sætti sig 10-20% lægri laun þá myndu auðvitað flest fyrirtæki bara ráða konur... en það er bara ekki svoleiðis.
Maður er farinn að heyra þessi rök oftar og oftar, meika ágætis sense.