Síða 1 af 1

AliExpress :)

Sent: Sun 29. Apr 2018 20:35
af BaldurÖ
Daginn keypti þennan kapal fyrir ipadinn

https://www.aliexpress.com/item/VOXLINK ... =a2g0s.904

Hann kostaði hingað kominn til mín 280 kr íslenskar

þessi hérna

https://www.epli.is/ipod-usb-dock-connector-cable.html

kostar 3490 kr fyrir utan sendinga kostnað

Gaman að þessu :)

Re: AliExpress :)

Sent: Sun 29. Apr 2018 20:47
af Viggi
Þetta er fínt brand. Haugur af drasl snúrum en þegar maður finnur réttu merkin þá er maður safe

Re: AliExpress :)

Sent: Sun 29. Apr 2018 21:09
af Gunnar
keypti einmitt um daginn usb3 lykil. 64gb frá sandisk á 24 USD. og jafnstórt og nögl á stærð.

https://www.aliexpress.com/item/Sandisk ... 88999.html

Re: AliExpress :)

Sent: Sun 29. Apr 2018 22:26
af jonsig
Yfirleitt er þetta kötturinn í sekknum, þetta má ekki vera of ódýrt heldur áður en maður fær eitthvað suprise.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 10:30
af GullMoli
Ég verslaði einu sinni svona ódýrar snúrur.. keypti alveg slatta til þess að vera viss um að fá eitthvða í lagi. Rúmlgea helmingurinn virkaði ekki.

Versla ekki aftur svona ódýrt drasl. Hef keypt slatta af snúrum frá Anker. Þær eru ódýrari en þessar original Apple snúru en samt ótrúlega vel gerðar.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 12:11
af Viktor
Þarftu ekki að borga Póstinum 500 kr.?

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 12:42
af ChopTheDoggie
Myndi frekar eyða þessum 3490kr í nýja snúru en að eyða pening í ódýrar snúrur sem virka ekki eða hætta að virka eftir c.a. viku.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 17:37
af BaldurÖ
Þessi kapall er alveg virkilega góður ég hef keypt annan svona kapal
fyrir iphone 6 hann kostaði 1100 kr kominn til mín búinn að eiga hann lengi og hann vrkar bara vel ekkert vesen
þeir eru miklu sterkari heldur en þessir hvítu.

Sallarólegur
Nei ég þurfti ekkert að borga þeir komu bara í smá
pakka í gegnum bréfalúguna.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 17:40
af Glazier
ChopTheDoggie skrifaði:Myndi frekar eyða þessum 3490kr í nýja snúru en að eyða pening í ódýrar snúrur sem virka ekki eða hætta að virka eftir c.a. viku.

Að kaupa eitthvað sem hefur verið selt í meira en 11 þúsund eintökum og fær 4,9 í einkun af 5 mögulegum getur varla verið svo mikið risk.. ef maður velur vörur út frá seldu magni og einkunn (ekki bara einkunn) þá fær maður yfirleitt það sem er auglýst og nokkuð góða vöru, þó hún sé keypt á Aliexpress.

Hef pantað ógrynni af snúrum og öðru smádóti og alltaf allt staðist og allar snúrur virka enn.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 20:12
af einarhr
Glazier skrifaði:
ChopTheDoggie skrifaði:Myndi frekar eyða þessum 3490kr í nýja snúru en að eyða pening í ódýrar snúrur sem virka ekki eða hætta að virka eftir c.a. viku.

Að kaupa eitthvað sem hefur verið selt í meira en 11 þúsund eintökum og fær 4,9 í einkun af 5 mögulegum getur varla verið svo mikið risk.. ef maður velur vörur út frá seldu magni og einkunn (ekki bara einkunn) þá fær maður yfirleitt það sem er auglýst og nokkuð góða vöru, þó hún sé keypt á Aliexpress.

Hef pantað ógrynni af snúrum og öðru smádóti og alltaf allt staðist og allar snúrur virka enn.


Einmitt, ég er duglegur að kaupa á Ali, sumt er þvi miður drasl en annað er frábært. Það þarf eins og þú segir bara að skoða umsagnir og number of orders og þá er maður oftast safe. Ég keypti td fyrir tæpum 2 árum Edison led ljósaperur sem kosta um 2500+ stk á Íslandi og borgaði ef ég man rétt tæplega 6000 kr fyrir 10 stk, þær eru ennþá í lagi og ég hef ekki þurft að nota þessar auka 4 sem ég keypti til vara.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 22:03
af sopur
Hefur einhver af ykkur keypt íslensku landsliðstreyjuna á ali ?
Ef svo er, hvernig eru gæðin ? eruði sáttir við kaupin ?

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 22:39
af Aimar
flott væri að taka og lima þennan post. siðan gætu menn sett inn linka a það sem þeir hafa verslað og eru ánægðir með. Alltaf gott að fá feedback frá ykkur með gæðavörur að utan.

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 22:56
af Revenant
Þessu tengt þá myndi ég ekki mæla með að kaupa USB-C kapla af AliExpress nema að vel ígrunduðu máli.
Ef kapallinn er vitlaust víraður þá geturu eyðilagt tækið sem þú tengir við (USB-C getur flutt allt að 100W).

Re: AliExpress :)

Sent: Mán 30. Apr 2018 22:57
af Hjaltiatla

Re: AliExpress :)

Sent: Þri 01. Maí 2018 01:05
af Viggi

Re: AliExpress :)

Sent: Þri 01. Maí 2018 02:12
af Glazier
Þá tek ég þátt :)

Fyrir utan snúrur og svoleiðis smádót þá hef ég t.d. pantað DashCam, lagði mikla vinnu í að finna góða og netta vél án skjás og ljósa
Þessi varð fyrir valinu og borgaði ég $70 fyrir hana, fer reglulega á afslátt hjá þeim
https://www.aliexpress.com/item/MEHOME- ... 0.0.4iEvJP

Víra klippur:
https://www.aliexpress.com/item/HS-D1-A ... 0.0.9yAnV4

Og svo það dýrasta, útvarp í BMW sem ég átti, ekki akkurat þetta en eldri týpa af eins dóti.. svín virkaði og var mjög sáttur með það!
https://www.aliexpress.com/item/Capacit ... autifyAB=0