Síða 15 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 12:25
af mikkimás
mjolkurdreytill skrifaði:
falcon1 skrifaði:Mér sýnist að eitthvað hafi hægt á gosinu eftir jarðskjálftann í gær, er það vitleysa í mér?


Það er vont að bera saman glóandi kvikuna í myrkri og svo aftur í dagsbirtu en ég held að það sé ekki hægt að neita því að núna í morgunsárið dró verulega úr virkninni í gígunum.

Ný sprunga.

Skýringin komin?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 12:51
af MrIce
mikkimás skrifaði:Ný sprunga.

Skýringin komin?


Mögulega bara fyrsta nýja sprungan, kæmi mér ekki á óvart miðað við hvað það svona snöggdó (að mínu mati) krafturinn á orginal spot.

ég giska á að það komi jafnvel 2-3 sprungur í viðbót, but fuck do i know \:D/

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 12:57
af mikkimás
Sama sprunga segir Páll Einars, bara að teygja sig aðeins norður.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:12
af jonfr1900
mikkimás skrifaði:Sama sprunga segir Páll Einars, bara að teygja sig aðeins norður.

Ég mundi segja að það væri kannski tilfellið en ég er ekki viss um að ég sé sammála Páli Einarssyni ennþá.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:18
af mjolkurdreytill
Þessi sprunga er líklegast á sömu línu og upphaflega sprungan var. Í það minnsta eru þær samsíða í NA-SV

Myndin frá Vísi sýnir þetta best.

Mynd

Ljósmyndari: Armas Salsola

https://www.visir.is/g/20212093433d/ny- ... -nes-skaga

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:20
af falcon1
sýnist að björgunarsveitartjaldið gæti verið í hættu. :)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:21
af falcon1
Bjóst við þessu þegar ég sá hvað hefði dregið mikið úr Norðra/Suðra. :D Það er bara frekar mikið líf í þessari nýju sprungu/m.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:23
af falcon1
Ágætt að þetta gerðist ekki um daginn þegar það var troðfullt af fólki þarna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:25
af mjolkurdreytill
falcon1 skrifaði:sýnist að björgunarsveitartjaldið gæti verið í hættu. :)


Þetta tjald hefur ekki verið nothæft nema hluta af tímanum sem það hefur staðið vegna gasmengunar.

Staðsetningin á tjaldinu var kjánaleg.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:26
af falcon1
mjolkurdreytill skrifaði:
falcon1 skrifaði:sýnist að björgunarsveitartjaldið gæti verið í hættu. :)


Þetta tjald hefur ekki verið nothæft nema hluta af tímanum sem það hefur staðið vegna gasmengunar.

Staðsetningin á tjaldinu var kjánaleg.

Já, hef aldrei skilið þessa staðsetningu á tjaldinu en hver er ég að deila við sérfræðingana. :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:47
af jonfr1900
Mér sýnist að nýja sprungan sé ennþá að lengjast eitthvað. Það gæti hafa stöðvast í smá tíma núna eins og vill stundum gerast í svona atburðarrás.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:51
af falcon1
jonfr1900 skrifaði:Mér sýnist að nýja sprungan sé ennþá að lengjast eitthvað. Það gæti hafa stöðvast í smá tíma núna eins og vill stundum gerast í svona atburðarrás.

Klárlega lengst á síðasta klukkutíma miðað við fyrstu myndir af nýju sprungunni.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:52
af falcon1
Þetta sögðu þeir hjá Veðurstofunni 26. mars.

"Ólíklegt að nýjar gosstöðvar myndist yfir ganginum"

veðurstofa-26-mars-ólíklegt-gos-reykjanes.JPG
veðurstofa-26-mars-ólíklegt-gos-reykjanes.JPG (144.99 KiB) Skoðað 3178 sinnum

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 13:57
af jonfr1900
falcon1 skrifaði:sýnist að björgunarsveitartjaldið gæti verið í hættu. :)


Miðað við þessa frétt hjá Morgunblaðinu þá hefur þú rétt fyrir þér.

Mynd­band úr þyrlu Gæsl­unn­ar

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 14:07
af mikkimás
Hvort það sé rétt að tala um sömu eða nýja sprungu, þá er þetta nákvæmlega sami kvikugangur.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 14:15
af falcon1
mikkimás skrifaði:Hvort það sé rétt að tala um sömu eða nýja sprungu, þá er þetta nákvæmlega sami kvikugangur.

Algjörlega.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 17:09
af jonfr1900
Það er spurning hvort að þetta "litla" eldgos sé að fara að breytast í mjög stórt eldgos. Það gæti verið eitthvað að gerast á miklu dýpi sem sést ekki á mælum. Það þarf ekki mikið að gerast djúpt í jarðskorpunni svo að flæðið upp þar aukist mikið frá því sem það er í dag enda er það djúpflæðið sem stjórnar framgangi þessa eldgoss.

