Spyr fyrir vin. Hvernig skal fullorðnum manni hent út ?

Allt utan efnis
Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Spyr fyrir vin. Hvernig skal fullorðnum manni hent út ?

Pósturaf Viktor » Fim 28. Jan 2021 22:30

Voðalega er fólk háfleygt hérna.

Þetta hljómar bara eins og risastórt barn sem hefur alltaf fengið allt upp í hendurnar og aldrei þurft að hreyfa litla fingur, og skilur ekki hvernig verðmæti verða til.

Sá sem bjó þetta ástand til ber alveg jafn mikla, jafnvel meiri ábyrgð á því hvernig komið er.

Það er það flókna við þetta. Stundum er þægilegra að vera meðvirkur en að takast á við vandamál. Svo stækkar snjóboltinn og verður algerlega óyfirstíganlegur harmleikur. En eina leiðin út er að hætta meðvirkninni.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Spyr fyrir vin. Hvernig skal fullorðnum manni hent út ?

Pósturaf netkaffi » Fös 29. Jan 2021 01:24

https://gedhjalp.is/ veitir ókeypis ráðgjöf.

Minni á að sjálfsmorð meðal ungmenna, þar af sérstaklegra ungra karlmanna, hafa verið há undanfarin ár sjálfsmorðstíðni hefur hækkað á tímum Covid. Þannig, að nærgæt skal höfð í náveru sálar (sem margir fara ekkert eftir á Íslandi, enda grasserar alskonar viðbjóður hér eins og annarstaðar í heiminum). Auðvitað á hann samt ekkert að halda sér inni á heimili annara í óþökk, og það er líklegast að hann nái frekar bata við að vera komið út. Óþarfi að buffa hann samt, lögreglan getur eflaust hjálpað til við að koma honum rólega út. Hann getur svo bara leigt sér herbergi eða íbúð einhverstaðar. En honum þarf að hjálpa út, og ekkert að því að fá aðstoð yfirvalda við það.



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1166
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 155
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Spyr fyrir vin. Hvernig skal fullorðnum manni hent út ?

Pósturaf g0tlife » Fös 29. Jan 2021 09:45

Tala af reynslu og kannski virkar þetta fyrir ykkur því enginn er eins.

Svipta sjálfræði, leggja hann inn á geðdeild/stofnun þar sem hann fer í viðtöl sem manneskjan nær ekki að tala sig úr og er greindur. Beint eftir það sækja um á Hvítabandinu.

Þessi formúla virkaði fyrir mína fjölskyldu en þar var fullorðin einstaklingur sem vildi enga hjálp, var að nota einhver efni, hótaði sjálfsvígi endalaust og var bara með fjölskylduna undir sinni stjórn.

https://www.landspitali.is/sjuklingar-a ... vitabandi/


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4965
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 869
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Spyr fyrir vin. Hvernig skal fullorðnum manni hent út ?

Pósturaf jonsig » Lau 30. Jan 2021 11:19

Takk kærlega vinir. Svörin ykkar hafa klárlega sýnt mér nýjar hliðar á málinu. Og sé að margir ykkar hafa svipaða sögu að segja.

Ég er mjög þakklátur fyrir viðbrögðin.