natti skrifaði:En... to the point... jújú, hobby vs "alvöru græja".
Er ég einn um að finnast verðin á "alvöru græjunum" út úr kortinu?
Hlaupahjól á svipuðu verði og vel með farinn notaður bíll eða mótorhjól?
Það er örugglega rétt hjá þér að verðið miðast að mestu leyti við framboð og eftirspurn. Það er ákveðið hype í kringum þetta, og allt uppselt, svo auðvitað selja þeir þetta bara á því verði sem þeir geta
Að því sögðu finnst mér þú vera að bera saman epli og appelsínur
Nýtt rafmagnshlaupahjól vs. notaður bíll. Það má segja þetta um allt, fólk virðist ekki kippa sér upp við að kaupa 150þús króna síma í dag, eða 250þús króna fartölvu. Getur keypt notaðan síma eða fartölvu sem gerir nokkurn vegin það sama á 30-50þús kall.
Margir eyða fleiri hundruð þúsundum, eða milljónum, á ári í áhugamálin sín, hvort sem það eru jeppakallar, golfarar, veiðimenn eða eitthvað annað.
Við erum með tvö rafmagnshjól (ekki rafhlaupahjól) á heimilinu, sem saman kostuðu ný um 600þús kall, sé þó ekki eftir krónu, þetta kemur í staðin fyrir auka bíl á heimilið og er svo miklu, miklu skemmtilegra, er bæði notað til að komast á milli staða en einnig líka bara sem sameiginleg útivist hjá okkur
* Bætt við *
Og svo er heldur ekki sanngjarnt að bera þetta saman við kostnaðinn á notuðum bíl, þar sem rekstrarkostnaður bíls er a.m.k. 200þús krónur á ári, með tryggingum, dekkjum, smurningu, skoðunum, bifreiðagjöldum, og svo lotteríinu í kringum viðhaldið, auk bensínkostnaðar
Ég er búinn að hjóla ca. 8þús km síðustu 18 mánuði, ef ég ætti að umreikna það yfir á notaðan auka bíl, þá er ég örugglega kominn í plús gagnvart rafmagnshjólinu