Síða 4 af 5

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Þri 01. Sep 2020 13:08
af Viggi
chaplin skrifaði:
jagermeister skrifaði:Er með Zero9, hef ekki prófað að fikta í powerinu því að mér finnst 25km/h feikinóg í mðbænum þar sem ég er að skottast. Í menu-inu er samt möguleiki að stilla ýmislegt, t.d. power, hröðun, hvort að það þurfi að ýta því af stað, regenerative braking o.s.frv. Sjá hér. Þetta með afturbrettið er samt rétt, gjörsamlega fáránlegt hvað það er stutt.

Ég er alveg sammála að 25km/klst sé meira en nóg í miðbænum, ég er aðalega að hugsa um það þegar ég vill henda undir grófum dekkjum og fara í smá offroad fýling.

Mikið rosalega er ég samt ánægður að það sé hægt að breyta aflinu í skjánum/heilanum og að það þurfi ekki að klippa á víra. Veistu hvort þetta sé eins með Zero 10X hjólin? Allar leiðbeiningar sem ég hef fundið á netinu segja að maður eigi að klippa á "gráa" vírinn.

prófaðu að fara eftir þessu ef þetta er eins display og á kaabo

https://support.fluidfreeride.com/hc/en ... y-Settings

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mið 02. Sep 2020 10:50
af jagermeister
chaplin skrifaði:
jagermeister skrifaði:Er með Zero9, hef ekki prófað að fikta í powerinu því að mér finnst 25km/h feikinóg í mðbænum þar sem ég er að skottast. Í menu-inu er samt möguleiki að stilla ýmislegt, t.d. power, hröðun, hvort að það þurfi að ýta því af stað, regenerative braking o.s.frv. Sjá hér. Þetta með afturbrettið er samt rétt, gjörsamlega fáránlegt hvað það er stutt.

Ég er alveg sammála að 25km/klst sé meira en nóg í miðbænum, ég er aðalega að hugsa um það þegar ég vill henda undir grófum dekkjum og fara í smá offroad fýling.

Mikið rosalega er ég samt ánægður að það sé hægt að breyta aflinu í skjánum/heilanum og að það þurfi ekki að klippa á víra. Veistu hvort þetta sé eins með Zero 10X hjólin? Allar leiðbeiningar sem ég hef fundið á netinu segja að maður eigi að klippa á "gráa" vírinn.

Ætti að vera eins á öllum zero hjólunum en það getur svo aftur verið að limit-ið sé enn virkt með þessum gráa vír þótt að það sé fiktað í powerinu - um að gera að fara bara í Ellingsen og prófa það.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 14. Sep 2020 14:15
af Stuffz
Fylgir bjalla á Kaabo hjólunum?

Það fylgdi engin bjalla með zero hjólinu mínu, sem ætti að vera IMO öryggisins vegna.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 14. Sep 2020 15:17
af Viggi
Það er bjalla já

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 14. Sep 2020 16:46
af ColdIce
Zero 10X er rooosalegt og ekki skemmir fyrir að komast á 65km hraða :D

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 14. Sep 2020 18:57
af chaplin
Stuffz skrifaði:Fylgir bjalla á Kaabo hjólunum?

Það fylgdi engin bjalla með zero hjólinu mínu, sem ætti að vera IMO öryggisins vegna.

Ekki á öllum módelum minnir mig, Lite er með bjöllu Wolf er með lúður en millitýpurnar eru held ég ekki allar með bjöllur.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 14. Sep 2020 19:33

I see, það er strax skárra.

Annars ætti þetta eiginlega að vera Normið hjá öllum ábyrgum söluaðilum að láta fylgja eitthvern viðvörunarbúnað með svona græjum, ég nota sjálfur bjöllur á öllum raftækjum.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 21. Sep 2020 16:04
af netkaffi
ColdIce skrifaði:Zero 10X er rooosalegt og ekki skemmir fyrir að komast á 65km hraða :D

Þannig að maður getur farið á Selfoss á þessu?

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mán 21. Sep 2020 16:57
af ColdIce
netkaffi skrifaði:
ColdIce skrifaði:Zero 10X er rooosalegt og ekki skemmir fyrir að komast á 65km hraða :D

Þannig að maður getur farið á Selfoss á þessu?

Þú getur skutlast á Seyðisfjörð að skila spólu kallinn minn!

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Lau 26. Sep 2020 19:57
af netkaffi
Held ég ætli að taka Mi365 (Vörunúmer: 63668) hjá Símanum á 39.990 er það ekki fínt byrjunarhjól.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Lau 26. Sep 2020 20:25
af chaplin
netkaffi skrifaði:Held ég ætli að taka Mi365 (Vörunúmer: 63668) hjá Símanum á 39.990 er það ekki fínt byrjunarhjól.

