Síða 18 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 15. Apr 2021 18:17
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
falcon1 skrifaði:Nokkrir skjálftar yfir 2 á Reykjaneshryggnum í dag... vonum að ekki fari að gjósa í hafinu. :D

Er það ekki bara betra?

Nei viltu fá öskufall líka? Er ekki nóg mengun samt? :D

Er samasem merki þar á milli? Ef svo er þá er svarið nei, óþarfi að gefa borgarstjórn frekari ástæðu til lækkunar umferðarhraða.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 15. Apr 2021 18:46
af falcon1

Ekki alveg, fer dáldið eftir hversu mikið og kröftuglega mun gjósa. :)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 16. Apr 2021 01:44
af jonfr1900
Þetta eru allt annað en góðar fréttir. Þar sem hitun eldstöðvarkerfis bendir sterklega til þess að stutt sé í eldgos í umræddu eldstöðvarkerfi.

Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis (Vísir.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 16. Apr 2021 07:28
af zetor
jonfr1900 skrifaði:Þetta eru allt annað en góðar fréttir. Þar sem hitun eldstöðvarkerfis bendir sterklega til þess að stutt sé í eldgos í umræddu eldstöðvarkerfi.

Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis (Vísir.is)

já það er eitthvað að gerjast þarna, þetta er spurning hvenær " stutt í " verður.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 16. Apr 2021 13:53
af jonfr1900
zetor skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Þetta eru allt annað en góðar fréttir. Þar sem hitun eldstöðvarkerfis bendir sterklega til þess að stutt sé í eldgos í umræddu eldstöðvarkerfi.

Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis (Vísir.is)

já það er eitthvað að gerjast þarna, þetta er spurning hvenær " stutt í " verður.

Rannsóknir sýna að hitunarferlið er 2 til 7 ár áður en eldgos hefst. Þetta er reyndar mun minni hitaaukning en það sem er að koma fram þarna. Oftast eykst hitinn bara um 1 gráðu í umhverfi eldstöðvarinnar.

Volcanic Lands Warm Before Eruptions (EOS)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 17. Apr 2021 10:52
af GuðjónR
jonfr1900 skrifaði:Þetta eru allt annað en góðar fréttir. Þar sem hitun eldstöðvarkerfis bendir sterklega til þess að stutt sé í eldgos í umræddu eldstöðvarkerfi.

Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis (Vísir.is)

Ég las þetta sem „Hrægammarnir búnir að auka orku Svartsengis“ :wtf

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 17. Apr 2021 22:23
af falcon1
haha... það eru nú hrægammar sem eiga HS Orku. :D

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 20. Apr 2021 23:41
af mjolkurdreytill
Og nú skelfur við Grindavík. Ekkert nýtt að frétta.

Áhugavert að sjá líka að skjálftavirknin sem var við Keili virðist hafa dregið saman og við erum að sjá einangraða mynstur nær Fagradalsfjalli.

Á sama tíma er greint frá því að nyrstu gígarnir séu hættir að gjósa.<

Ég sé bara ekki hvernig þetta boðar gott fyrir Kjalarnesið.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 20. Apr 2021 23:46
af mjolkurdreytill
Sjá hérna að þessir skjálftar sem eru að eiga sér stað eru flestir að eiga sér stað á litlu dýpi 0-3 km.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 20. Apr 2021 23:48
af GuðjónR
mjolkurdreytill skrifaði:Og nú skelfur við Grindavík. Ekkert nýtt að frétta.

Áhugavert að sjá líka að skjálftavirknin sem var við Keili virðist hafa dregið saman og við erum að sjá einangraða mynstur nær Fagradalsfjalli.

Á sama tíma er greint frá því að nyrstu gígarnir séu hættir að gjósa.<

Ég sé bara ekki hvernig þetta boðar gott fyrir Kjalarnesið.

Ég fann þetta mjög greinilega.
Kjalarnesið er í uppnámi :?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 20. Apr 2021 23:49
af appel

Best að byrja að pakka!

Hehe, fann ekki neitt í kópavogi... enda best að vera þar.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Þri 20. Apr 2021 23:52
af mjolkurdreytill
appel skrifaði:

Þessir skjálftar eru aðallega að finnast í betri byggðum ... og Kjalarnesi.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 00:38
af Mossi__
Ég mun sakna kjalarnessins.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 01:19
af jonfr1900
mjolkurdreytill skrifaði:Sjá hérna að þessir skjálftar sem eru að eiga sér stað eru flestir að eiga sér stað á litlu dýpi 0-3 km.

Mjög líklega er kvika farin að reyna að troða sér þarna upp. Hvort að það tekst veltur á því hvaða veikleikar eru í jarðskorpunni á þessu svæði. Það er spurning hvort að það fari að gjósa á allri 8 km langri sprungunni sem er þarna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 16:22
af thrkll
Ég fann ekki neitt fyrir skjálftanum en konan mín hristist vel í öðru herbergi í sama húsi. Eru þetta hugsanleg merki um kvikuinnskot undir svefnherbergið hjá mér? 8-[

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 16:57
af mikkimás
Verður búandi á Egilstöðum í framtíðinni?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 17:35
af jonfr1900
Það getur gosið í tveim eldstöðvum á sama tíma á Reykjanesskaga og Reykjanesshrygg einnig.

Næsta eld­gos ekki eins þægi­legt (mbl.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 17:44
af jonfr1900
mikkimás skrifaði:Verður búandi á Egilstöðum í framtíðinni?

Þetta kort hérna er af þeirri kviku sem hefur tekist að mæla með jarðskjálftamælingum og er undir Íslandi. Það er minnst kvika undir austurlandi enda er þar minnstur jarðhiti.

