Síða 14 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 19:54
af Hausinn
mikkimás skrifaði:Flott, þá getum við mjólkað ferðamennina næstu árin.

Þeir munu gjörsamlega hrauna yfir okkur. :lol:

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 20:08
af Hizzman
mikkimás skrifaði:Ég hef ekki heyrt eina einustu manneskju með þekkingu á sviði jarðeðlisfræði tala um raunhæfan möguleika á stórgosi á þessum slóðum,


þessir sem tala í fjölmiðla eru að hugsa um að 'EKKI ALA Á ÓTTA ALMENNINGS' - við erum bara eins og börn sem þarf að hlífa við óþægilegum upplýsingum

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 20:37
af mjolkurdreytill
Eigum við ekki aðeins að slaka á og hafa rétt eftir fólki.

Þorvaldur Þórðarson sagði ekki að gos þarna myndi standa í 250-500 ár eða talaði um sérstakan möguleika á því. Hann sagði að gos hefði líklegast staðið yfir í Skjaldbreið í 250-500 ár miðað við útreikninga þeirra. Eitthvað sem ég efast um að hann hafi birt í ritrýndri grein.

Þorvaldur Þórðarson skrifaði:Við gerðum þetta fyr­ir ákveðið svæði og marg­földuðum upp. Við vor­um að leika okk­ur með Þing­valla­hraunið sem er göm­ul dyngja og Skjald­breið og við vor­um að fá gos­lengd upp á 250 til 500 ár fyr­ir stóru dyngj­urn­ar, og þá vor­um við jafn­vel of rausn­ar­leg­ir í fram­leiðninni.“

Þor­vald­ur seg­ir þetta ekki beint segja okk­ur hversu lengi gos sem mynda stór­ar dyngj­ur vara, en samt sem áður að dyngj­ur séu myndaðar í mjög löng­um gos­um.


Feitletrun er mín.

Ég veit ekki hverjir "við" erum í þessu samhengi en grunar að hann sé að tala um sig og Einar Bessa Gestsson (náttúruvársérfræðing hjá veðurstofunni) sem skrifaði BSc verkefnið sitt um Þingvallahraun undir leiðsögn Þorvaldar. (https://skemman.is/bitstream/1946/21553 ... 0Bessi.pdf). Útreikningar Einars eru í kafla 4.4.

Vel að merkja er Skjaldbreiður næstum 100 km í burtu frá Geldingadal. Tilheyrir allt öðru eldfjallakerfi og gaus fyrir 9 þúsund árum síðan. Á svipuðum tíma og leifar ísaldarjökulsins eru að hverfa. Sem þýðir að gosið er líklegast afleiðing möttulbráðnunar vegna fargléttingar skorpunnar. Heiðin há sem Þorvaldur nefnir einnig er talin vera 7500 ára gömul.

Ég veit ekki hvort það eru yngri gos á því svæði en þau eru tæplegast mikið yngri en þau sem eru til staðar (sunnan við Langjökul).

Til samanburðar má nefna það að líklegast hefur gosið á Reykjanesskaganum 20 sinnum á síðustu tvö þúsund árum. Frá landnámi líklegast 12 sinnum hið minnsta. Síðasta gosið er eins og mögulega hefur komið fram hérna, um árið 1340 sem þýðir það það gaus þarna um 12 sinnum á tæplega 500 ára tímabili.

:fly

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 22:29
af jonfr1900
mikkimás skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
mikkimás skrifaði:Lol þú mátt spara stóru orðin.


Það er kvikusöfnun í gagni vestan við Grindavík sem á uppruna sinn í djúpu kvikuhólfi. Það er væntanlega ekki ennþá komið að eldgosi þar alveg strax en teljarinn í það eldgos er orðinn mjög stuttur tel ég. Það er fyrir utan þetta eldgos í Geldingadalir sem mun renna þangað hægt og rólega eftir að eldgosið er búið er að fylla upp í alla dali sem þarna eru í dag.

Dyngjur eru einnig mjög sérstök eldgos.

