vesley skrifaði:Gæti vel verið ég var einfaldlega að lesa beint af vefsíðu ríkisskattstjóra og þar stóð að staðgreiðsla sé undanskilin en engu að síður eigi maður að borga skatt af öllum launum.
Skildi þetta ekki alveg nógu vel og finn ekki linkinn hér í símanum. Of latur að standa upp og kíkja í tölvuna.
Finnst þessi stofnun nú vera hálfgerður brandari. T.d. reglurnar þeirra um skil á reikningum og hvaða kerfi má nota fyrir reikninga. Í staðinn fyrir ákveðnar reglur um útlit reikninga og þær upplýsingar koma fram þá velja þeir handvirkt örfá kerfi sem þú átt að nota og öll hin eru bönnuð.
Þetta er algengur misskilningur. Það eru ákveðnar reglur um geymslu, útlit o.s.frv. varðandi prentun rafræna reikninga í einriti sem snúast að því hvernig data integrity er og fleirra. Hver sem er getur skilað yfir yfirlýsingu til RSK um að ákveðið kerfi uppfylli þessar kröfur.
Þú mátt hins vegar notaða hvaða kerfi sem er svo lengi sem þú ert með forprentað númer á þeim ( þeir sem versla við Tölvutek, taka eflaust eftir því að það eru tvö númer á reiknungum þeirra, eitt forprentað og eitt kerfisprentað ).
Skilyrðin fyrir prentun rafræn reiknings í einriti eru ekki einu sinni ósanngjörn
https://www.rsk.is/atvinnurekstur/bokhald-og-tekjuskraning/rafraen-bokhaldskerfi/ skrifaði:Fyrirliggjandi í bókhaldi þarf að vera undirrituð yfirlýsing, þess efnis að viðkomandi bókhaldskerfi uppfylli skilyrði sem þeim eru sett, frá seljanda eða hönnuði viðkomandi bókhaldskerfis.
Skilyrðin eru eftirfarandi:
Skrifleg lýsing á skipulagi bókhaldsins og uppbyggingu þegar rafrænt bókhald er fært og skriflegar lýsingar vegna gagnaflutninganna sjálfra og þeirra viðskiptafærslna sem rekja má til þeirra liggi fyrir. Framangreindar lýsingar skulu gefa skýra mynd af öryggi og rekjanleika færslna, hvort sem þær eru í bókhaldskerfinu sjálfu eða sérstöku gagnavinnslukerfi vegna gagnaflutninganna.
Þegar færslur í bókhaldinu eiga rætur að rekja til gagnaflutninga skulu liggja fyrir upplýsingar um það með hvaða hætti þeir aðilar sem stunda slík rafræn viðskipti haga samskiptum sínum, m.a. skráningu í gagnadagbók. Ef aðilar hafa gert samskiptasamninga við gagnaðila sinn vegna gagnaflutninga skulu þeir og liggja fyrir.
Reglugerðin er svo hér
http://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/505-2013.