Ef það verður mikil breyting. Þá ætti sú breyting að koma fram eftir 1 til 12 klukkutíma í fyrsta lagi. Gæti samt tekið lengri tíma þar sem það er vonlaust að vera með góða vissu í þessu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 17:48
af thrkll
jonfr1900 skrifaði:Það er spurning hvort að þetta "litla" eldgos sé að fara að breytast í mjög stórt eldgos. Það gæti verið eitthvað að gerast á miklu dýpi sem sést ekki á mælum. Það þarf ekki mikið að gerast djúpt í jarðskorpunni svo að flæðið upp þar aukist mikið frá því sem það er í dag enda er það djúpflæðið sem stjórnar framgangi þessa eldgoss.

Ef það verður mikil breyting. Þá ætti sú breyting að koma fram eftir 1 til 12 klukkutíma í fyrsta lagi. Gæti samt tekið lengri tíma þar sem það er vonlaust að vera með góða vissu í þessu.


Einhver ástæða fyrir því að halda að þetta muni gerast, m.v. að það liggja engin gögn eða mælingar fyrir sem benda til þess? Og hvernig breytingu sérðu fyrir þér?

Maður sér hins vegar alveg greinilega hvernig spýjurnar úr nýju sprungunni stækka með hverjum klukkutímanum sem líður.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 18:19
af jonfr1900
thrkll skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Það er spurning hvort að þetta "litla" eldgos sé að fara að breytast í mjög stórt eldgos. Það gæti verið eitthvað að gerast á miklu dýpi sem sést ekki á mælum. Það þarf ekki mikið að gerast djúpt í jarðskorpunni svo að flæðið upp þar aukist mikið frá því sem það er í dag enda er það djúpflæðið sem stjórnar framgangi þessa eldgoss.

Ef það verður mikil breyting. Þá ætti sú breyting að koma fram eftir 1 til 12 klukkutíma í fyrsta lagi. Gæti samt tekið lengri tíma þar sem það er vonlaust að vera með góða vissu í þessu.


Einhver ástæða fyrir því að halda að þetta muni gerast, m.v. að það liggja engin gögn eða mælingar fyrir sem benda til þess? Og hvernig breytingu sérðu fyrir þér?

Maður sér hins vegar alveg greinilega hvernig spýjurnar úr nýju sprungunni stækka með hverjum klukkutímanum sem líður.


Það hefur engin tilfallandi breyting orðið á GPS mælingum undanfarna vikur. Það gefur mér grunsemdir að eitthvað meira í sé í gangi en kemur fram í mati á stöðinni hjá vísindamönnum hjá Veðurstofunni og Háskóla Íslands.

Það gaus sem dæmi í mánuð eða tvo (nákvæmt tímasetning er ekki þekkt) í Grímsfjalli og Þórðarhyrnu áður en eldgosið í Laka hófst 1783 með látum sem á uppruna sinn í grunnstæðu kvikuhólfi. Það er mjög líklegt að kvikuhólfið sem núna gýs úr sé á 17 km til 25 km dýpi (eða þarna á milli) í eldgosinu í Geldingadal og Fagradalsfjalli (nýja eldgosið). Síðan hefur verið mjög áhugaverð jarðskjálftavirkni við Keili á mjög þröngu svæði sem eykur grunsemdir mínar að þar gæti farið að gjósa fljótlega.

Heimild:
Unexpected large eruptions from buoyant magma bodies within viscoelastic crust

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 22:34
af kjartanbj
Það var að koma nýtt sjónarhorn á vefmyndavélina hjá Rúv sem er helvíti flott

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mán 05. Apr 2021 23:04
af brain
Er þetta ekki IR ?

mjög cool !

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 06. Apr 2021 00:20
af jonfr1900
kjartanbj skrifaði:Það var að koma nýtt sjónarhorn á vefmyndavélina hjá Rúv sem er helvíti flott


Rúv gleymdi samt að slökkva á auto focus á nýju myndavélinni. Núna er allt úr fókus og í móðu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 06. Apr 2021 14:36
af jonfr1900
Það er komnar tvær vefmyndavélar á YouTube rás Rúv.

Live from the volcano in Meradalir, Iceland
Live from the volcano in Geldingadalir, Iceland

Síðan uppgötvaðist í nótt 150 metra löng sprunga á milli eldgosanna og þar er mikill hiti að koma upp sem bendir til þess að stutt sé í eldgos í þeirri sprungu. Einnig sem að land er að síga á þessu svæði um marga metra. Það er einnig komið fram jarðsig og frekari sprungumyndun norður af nýju gígunum og því er mjög líklegt að fljótlega fari að gjósa norður af nýju gígunum.

Gæti opn­ast með litl­um fyr­ir­vara (mbl.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 07. Apr 2021 00:29
af Uncredible
Ný sprunga að myndast, hægt að sjá það á RÚV streyminu á báðum myndavélum ef spólað er til miðnættis.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 07. Apr 2021 00:47
af mjolkurdreytill
Ég myndi forðast Kjalarnesið á næstunni. 8-[



Rek samt augun í það að það mældist einn skjálfti í gær rétt fyrir hádegi á 1 km dýpi að stærðinni 1.8 nánast alveg á staðnum þar sem sprungan opnast.

Skjálfta Lísa skrifaði:
Dags: 2021-04-05T 11:37:19
Breiddargr: 63.89
Lengdargr: -22.259
Dýpi: 1
Stærð : 1.8 M