Síða 12 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 23. Mar 2021 11:10
af kelirina
thorhs skrifaði:Þetta er mjög athyglisvert. Það væri gaman að sjá áætlað hraunrennsli miðað við þessar forsendur, þeas dyngjugos. Ef þetta gos varir t.d. í 5 ár, hve víða væri hraunið koimð?

Kanskki maður ætti sjálfur að reikna það upp, sýnist að VÍ sé að nota https://www.sciencedirect.com/science/a ... 7317303876. Spurning hvort einhver geti fundið DEM (Digital Elevation Model) af reykjanesinu, í minna en 30m upplausn?


þú ert líklega búinn að kíkja á kortasjá lsmi: https://atlas.lmi.is/mapview/?application=DEM


getur þar smellt á gögn og valið Sækja gögn og því næst smellt á þá reiti sem þú vilt ná í.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 23. Mar 2021 14:51
af thorhs
kelirina skrifaði:
þú ert líklega búinn að kíkja á kortasjá lsmi: https://atlas.lmi.is/mapview/?application=DEM


getur þar smellt á gögn og valið Sækja gögn og því næst smellt á þá reiti sem þú vilt ná í.


Nei, vissi ekkk af því, takk kærlega fyrir þetta. Sjáum hvort maður nái einhverju af viti úr þessu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 23. Mar 2021 15:40
af jonfr1900
Hérna er 3D kort af svæðinu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 21:02
af appel
Hvernig finnst ykkur myndgæðin á þessu hjá RÚV?
https://www.youtube.com/watch?v=BA-9QzIcr3c

Mér finnst þetta vera doldið einsog SD gæði. Hefði óskað þess að sjá þetta í betri gæðum.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 21:05
af jonfr1900
Rúv er með vefmyndavélina í SD gæðum. Þetta er ekki HD útsending hjá þeim af eldgosinu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 21:16
af appel
Skrýtið. Þessi straumur er kominn í live stream hjá CNN.com, þessi SD gæði, besta ódýrasta landkynningin, og það er verið að spara einhverja tíu þúsund kalla þarna til að þurfa ekki að senda út í HD. Það á bara strax að koma upp alvöru myndavél og búnaði til að sýna veröldinni þetta í HD gæðum, og skella inn landkynningarauglýsingum í leiðinni.

Að vísu landið lokað og allt í lockdown núna :D en kannski kemur þetta fólk seinna til Íslands.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 21:33
af arons4
Öryggismiðstöðin búin að vera að auglýsa á facebook að rúv hafi keypt af þeim bestu vefmyndavél sem kostur var á, ekkert mjög góð auglýsing fyrir hana greinilega.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 21:39
af vesley
Smella bara upp ljósavél og alvöru tökuvél. Ekkert rugl!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 21:49
af Viktor
Ég held að það séu engar myndavélar sem ná góðum gæðum í svona miklu myrkri :)

Hlýtur að skýrast í fyrramálið.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 22:24
af appel
Sallarólegur skrifaði:Ég held að það séu engar myndavélar sem ná góðum gæðum í svona miklu myrkri :)

Hlýtur að skýrast í fyrramálið.

Það er hægt að spóla til baka í strauminum til að sjá hvernig þetta lítur út í dagsbirtu, og það er svipað. Reyndar bara einsog myndavélin sé ekki í fókus.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 22:59
af himminn
Held það sé ekki út á myndavélina að setja heldur frekar hversu góð tenging er við tölvuna sem móttekur myndefnið, hvernig þeir capturea það sem tölvan er að fá og svo kannski fínstillingar á focus og iso.

Ef ég ætti að giska er þetta voða flott Axis ptz vél sem sendir efnið með 4g á Milestone server. RÚV opnar svo Milestone og eru jafnvel bara að screencaptura það. Held að gæðin glatist rosalega hratt ef þeir eru að taka of margar krókaleiðir til að koma þessu í live feed á youtube.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 23:13
af falcon1
Þeir hljóta að taka þetta inn í hæstu gæðum mögulegum sem er reyndar einungis 1080p miðað við spec'ið en kannski streyma lélegra inná youtube en bestu gæðin á RÚV2?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 24. Mar 2021 23:18
af arons4
falcon1 skrifaði:Þeir hljóta að taka þetta inn í hæstu gæðum mögulegum sem er reyndar einungis 1080p miðað við spec'ið en kannski streyma lélegra inná youtube en bestu gæðin á RÚV2?

