Síða 1 af 3

Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 14:07
af GuðjónR
Jólin koma snemma í ár!
Þetta viðbjóðslega uppgreiðslugjald hefur verið dæmt ólöglegt!
Ég endurfjármagnaði í desember í fyrra og þurfti að borga 1.557.659.- í uppgreiðslugjald.
Fram að því hafði ég borgað inná lánið á milli 2-3 milljónir og greitt í kringum 7% af þeirri upphæð í þetta gjald.

Núna verður gerð krafa á þá um endurgreiðslu ásamt 4.8% vöxtum plús verðtryggingu.
Og í raun ætti maður að sækja um skaðabætur líka því þetta gjald var hamlandi og kom í veg fyrir það í mörg ár að maður endurfjármagnaði í hagstæðari vexti.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... _ologlegt/

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 14:11
af Halli25
Kom bara á vaktina til að pósta þessari frétt, til lukku Guðjón :)

Maður hreinlega missti andlitið þegar maður heyrði af þessu í den.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 14:55
af Predator
Þetta er nú bara á 1. Dómsstigi svo ég myndi ekki hrósa sigri alveg strax.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 14:58
af GuðjónR
Predator skrifaði:Þetta er nú bara á 1. Dómsstigi svo ég myndi ekki hrósa sigri alveg strax.

True...
En þetta gefur tilefni til bjartsýni :happy

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 15:14
af MrIce
Þetta er nátturulega bara gargandi snilld! Núna bara að bíða eftir að þessir asnar kæri til hæstaréttar (eins og mun 110% gerast) og svo bíða eftir að það verði dæmt ILS í óhag þar líka.

Fyrsta dómstig eða ekki, þetta er áfall fyrir ILS, vonandi bara að þetta gangi hratt.

btw : https://lr.is/hafa-samband/
Sækjum hart í peningana okkar!

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 15:56
af rickyhien
bíddu bíddu, ég var að undirrita lán hjá Landsbankanum fyrir sirka viku og las um þetta uppgreiðslugjald...verður það EKKI á næstunni? Mun bankinn senda einhverjar nýjar upplýsingar um að það lið sé felld niður?

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 16:03
af Dúlli
rickyhien skrifaði:bíddu bíddu, ég var að undirrita lán hjá Landsbankanum fyrir sirka viku og las um þetta uppgreiðslugjald...verður það EKKI á næstunni? Mun bankinn senda einhverjar nýjar upplýsingar um að það lið sé felld niður?

Þau eru háttuð allt öðruvissi að mig minnir og eru ekki svona gróf að upphæð.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 17:05
af bigggan
Við erum með svona lán frá 2008 minni mig og það var endurgreit 2017 minni mig og þar var uppgreiðslugjald kringum 900þ króna. sé þau segja að það sé hætta á fyrning bráðum. Mun maður geta haft samband við neytendastofa eða kærunefnd vöru og þjónustukaupa ef bankinn eru tregir að greiða þessu?

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 17:08
af bigggan
rickyhien skrifaði:bíddu bíddu, ég var að undirrita lán hjá Landsbankanum fyrir sirka viku og las um þetta uppgreiðslugjald...verður það EKKI á næstunni? Mun bankinn senda einhverjar nýjar upplýsingar um að það lið sé felld niður?

Það eru öðruvissi reglur núna sem gerir þessu leyfilegt eftir 2013, að hámark 1% af láni.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 17:15
af GuðjónR
bigggan skrifaði:

Með allskonara skilyrðum, mátt borga 1m á ári án gjaldsins og þegar binditíminn rennur út þá máttu greiða upp/endurfjármagna án gjalds.
Og þetta á bara við um lán á föstum vöxtum.

Enn og aftur er þetta ríkisbákn að brjóta á þegnunum, finna þá sem eru ábyrgir og láta þá svara til saka.
Eru menn ekki alltaf að réttlæta laun með ábyrgð?

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 18:02
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:

Eitt sem er smá svekk með þessa 1m, ef þú ert með viðbótar lífeyrirsjóð þá telur það upp í þess 1m.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fös 04. Des 2020 23:12
af Semboy
hmm þetta er mjög áhugavert, ætla að athuga þetta vel á mánudagin :)

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Lau 05. Des 2020 04:09
af Sinnumtveir
Svona, svona. Uppgreiðslugjald er í raun hinn eðlilegasti hlutur enda eru boðnir lægri vextir til þeirra sem það velja. Auðvitað er mikið álitamál hvaða skilmálar eru eðlilegir á uppgreiðslugjaldi en það er önnur ella.

