Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
osek27
spjallið.is
Póstar: 414
Skráði sig: Lau 02. Nóv 2019 02:27
Reputation: 44
Staðsetning: 815
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf osek27 » Sun 07. Feb 2021 17:20

Ég er að fara kaupa mer rafmagns bil og var að skoða rafmangsmalin fyrir hleðsluna.

Það kom í ljós að það er ekki 3 fasa rafmagn hjá mér og það þarf að leggja það fyrir stöð.

Nu hef eg heyrt tvennt
Rarik ætti að redda þessu kostnaðarlaust og annað heyrði ég að þau geta neitað því að leggja þetta nema eg borgi fyrir allt
Sem væri þa marganiljonarkostnaður þvi það þarf að grafa allt upp fyrir þetta

Einhver sem hefur reynslu af þessu og lent i svipuðu?

Ég er buin að senda email og er enn að bíða eftir svari en vildi bara checka hér líka af þessu



Skjámynd

L0ftur
Ofur-Nörd
Póstar: 235
Skráði sig: Mán 01. Ágú 2011 16:54
Reputation: 74
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf L0ftur » Sun 07. Feb 2021 17:52

Flestar heimtaugar eru 4 leiðarar. L1, L2 OG L3 ásamt PEN leiðara því er yfirleitt enginn auka kostnaður fyrir neytanda til veitu nema sá kostnaður að fá starfsmann frá veitu til þess að hleypa á hina tvo fasana og skipta út mælinum, man ekki hvað það kostar en er ekki svo mikið. En meiginn kostnaðurinn liggur í því að fá rafverktaka til þess að breyta aðaltöflunni í 3 fasa. Þá þarf annan lekaliða, stofnvar og breyta safnskinnum. Yfirleitt er bara smíðuð ný tafla. Sú framkvæmd getur verið á bilinu 150-300 þúsund, en það fer eftir stærð húss.


[PLAY] Z590 Asus ROG Strix™ gaming WiFi - Asus ROG STRIX RTX™4090 GAMING OC - intel™ i9 11900K - 64Gb RAM
[PLAY-2] Z390 Gigabyte Aorus™ Elite RGB, Gigabyte RTX™3080 Aorus Master, intel™ i7 9700 - 32Gb RAM
[Laptop - Work] Lenovo Legion 7 - AMD Ryzen™ 7 5800H - Nvidia RTX™3080 - 32Gb RAM

Skjámynd

L0ftur
Ofur-Nörd
Póstar: 235
Skráði sig: Mán 01. Ágú 2011 16:54
Reputation: 74
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf L0ftur » Sun 07. Feb 2021 17:54

Færðu þér ekki bara 32A 1fasa stöð? Hvernig bíll er þetta, ekki víst að þú náir að hlaða eitthvað meira inna hann hvort sem er. En auðvitað alltaf betra að hafa 3fasa til að minnka álag.


[PLAY] Z590 Asus ROG Strix™ gaming WiFi - Asus ROG STRIX RTX™4090 GAMING OC - intel™ i9 11900K - 64Gb RAM
[PLAY-2] Z390 Gigabyte Aorus™ Elite RGB, Gigabyte RTX™3080 Aorus Master, intel™ i7 9700 - 32Gb RAM
[Laptop - Work] Lenovo Legion 7 - AMD Ryzen™ 7 5800H - Nvidia RTX™3080 - 32Gb RAM

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf Viktor » Sun 07. Feb 2021 18:09

Ertu viss um að þurfa þrjá fasa?

https://www.veitur.is/serbyli
Viðhengi
596AD5D6-029B-4F74-A72B-0377C229ED41.jpeg
596AD5D6-029B-4F74-A72B-0377C229ED41.jpeg (442.2 KiB) Skoðað 2273 sinnum


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf Cascade » Sun 07. Feb 2021 18:19

RARIK er nú aðallega í 11-33 kv dreifingu
Ég veit ekki til þess að þeir séu með lagspennu dreifingu

Hvar býrðu?

Ef það er Reykjavik þá eru það Veitur sem eru með heimtaugina þína.

Þú gætir skoðað töfluna og athugað hvort þú sért með 4leiðara sem hægt væri að nota í 3 fasa rafmagn. Ansi líklegt ef þú ert í sérbýli

Annars geturu líka séð það á borgarvefsjá og valið rafmagn og skoðað húsið þitt á korti



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf jonsig » Sun 07. Feb 2021 18:46

Minnir að þetta séu 500k ef þú ert í eldra hverfi með L+PEN heimtaug. Hinsvegar eru þeir að skipa út virkilega eldgömlum strengjum frítt líka. Oft hægt að nota ein-fasa heimtaugina sem er fyrir til að hlaða einn bíl með ágætu trukki, en stundum er hún ekki nógu sver. Vandamálið verður sverleikinn á kaplinum útí bílskúr ef við á, ef þú heldur þig við L+PEN setupið. Og dreifiveitan tapar á því tæknilega.

Erum nokkur hérna í seljahverfinu með sameiginlegt bílskýli. Þetta var eitthvað kringum milljón á einhverjum sér díl að fá +100A ~3P nýja heimtaug fyrir skýlið. Þá munaði litlu þannig séð hversu stór hún var, þetta var eitthvað þvílíka startgjaldið.

ps fór á námskeið í den erlendis til að undirbúa þessa væðingu hérna heima. En fór að gera annað :sleezyjoe .
Þannig að í framtíðinni má gera ráð fyrir 2x44kW hleðslu ef þú verður að fullu rafvæddur með bíl fyrir konuna, stundum er þetta leyst með álagsjöfnun ef þú ert að reyna hlaða marga bíla og byrjar líklega þannig.
Síðast breytt af jonsig á Sun 07. Feb 2021 18:51, breytt samtals 3 sinnum.




bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf bigggan » Sun 07. Feb 2021 19:06

Fæstir bílar hlaða með meira en 11kW hvort sem er, eina sem ég man eftir sem hleður meira er Zoe sem nær hámarkinu á 22kW, margir sem hlaða bara á einfasa heima hjá sér á 32A, og eru sáttir með þvi.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf jonsig » Sun 07. Feb 2021 19:10

bigggan skrifaði:Fæstir bílar hlaða með meira en 11kW hvort sem er, eina sem ég man eftir sem hleður meira er Zoe sem nær hámarkinu á 22kW, margir sem hlaða bara á einfasa heima hjá sér á 32A, og eru sáttir með þvi.


rapid mode á zoe nær 50kW (DC charge 0-80%) :knockedout
Síðast breytt af jonsig á Sun 07. Feb 2021 19:11, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Höfundur
osek27
spjallið.is
Póstar: 414
Skráði sig: Lau 02. Nóv 2019 02:27
Reputation: 44
Staðsetning: 815
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er mikið vesen að leggja 3 fasa rafmagn

Pósturaf osek27 » Sun 07. Feb 2021 19:28

Þetta er model 3, pabbi er rafvirki sem myndi gera alla vinnuna ef eitthvað svo ég spara helling þar. En já hann sagði mér einmitt að hann hefði bara látið hafa 32A 1fasa stöð ef það sé eitthvað vesen að setja 3 fasa. Náði ekki að tala betur við hann um þetta og vildi bara athuga hvað þið sérfræðingar hérna hafið til að segja.

Takk fyrir svörin