M365 er frábært hjól, fyrir 40.000 kr er það no-brainer. :)

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Lau 26. Sep 2020 23:26
af IL2
Eina sem gæti verið að er krafturinn upp brekkur. Ég er á Pro hjoli og um 95kg. Það mætti alveg vera kraftmeira.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Sun 27. Sep 2020 16:16
af Nariur
Það er ekkert sem smá custom firmware lagar ekki.
Það er fáránlegt hversu mikið betra upp brekkur m365 verður á custom firmware.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Sun 27. Sep 2020 17:03
af Klemmi
Nariur skrifaði:Það er ekkert sem smá custom firmware lagar ekki.
Það er fáránlegt hversu mikið betra upp brekkur m365 verður á custom firmware.

Nú er spyr ég því ég veit ekki betur, en hef séð menn segja hér að þeir hafi brennt í gegnum stýringar á hjólinu með því að reyna of mikið á það upp brekkur eða í mótvind.

Er það ekki útaf firmware breytingum, og er einhver alveg safe stilling sem veitir viðunandi aðstoð?

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Sun 27. Sep 2020 17:19
af Nariur
Gaurar í kring um custom firmware tólin eru með reynslu eru búnir að finna stillingar sem þeir mæla með að maður fari ekki yfir.
Þetta er náttúrulega modding og ber með sér einhverja áhættu, en þetta er að virka helvíti vel fyrir mig.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mið 30. Sep 2020 21:23
af netkaffi
Hvernig er með það þegar maður er með eins og M365 og ætlar að skreppa út í búð. Eruð þið bara að skilja þetta eftir fyrir utan sjoppuna?

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mið 30. Sep 2020 21:29
af ColdIce
netkaffi skrifaði:Hvernig er með það þegar maður er með eins og M365 og ætlar að skreppa út í búð. Eruð þið bara að skilja þetta eftir fyrir utan sjoppuna?

Tek mitt alltaf með og set innkaupakörfuna á það :p

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Mið 30. Sep 2020 21:33
af netkaffi
Það er góð hugmynd. Er bara að spá í, er ekki auðvelt fyrir óprúttna að taka upp léttustu hjólin og labba með þau burt á meðan maður er úti í búð? Og svo bara "hakka" þeir þau til þess að koma í notkun, eða hvernig virkar þetta allt saman? Hef bara prófað Nova Hopp hjólin, þau eru svo stór að það nennir enginn að labba með þau burt.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Fim 01. Okt 2020 00:15
af IL2
Getur keypt lás sem festist i diskabremsuna.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Fim 01. Okt 2020 14:53
af netkaffi
Veistu hvar ég fæ þannig eða hvað þannig heiti svo ég geti fundið?
Er ekki hægt að tryggja þetta fyrir þjófnaði íika svipað og fartölvu og farsíma?

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Fim 01. Okt 2020 15:08
af ColdIce
netkaffi skrifaði:Veistu hvar ég fæ þannig eða hvað þannig heiti svo ég geti fundið?
Er ekki hægt að tryggja þetta fyrir þjófnaði íika svipað og fartölvu og farsíma?

https://www.tunglskin.is/product/disk-l ... cooter.htm

Þetta er í innbústryggingunni.
Langar einnig að benda ykkur á að það eru loksins fáanleg nagladekk á þessi hjól á Íslandi

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Fim 01. Okt 2020 19:54
af Nariur
ColdIce skrifaði:
netkaffi skrifaði:Hvernig er með það þegar maður er með eins og M365 og ætlar að skreppa út í búð. Eruð þið bara að skilja þetta eftir fyrir utan sjoppuna?

Tek mitt alltaf með og set innkaupakörfuna á það :p

Ég geri þetta líka.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Fim 01. Okt 2020 20:34
af netkaffi
Ég trúi nú varla að umferð á þessu sé leyfð inni í búð.

Anyway, þetta er svo þunnur vír á þessum lás þarna. Menn úti eru að mæla með Kryptonite lás (hef séð svona á dýrum reiðhjólum heima), en hér er allt uppselt. https://www.gap.is/index.php?route=prod ... ct_id=4944

Hvað er annars Desertcart.is? Feik? Gróðamaskína? https://www.desertcart.is/products/1424 ... inch-black

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Sun 04. Okt 2020 10:15
af Nariur
Maður er náttúrulega ekki keyrandi um á því inní búðinni. Maður leiðir það bara.
Næstum því allur svona þjófnaður á Íslandi er tækifærisþjófnaður, sérstaklega við inngang að verslun þar sem er mikil traffík. Stór lás er ekki að fara að gera mikið meira en lítill.

Re: Ætla að kaupa rafhlaupahjól, er með spurningar...

Sent: Sun 04. Okt 2020 14:37
af netkaffi
Stór lás er að fara festa það sem þú læsir við hann og þú getur ekki klippt hann bara með víraklippum eða einhverju þannig. Veistu hvað kryptonite eru stórir lásar, þetta er þykk stálkeðja, ekki vera koma með einhverjar Dr. Scientist kenningar um hvernig þú ætlar að losa það.