Ef niðurstaða héraðsdóms stendur á síðari dómsstigum spái ég endurspilun á gengistryggingarlánabixinu eftir hrun: Þeir sem völdu áhættusamari kostinn (gengistryggt vs verðtryggt) högnuðust flestir en ekki allir á endanum sérstaklega á því. Nú er útlit fyrir að þeir sem völdu áhættusamara lánsformið hagnist á því sérstaklega, eins og þá vegna formmistaka, þeas lægstu vexti og uppgreiðslugjaldið endurgreitt.

Ég er samt fjarska glaður þó augljóslega fái ég ekkert út úr þessu dæmi :) Ég fagna öllum löðrungum sem aðgangsharðar íslenskar fjármálastofnanir fá.

Semsagt til hamingju, í bili amk, þið uppgreiðslugjaldsfólk.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Lau 05. Des 2020 13:39
af Viktor
rickyhien skrifaði:bíddu bíddu, ég var að undirrita lán hjá Landsbankanum fyrir sirka viku og las um þetta uppgreiðslugjald...verður það EKKI á næstunni? Mun bankinn senda einhverjar nýjar upplýsingar um að það lið sé felld niður?

Uppgreiðslugjaldið var 16% hjá þeim sem vann málið gegn ÍLS.

Hjá öðrum hefur það verið í kringum 1% minnir mig.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Lau 05. Des 2020 16:14
af Hrotti
Ég borgaði upp mitt íls lán fyrir 2 árum og það var eitthvað í kringum 1,5 mills í þetta helvítis gjald. Ég hefði alveg verið til í að eyða þeim peningum í eitthvað annað.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Lau 05. Des 2020 17:35
af appel
Vá hvað þessi Íbúðalánasjóður er fáránlegur. Ríkisstofnun með ríkisábyrgð en getur ekki boðið lán á hagstæðari kjörum. Reyndar eru allir bankarnir í dag í ríkiseigu, þetta er skrítið kerfi á Íslandi!

Sósíalistar bjuggu þessa íbúðalánastofnun til í nafni þess að "hjálpa" okkur greyjunum, en svo reynist þessi stofnun vera ekkert annað en glæpsamlegur hákarl sem níðist á okkur greyjunum.

Kominn tími til að leggja þessa óþarfa stofnun niður. Engin þörf á henni lengur.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Lau 05. Des 2020 20:10
af hagur
appel skrifaði:Vá hvað þessi Íbúðalánasjóður er fáránlegur. Ríkisstofnun með ríkisábyrgð en getur ekki boðið lán á hagstæðari kjörum. Reyndar eru allir bankarnir í dag í ríkiseigu, þetta er skrítið kerfi á Íslandi!

Sósíalistar bjuggu þessa íbúðalánastofnun til í nafni þess að "hjálpa" okkur greyjunum, en svo reynist þessi stofnun vera ekkert annað en glæpsamlegur hákarl sem níðist á okkur greyjunum.

Kominn tími til að leggja þessa óþarfa stofnun niður. Engin þörf á henni lengur.

Nákvæmlega. Maður hélt að þetta væri "góði gæinn" á lánamarkaði og að manni væri betur borgið að taka íbúðalán hjá þessari stofnun frekar en bönkunum. Ónei. Feginn er ég að hafa selt á sínum tíma og losnað við ÍLS lánið í leiðinni.

Eini "kosturinn" við ÍLS v.s t.d bankana er að lengi vel þá lánuðu bankarnir m.v. fasteignamat en ÍLS m.v. brunabótamat, ef ég man rétt. Það gerði það að verkum að nánast vonlaust var að fá húsnæðislán hjá bönkunum til að kaupa á landsbyggðinni þar sem að fasteignamat var mikið lægra en markaðsverð. Brunabótamatið var nær markaðsverði og var ÍLS kannski eina vonin til að fá lán sem náði eitthvað upp í kaupverðið. Þetta er held ég liðin tíð í dag og þessi stofnun því algjörlega tilgangslaus. Reyndar er núna búið að sameina Mannvirkjastofnun og ÍLS undir nafninu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Sun 06. Des 2020 00:18
af Nariur
Yay. Milljarðar úr ríkissjóði í vasa fasteignaeigenda sem vissu undir hvað þeir voru að skrifa þegar þeir tóku lán á hagstæðum vöxtum...
Frábært fyrir alla landsmenn.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Sun 06. Des 2020 13:28
af GuðjónR
Nariur skrifaði:Yay. Milljarðar úr ríkissjóði í vasa fasteignaeigenda sem vissu undir hvað þeir voru að skrifa þegar þeir tóku lán á hagstæðum vöxtum...
Frábært fyrir alla landsmenn.