Enganvegin merkileg gæði á rúv2 á þessu

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 25. Mar 2021 01:40
af jonfr1900
Það styttist í að tveir gígar verði einn stór gígur þarna.

Varðandi gæðin á útsendingunni. Þá er þetta svæði talsvert langt frá 4G sendum sem eru við Reykjanesbrautina og síðan við Grindavík (nást væntanlega ekki þarna). Ég veit ekki hvaða fyrirtæki Rúv notar í fjarskiptaþjónustu en ef það er Vodafone þá eru nokkrir 4G sendar á bandi 20 við Reykjanesbrautina sem ná þarna inn með takmörkuðu 4G sambandi. Það á að fara að laga það fjarskiptasamband með 3G og 2G sýnist mér. Þar sem 4G og 5G krefst þess að tengt sé við ljósleiðara beint. Ég veit ekki hvort að hægt væri að nota radio linka í svona aðstæðum fyrir mikinn gangaflutning.

Koma á símasambandi við nýju gosstöðvarnar (Fréttablaðið)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 25. Mar 2021 17:56
af falcon1
Hvar fær maður ódýran gasmælir sem er samt traustur? Maður vill helst vera með slíkt ef ske kynni að maður myndi reyna að fara að sjá þetta gos.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 25. Mar 2021 21:48
af mjolkurdreytill
falcon1 skrifaði:Hvar fær maður ódýran gasmælir sem er samt traustur? Maður vill helst vera með slíkt ef ske kynni að maður myndi reyna að fara að sjá þetta gos.


https://www.amazon.com/HZXVOGEN-Portabl ... 8209&sr=8-

Þetta er líklegast ódýrasti mælirinn sem mælir gastegundirnar sem eru á svæðinu, utan SO2.

Til samanburðar er Dynjandi að selja mæli sem heitir Senko. Ekkert verð á síðunni hjá þeim en ég reikna með því að það sé 100 þúsund króna græja miðað við verðið á sama mæli hér.

https://www.internationalgasdetectors.c ... nitor-mgt/

Þessi Senko-mælir mælirSO2 og súrefni. (CO, H2S, O2 og LEL).Hinn mælir Brennisteinsvetni, kolmónoxíð og súrefni. Mælir reyndar líka LEL metan sem ég reikna með að sé grillgas eða jarðgas og skiptir tæpast máli á gossvæði.

Uppfært:


Senko mælirinn sem ég benti á að ofan er ekki sá sami og Dynjandi er að selja. Sá sem ég benti á mælir H2S, CO og O2. Alveg eins og amazon mælirinn.

Dynjandi er að selja mæli sem heitir Senko SO2 24M
https://www.dynjandi.is/product/senko-s ... espsgtso2/

Veit ekki hvort það er nákvæmlega sami mælir og þessi hér:
https://www.internationalgasdetectors.c ... e-monitor/

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 08:37
af zetor
Er hrauntröð að myndast núna? hvað heldur þú jónfr? Merkilegt að sjá hraunið renna í einum stórum farvegi

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 12:12
af falcon1
mjolkurdreytill skrifaði:
falcon1 skrifaði:Hvar fær maður ódýran gasmælir sem er samt traustur? Maður vill helst vera með slíkt ef ske kynni að maður myndi reyna að fara að sjá þetta gos.


https://www.amazon.com/HZXVOGEN-Portabl ... 8209&sr=8-

Þetta er líklegast ódýrasti mælirinn sem mælir gastegundirnar sem eru á svæðinu, utan SO2.

Myndi hann duga þótt hann mæli ekki SO2?

Ps. þoli ekki þegar fyrirtæki birta ekki verð á vörunum sínum á vefnum!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 12:25
af thorhs
falcon1 skrifaði:Myndi hann duga þótt hann mæli ekki SO2?


Nú er ég ekki sérfræðingur, en aðal hættan er CO (kolsýringur). Blóðið tekur upp CO gegnum lungun og kemur þar í staðin fyrir súrefni. Þar sem köfnunartilfynningin byggist á CO2, þá áttar líkaminn sig ekki á því að súrefni vanti. Þetta getur leitt til þess að þú kafnir án þess að átta þig á því. CO er þyngra en andrúmsloftið og leggst því í polla í dældum og dölum. Þetta getur gerst bara við það að beygja þig niður til að reyma skó oþh. Ef enginn getur komið þér til hjálpar og komið þér úr CO pollinum, þá er það bara game over.

