Síða 2 af 2

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 14:36
af thrkll
Staðan á N1 í Hafnarfirði um kl. 23 í gærkvöldi:

Löng röð á kassana. Hver maður var að borga með ferðagjöfinni, eða reyna það að minnsta kosti. Margir, ég þar á meðal, voru að reyna hvað þeir gátu að kaupa fyrirframgreitt bensínkort fyrir 5.000 krónur. Allir voru jafn ringlaðir að frétta að bensínkort fyrir allar upphæðir voru löngu uppseld vegna óvæntrar eftirspurnar þennan síðasta dag ferðagjafarinnar. Það var tilgangslaust að kaupa bensín á brúsa enda færi meirihluti peningsins í að kaupa brúsana. Í flýti komst ég að því hvaða bensínstöðvar væru opnar svona seint og hringdi beint í N1 á Hringbraut. Þar voru til örfá 10.000 króna kort - allt annað uppselt.

Ég endaði á að fara heim, enda var síminn líka að verða batteríslaus. Gúglaði á ljóshraða hvaða stað sem er sem tæki við ferðagjöf í gegnum vefverslun. Fann eitt fyrirtæki á norðurlandi sem seldi gjafabréf og bauð upp á að klára málið á netinu - var fljótur að ganga frá pöntuninni. Og svona endaði ferðasumarið 2020 hjá mér. Seint í maí, smá úði, en furðuhress með að ríkið sé að eyða peningum í ábyrgðarlausan vitleysing eins og mig. :hugenose

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 14:53
af appel
Annars finnst mér þessi "ferðagjöf" vera hálf fáránleg. Flestir nota þetta bara í sína neyslu, mat og bensín, lítið með ferðalög að gera. Ég veit ekki hvað maður borgar mikið í skatt mánaðarlega, laun og vsk af vörum og þjónustu. Þessi 5 þús kall er svona sárabót fyrir að vera rændur í gegnum skattkerfið. Notaði þetta en þetta hefur engin áhrif ákvörðun mína til ferðalaga. Stjórnmálamenn einfaldlega eru bara vanvita.

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 15:55
af agnarkb
appel skrifaði:Annars finnst mér þessi "ferðagjöf" vera hálf fáránleg. Flestir nota þetta bara í sína neyslu, mat og bensín, lítið með ferðalög að gera. Ég veit ekki hvað maður borgar mikið í skatt mánaðarlega, laun og vsk af vörum og þjónustu. Þessi 5 þús kall er svona sárabót fyrir að vera rændur í gegnum skattkerfið. Notaði þetta en þetta hefur engin áhrif ákvörðun mína til ferðalaga. Stjórnmálamenn einfaldlega eru bara vanvita.


Augljóslega notar enginn þetta í ferðalög. Skitinn 5000 kall, rétt kemst up Ártúnsbrekkuna fyrir það.

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 16:42
af GuðjónR
Keypti pizzur fyrir mína og notaði gjöf konunnar á Hópkaup til að framlengja líftímann um nokkar vikur.

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 17:06
af netkaffi
Það var einmitt hætt að taka við ferðagfjöf á Subway í gær, vegna álags geri ég ráð fyrir. Ég hafði notað hluta gjafarinnar þar nokkrum vikum áður án vandaræða, fyrir utan að sú sem var að afgreiða hélt að ég gæti ekki borgað tilboð með þessu sem var kjaftæði (ferðagjöfin er greiðslumáti, þetta eru peningar frá ríkinu).

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 20:19
af rapport
Notaði mína og konunnar á Restaurant Salka á Húsavík og afgangurinn fór upp í næstu ferð á KFC.

Þetta snérist akkúratum að koma fólki út og koma peningum á hreyfingu.

Held að allflestir hafi gert sér dagamun sem gátu en aðrir gátu fengið sér eitthvað sem þeir þörfnuðust.

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Þri 01. Jún 2021 22:37
af hagur
Var það ekki almenn vitneskja að þetta væri að renna út? Biðraðir útum allt á síðasta gildisdegi, getur þetta orðið mikið íslenskara?

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Mið 02. Jún 2021 00:36
af einarhr
Ég nýtti samtals 5 ferðagjafir á Brew Dog í fyrra og á þessu ári, finnst þær hafa verið vel nýttar þar sem bæði ölið og maturinn þar er með þvi besta sem maður fær á landinu.

Re: Ferðagjöfin - [EKKI]síðustu forvöð!

Sent: Mið 02. Jún 2021 08:59
af Jón Ragnar
einarhr skrifaði:Ég nýtti samtals 5 ferðagjafir á Brew Dog í fyrra og á þessu ári, finnst þær hafa verið vel nýttar þar sem bæði ölið og maturinn þar er með þvi besta sem maður fær á landinu.

Mitt fór í svipað :)

Ferðaðist samt slatta innanlands líka