Hvað er dyngjugos? (Vísindavefurinn)

Edit: Bætti aðeins við textann.

Ég hef ekki heyrt eina einustu manneskju með þekkingu á sviði jarðeðlisfræði tala um raunhæfan möguleika á stórgosi á þessum slóðum, burtséð frá kvikusöfnun og þrýstingi, nú eða þá að hraun úr þessu gosi muni flæða yfir Grindavík á endanum. Þú veist að það er ekki langt í sjóinn frá gosinu?

Fyrir ári síðan þegar landris stóð yfir við Þorbjörn talaði Maggi Tumi m.a.s. um að yrði gos þarna yrði það *ekki* stórt.


Stærstu gossprungur á Reykjanesi geta náð 20 til 40 km lengd eftir því hvaða eldstöð gýs og hvar gýs og hvernig eldgos verður. Hluti af sprungusveim Krýsuvíkur liggur upp í Mosfellsdal þar sem leifar af kulnaðri eldstöð eru. Það er mjög líklegt að sprungusveimur eldstöðvarinnar Reykjanes (vestan við Grindavík) nái til Reykjavíkur samkvæmt jarðfræðikorti sem ég á en mörkin eru ekki skráð á kortið þar sem þau eru undir sjó eða ekki þekkt.

Þú getur keypt þetta jarðfræðikort hérna. Upplýsingar á kortinu eru frá 2009 held ég eða í kringum það ár og því vantar nýrri rannsóknir inná þetta kort.

Höggunarkort (Forlagið)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 23:31
af jonfr1900
Samkvæmt sérfræðingum Háskóla Íslands þá eru komnar fram vísbendingar sem væntanlega verða staðfestar í næstu mælingu hvort að þessu eldgosi sé að ljúka eða ekki.

Eldgos í Geldingadölum (Háskóli Íslands)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 23:50
af appel
Þarf maður að fara flýja reykjavík?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 30. Mar 2021 23:52
af mjolkurdreytill
appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?


Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.

STÓRHÆTTU! :!:

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 31. Mar 2021 00:12
af GuðjónR
mjolkurdreytill skrifaði:
appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?


Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.

STÓRHÆTTU! :!:

Hættu að hræða mig!!!! :wtf :wtf :wtf

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 31. Mar 2021 12:43
af thorhs
Athyglisvert, virðist vera að koma upp rautt hraun að einhvrerju leiti... nýjir rauðhólar að myndast?

Mynd

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 31. Mar 2021 13:37
af rapport
GuðjónR skrifaði:
mjolkurdreytill skrifaði:
appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?


Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.

STÓRHÆTTU! :!:

Hættu að hræða mig!!!! :wtf :wtf :wtf


Capture.PNG
Capture.PNG (167.95 KiB) Skoðað 2635 sinnum

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 31. Mar 2021 14:06
af GuðjónR
rapport skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
mjolkurdreytill skrifaði:
appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?


Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.

STÓRHÆTTU! :!:

Hættu að hræða mig!!!! :wtf :wtf :wtf


Capture.PNG

1. apríl er ekki fyrr en á morgun! hahaha ...

Kann betur við þessa fyrirsögn þó...

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 31. Mar 2021 20:19
af mjolkurdreytill
thorhs skrifaði:Athyglisvert, virðist vera að koma upp rautt hraun að einhvrerju leiti... nýjir rauðhólar að myndast?



Nei. Rauðhólar mynduðust þegar hraun fór yfir mýri eða votlendi.

Helsta ástæðan fyrir því að hraun verður rautt er að það oxist og myndi járnoxíð. Gerist oftar en ekki þegar það kemst í snertingu við vatn.

Mig grunar að þessi rauði litur sé einhverskonar sjónhverfing af völdum hita eða gass. Ef ekki þá væri nálægasta skýringin rigning eða snjókoma sem ég myndi ekki alveg veðja á sjálfur.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 01. Apr 2021 02:46
af jonfr1900
Hérna er talað um að ef eldgosið verður áfram í gangi eftir 3 mánuði þá verða öll lægri svæði þarna orðin full af hrauni.

