natti skrifaði:- Þannig að hvað er að reynast vel, og hvað er að reynast illa?
- Er eitthvað vit í því að vera að kaupa sér hjól í lok sumars? Ætti maður kannski að bíða fram á næsta vor og sjá hvort að úrval og/eða verð breytast?
- Þið sem notið hjól á miðbæjarsvæðinu, hvernig eru þið að ganga frá þeim ef þið farið t.d. inn í verslun/kaffihús? Bara hjólalás og vona það besta?
- Er einhver hérna sem hefur prufað bæði Zero10x og Kaabo Mantis og getur deilt samanburði?
Núna hef ég farið rúmlega 3.000 km á Xiaomi M365/M365 Pro, er í dag á Kaabo Mantis Lite og prufað ýmislegt þar á milli.
M365 hjólin eru
frábær. Ég hef farið yfir 150 ferðir úr Garðabæ niður í Skeifu á Xiaomi hjólunum og heilan helling af öðrum leiðum. Eina sem mætti vera betra við þau er hraðinn upp brekkur. Þegar ég fjallaði fyrst um Xiaomi M365 sagði ég að þau færu létt með brekkur, í dag dreg ég það til baka eftir að hafa prufað öflugri hjól. Það mætti klárlega vera betri fjörðun og öflugri mótor eins og á Zero 8, en í dag eru M365 hjólin í miklu uppáhaldi hjá mér því það er gott að hjóla á þeim, létt, ódýr og ótrúlega gott value.
Í dag er ég á
Kaabo Mantis Lite. Þvílíkt hjól. "Aðeins" 800W mótor, öflug fjöðrun, mikið afl, 10" dekk, brekkur eru ekkert mál o.s.frv. Allt annað hjól en M365 Pro enda tæplega tvöfalt dýrara en samt ekkert fullkomið enda ýmislegt við M365 Pro hjólið sem ég sakna og nokkrir hlutir við Mantis Lite sem mætti vera betra, t.d. framljós og afturbrettir til að velja þig gegn vatni.
Til að svara spurningunum
- Ég hefði ekki farið rúmlega 3.000 km á Xiaomi ef það væri ekki frábært hjól, en það er ekki jafn gott upp brekkur eins og ég fullyrti í upphafi og ég þekki fólk sem býr í miðbænum og skiptu M365 Pro fyrir Zero 8 fyrir betri fjöðrun og meira afl, og eru mjög sátt. Það er samt alveg ótrúlega öflugt tæki, umboðið er frábært og ég mun alltaf mæla með því en ef ég byggi í miðbænum þá myndi ég hugsanlega skoða önnur tæki með betri fjöðrun, t.d. Zero 8.
- Ég hef heyrt mjög misjafna hluti um Zero hjólin. Margir mjög ánægðir en aðrir mjög ósáttir vegna þjónustu sem þau hafa fengið vegna viðgerða og varahluta. Persónulega stökk ég á Kaabo eftir að hafa lesið mikið af umræðum á netinu en einnig á Kaabo umboðið á Íslandi lager af varahlutum, eru að bæta við sig í aukahlutum og eru með ódýrari verð en sambærileg Zero hjól hjá Ellingsen. Kaabo Mantis 10 Dual kostar 30.000 kr minna en Zero 10X, Kaabo er með lengri drægni, betri bremsur, 60v vs 52v rafhlöðu og 7 kg léttara. Tek það fram að ég engin tengsl við Ellingsen né Þrumuna en ég hef sagt fólki að skoða Zero hjólin og fengið það svo í bakið þegar eitthvað bilaði og það tók fleiri vikur að fá varahlutina til að laga hjólin. Allt annað er byggt á einfaldri Google leit og samanburðum á Zero 10X og Mantis 10 Dual, skv. upplýsingum frá Ellingsen og Þrumunni.
Hvort það sé málið að kaupa hjól í dag eða ekki, ég keypti Kaabo Mantis Lite í síðustu viku.
Ég sá nýjasta innleggið rétt áður en ég fór að sofa, finn ekki gleraugun svo ég laga málfars- og stafsetningarvillur á morgun.