Þú finnur lykt af SO2 og getur því notað það að vissu leiti sem mæli, þeas forðast vondu lyktina.

Endilega leiðrétta mig ef ég er að fara með rangt mál. Getur líka haft samband við sölumenn á þessum mælum, þeir ættu að þekkja þetta að einhverju leiti.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 12:35
af mjolkurdreytill
Þitt líf og þínar ákvarðanir ;)

Alvöru mælar eru klárlega rándýrir og maður fær yfirleitt það sem maður borgar fyrir. Ég var að sjá verðin 350-700 pund þegar ég renndi yfir þetta í gær.

Miðað við umsagnir á Amazon þá virðist hann virka allt í lagi, sérstaklega ef hann fær að vera í gangi í lengri tíma.

Að því sögðu þá veit ég ekki betur en að SO2 lykti þannig að það á ekki að fara framhjá þér ef þú ert staddur í SO2 mengun. Brennisteinsvetni H2S lyktar líka síðast þegar ég gáði en í hvaða styrk það þarf að vera veit ég ekki.

Kolmónoxíð (CO) lyktar ekki, þannig að af tvennu illu myndi ég frekar velja CO mæli en SO2 mæli.

Að öðru leyti þá hef ég aldrei notað svona mæli. Sé ekki betur en að Jarðvísindastofnun sé að nota mæli sem heitir Crowcon Gas Pro.
https://www.crowcon.com/products/portables/gas-pro/

Dýrara afbrigðið sem mælir líka CO2 er að kosta lítil 919 pund án vasks.
https://gasmonitor-point.co.uk/portable ... -detector/

Þú getur svo séð algeng verð á því sem ég reikna með að séu gæða gasmælar.
https://www.gasdetectorshop.com/portabl ... s-s/47.htm

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 13:12
af falcon1
mjolkurdreytill skrifaði:Þitt líf og þínar ákvarðanir ;)

Vissulega. :D

Ég myndi annars alltaf passa mig á því að fara þegar vindátt er hagstæð og helst stífur vindur. :)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 13:59
af jonfr1900
zetor skrifaði:Er hrauntröð að myndast núna? hvað heldur þú jónfr? Merkilegt að sjá hraunið renna í einum stórum farvegi


Mér sýnist þetta eldgos vera leggja grunninn að því að báðir gíganir sameinist í einn gíg. Það er reyndar spurning hversu langan tíma það tekur þar sem haftið á milli þessara gíga er orðið talsvert stórt. Það er að hlaðast upp ágætt fjall þarna og þarf ekki margar vikur af eldgosi í viðbót áður en þetta eldgos fer að sjást frá Reykjavík frá nýju eldfjalli.

Þetta er mikið til nýtt sem íslenskir jarðfræðingar og þar á meðal ég er að sjá núna. Þar sem svona eldgos hefur ekki orðið á Íslandi í 7000 ár að lágmarki.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 21:15
af g0tlife
falcon1 skrifaði:
mjolkurdreytill skrifaði:Þitt líf og þínar ákvarðanir ;)

Vissulega. :D

Ég myndi annars alltaf passa mig á því að fara þegar vindátt er hagstæð og helst stífur vindur. :)


Björgunarsveitir eru á svæðinu á daginn með mæla og láta vita. Óþarfi að kaupa þér græju nema þú ætlar að fara þarna um kvöld eða nótt.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 21:22
af appel
Vá, hafiði séð youtube live streymið núna?
https://www.youtube.com/watch?v=BA-9QzIcr3c

Þetta er einsog á tónleikum, hundruðir þarna, allir með símann á lofti og vasaljósið í gangi til að sjá niður fyrir sig.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Mar 2021 22:10
af falcon1
appel skrifaði:Vá, hafiði séð youtube live streymið núna?
https://www.youtube.com/watch?v=BA-9QzIcr3c

Þetta er einsog á tónleikum, hundruðir þarna, allir með símann á lofti og vasaljósið í gangi til að sjá niður fyrir sig.

Hahah... já, þetta er smá geggjun. :D