Dal­ur­inn hægt og ró­lega að fyll­ast (mbl.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 01. Apr 2021 11:36
af mikkimás
Þótt dal­ur­inn fyll­ist er ekki þar með sagt að strax byrji að leita í aðrar lægðir, held­ur er einnig mögu­leiki að það nái að taka á sig dyngju­lög­un og þá verður hraun­flæðið ekki út á við held­ur fer það að flæða jafnt yfir gíg­vegg­ina hring­inn um kring og mynda hefðbundna dyngju.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 01. Apr 2021 19:30
af mjolkurdreytill
Hraunflæðið hefur tekið breytingum síðan það hófst.

Í upphafi var það helluhraun en núna er það farið að hegða sér meira eins og apalhraun.

Á sumum stöðum sést hvar hraunjaðarinn er farinn að ýta öllu á undan sér.

Hraunið er svolítið innilokað og gæti alveg þykknað inni í dalnum án þess að leita mikið út úr honum.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 02. Apr 2021 13:11
af Graven
Nennir einhver að henda þessum aumingjum í gíginn!
https://youtu.be/BA-9QzIcr3c
12:57:54

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 02. Apr 2021 13:20
af mjolkurdreytill
Graven skrifaði:Nennir einhver að henda þessum aumingjum í gíginn!
https://youtu.be/BA-9QzIcr3c
12:57:54


Hvað hefur gígurinn eiginlega gert þér? :fly

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 02. Apr 2021 14:03
af mikkimás
Þetta var aðeins of mikið cringe moment.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 02. Apr 2021 18:55
af jonfr1900
Íslendingar halda áfram að haga sér eins og fífl fyrir framan vefmyndavél Rúv.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 02. Apr 2021 19:03
af ChopTheDoggie
This is why we can’t have nice things, alltaf að vera eyðileggja fyrir aðra :-"

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 02. Apr 2021 23:40
af jonfr1900
Hérna er frétt Rúv um fólkið sem er að trufla vefmyndavélina.

Skemma beint streymi frá eldgosinu með stælum

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 03. Apr 2021 22:56
af ZiRiuS
Er útvarp saga hætt eða?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 02:24
af jonfr1900
Það er orðin stór spurning hvort að það fari að gjósa við Keili. Það er áhugaverð og stöðug smáskjálftavirkni þarna núna, ekki mjög mikil en það þarf ekki að segja mikið.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 09:50
af falcon1
Mér sýnist að eitthvað hafi hægt á gosinu eftir jarðskjálftann í gær, er það vitleysa í mér?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 10:45
af mjolkurdreytill
falcon1 skrifaði:Mér sýnist að eitthvað hafi hægt á gosinu eftir jarðskjálftann í gær, er það vitleysa í mér?


Það er vont að bera saman glóandi kvikuna í myrkri og svo aftur í dagsbirtu en ég held að það sé ekki hægt að neita því að núna í morgunsárið dró verulega úr virkninni í gígunum.

jonfr1900 skrifaði:Það er orðin stór spurning hvort að það fari að gjósa við Keili. Það er áhugaverð og stöðug smáskjálftavirkni þarna núna, ekki mjög mikil en það þarf ekki að segja mikið.


Það þarf samt að hafa í huga að skjálftavirknin á því svæði, sem hefur verið stöðug undanfarnar vikur, er að mestu (ekki öllu) leyti að eiga sér stað á 5-6 km dýpi og skjálftarnir þarna eru smáir.


Hér er t.d. virknin á 3-10 km dýpi.

Mynd

Hér er svo virknin á 3km dýpi og minna.

Mynd

Tímabilið á þessum myndum er 19 mars til dagsins í dag.

Getið séð þetta á skjálftavefsjánni.
https://skjalftalisa.vedur.is/index.html#/page/map

----------------------

Ætla að skjóta inn virkninni á 5 km dýpi og meira bara svo fólk sjái hvað mikið af þessari virkni er að eiga sér stað á +5 km dýpi.

Mynd