Milljarðar sem teknir voru af fasteignaeigendum með ólögmætum hætti og inn í ríkissjóð, buhu að þeir þurfi að skila ránsfengnum.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Mán 07. Des 2020 16:52
af gRIMwORLD
Uppgreiðslugjaldið á láninu mínu frá 2008 var seinast þegar ég athugaði eitthvað í kringum 12% eða meir, síðan þá hafa stýrivextir lækkað enn meira og það kemur til hækkunar á uppgreiðsluprósentu.

Quote'a starfsmann ÍLS sem sagði við mig orðrétt í síma eitt sinn "Þú ert með svona lose lose lán!"

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Þri 08. Des 2020 15:15
af Njall_L
Íslensk stjórnvöld búin að áfrýja þessum dómi: https://www.visir.is/g/20202047093d/afr ... -milljarda

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Þri 08. Des 2020 16:13
af einarhr
Njall_L skrifaði:Íslensk stjórnvöld búin að áfrýja þessum dómi: https://www.visir.is/g/20202047093d/afr ... -milljarda

Þetta lið kann ekki að skammast sín, Sjóðurinn hagar sér eins og TR gerði og gerir að reyna í rauðann dauðann að greiða ekki til baka það sem var oftekið eins og með þá sem voru með búsetuskerðingu þar á meðal ég. Nú þurfum við ss skattgreiðendur að borga fyrir þessa áfríun íbúðarlánasjóðs svo sjóðurinn geti haldið áfram að stela af lántökum

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Þri 08. Des 2020 17:52
af GuðjónR
Og ofbeldið heldur áfram, nú kemur sér vel fyrir sjallamafíuna að hafa handvalið vini sína í Landsrétt.
Ætli það þurfi ekki MDE til að fá óhlutdrægan úrskurð.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fim 10. Des 2020 09:19
af Viktor
Stefán Einar Stefáns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morgun­blaðinu skrifaði:En það svaka­legasta í þessu máli öllu er að það ber enginn á­byrgð. Að­eins skatt­greið­endur sem axla á­byrgð vegna mis­taka opin­berra starfs­manna sem falin var á­byrgð og þeir risu ekki undir. Enginn þeirra mun axla á­byrgð, og enginn þeirra mun hafa fyrir því að biðjast fyrir­gefningar á glap­ræðinu. Þeim er ef­laust sama, þeir fengu allir sitt.

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Sent: Fim 10. Des 2020 11:18
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:
Stefán Einar Stefáns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morgun­blaðinu skrifaði:En það svaka­legasta í þessu máli öllu er að það ber enginn á­byrgð. Að­eins skatt­greið­endur sem axla á­byrgð vegna mis­taka opin­berra starfs­manna sem falin var á­byrgð og þeir risu ekki undir. Enginn þeirra mun axla á­byrgð, og enginn þeirra mun hafa fyrir því að biðjast fyrir­gefningar á glap­ræðinu. Þeim er ef­laust sama, þeir fengu allir sitt.

Akkúrat!
Í stað þess að biðjast afsökunar og leiðrétta svikin og reyna að bæta fyrir þau þá setur Bjarni Ben hausinn í sandinn og ýtir þessu á næsta dómstig í þeirri veiku von um að það finnist einhverjir tæknilegir gallar til þess að svikin haldi, á meðan helur sjóðurinn áfram að innheimta gjald sem dæmt hefur verið ólögleg.

Skaðinn sem þetta veldur er margþættur, ekki bara gjaldið sem slíkt heldur eru margir hikandi (þar á meðal ég á sínum tíma) við að taka stökkið og taka á sig margar milljónir til þess eitt að fá að endurfjármagan í hagstæðari vexti. Það ætti því að endurgreiða upphæðina með dráttarvöxtum ástamt skaðabótum og afsökunarbeiðni. En það tíðkast víst ekki í þessu banananeinræði.