Jarðhiti á Íslandi.
hitastigulskort_isl.png
hitastigulskort_isl.png (36.62 KiB) Skoðað 2468 sinnum

Þykkt jarðskorpunnar á Íslandi.
Iceland1_Fig4b_600.jpg
Iceland1_Fig4b_600.jpg (68.91 KiB) Skoðað 2468 sinnum

Kvikan undir Íslandi.
IcelandGreenPair_200.gif
IcelandGreenPair_200.gif (9.02 KiB) Skoðað 2468 sinnum

Rekbeltin á Íslandi eru nokkur og þetta hérna kort er það nákvæmasta sem ég hef séð. Þverbrotabelti eru merkt með rauðum línum og eru oftast án eldgosa.
rekbelti-565isor.jpg
rekbelti-565isor.jpg (103.73 KiB) Skoðað 2468 sinnum

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 22:19
af urban
GuðjónR skrifaði:Ég fann þetta mjög greinilega.
Kjalarnesið er í uppnámi :?

Við eyjamenn höfum eitthvað að lausu húsnæði, ættum að geta tekið á móti flóttamönnum af kjalarnesinu.
Þú ert allavega vanur rokinu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 23:26
af jonfr1900
urban skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég fann þetta mjög greinilega.
Kjalarnesið er í uppnámi :?

Við eyjamenn höfum eitthvað að lausu húsnæði, ættum að geta tekið á móti flóttamönnum af kjalarnesinu.
Þú ert allavega vanur rokinu.

Ég veit ekki. Það eru vísbendingar um að það gjósi í Vestmannaeyja eldstöðvarkerfinu á 40 til 100 ára fresti. Eldstöðvarkerfið er stórt og er meirihluti þess undir sjó og þar eru flest eldgosin og illa skráð af þeirri ástæðu. Milli eldgossins árið 1896 og ársins 1963 eru bara 67 ár sem er nærri því að vera áætlað miðgildið fyrir eldgos í Vestmannaeyja eldstöðvarkerfinu.

Ef fólk vill losna við jarðskjálfta og eldgos. Þá er best að flytja til Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands eða Norður Þýskalands.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Mið 21. Apr 2021 23:59
af urban
Já en við erum líka búin að sigrast á eldfjalli :)
Gerum það bara aftur.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 22. Apr 2021 02:09
af Bretti
Auðvita ekki gott. Kannski vont en það venst, nema það versni.
Við verðum að hafa í huga að svona "smámunir" hafa hafa viðgengist síðan jörðin okkar fæddist og fólk hefur ekkert verið að æsa sig.
Þetta reddast allt saman.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 22. Apr 2021 02:24
af Mencius
jonfr1900 skrifaði:
mikkimás skrifaði:Verður búandi á Egilstöðum í framtíðinni?

Þetta kort hérna er af þeirri kviku sem hefur tekist að mæla með jarðskjálftamælingum og er undir Íslandi. Það er minnst kvika undir austurlandi enda er þar minnstur jarðhiti.

Jarðhiti á Íslandi.
hitastigulskort_isl.png

Þykkt jarðskorpunnar á Íslandi.
Iceland1_Fig4b_600.jpg

Kvikan undir Íslandi.
IcelandGreenPair_200.gif

Rekbeltin á Íslandi eru nokkur og þetta hérna kort er það nákvæmasta sem ég hef séð. Þverbrotabelti eru merkt með rauðum línum og eru oftast án eldgosa.
rekbelti-565isor.jpg

Þessi belti h og vr gjósa þau og ef svo er hvað er langt síðan gaus úr þeim?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 22. Apr 2021 05:24
af jonfr1900
Það er mismunandi hversu langt er síðan það gaus á þessum svæðum. Sum eldfjöll hafa ekki gosið síðustu 12.000 ár. Gott dæmi um slíkt er Hofsjökull sem hefur ekki gosið í meira en 12.000 ár. Það hafa orðið einhver smágos þar á nútíma en hvenær þau urðu er ekki vitað. Síðan er eldstöðin Kerlingafjöll sem hefur einnig ekki gosið á nútíma svo vitað sé (12.000 ár).

Hvenær gaus Hofsjökull síðast? (Vísindavefurinn)

Það gaus síðast á Hveravöllum árið 950 og er sú eldstöð hugsanlega að nálgast næsta eldgosaskeið.

Langjökull (Global Volcanism Program)

Það gaus síðast í Presthnjúkum sem tilheyra eldstöð í suðurhluta Langjökuls fyrir um 5370 árum síðan (3350 BCE)

Prestahnúkur (Global Volcanism Program).

Síðan er ekki vitað hvenær eldstöðin (Grenidalur) sem Hveragerði stendur á gaus síðast eða eldstöðin þar sem Geysir er. Það er nefnilega fullt af litlum en mjög virkum eldstöðum meðfram öllu rekbeltinu og þessar eldstöðvar geta byrjað nýtt virknitímabil án nokkursfyrirvara og það eru ekkert endilega öll eldgos þar róleg hraungaus. Hérna er kort yfir allar eldstöðvar á Íslandi.

Það þarf ekki nema að koma eitt kvikuinnskot inn í þessar eldstöðvar til að setja allt af stað og þegar það gerist þá er ekki víst að það stoppi fyrr en eftir langan tíma og langvinnt eldgos. Síðan þurfa eldstöðvar ekkert að vera rosalega stórar til þess að skapa meiriháttar vandræði ef röng gerð af eldgosi kemur fram (ekki hraungos).

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fim 22. Apr 2021 10:35
af mjolkurdreytill
Síðasta gos í Langjökulseldstöðinni er gosið sem myndaði Hallmundarhraun og það var líklegast stuttu eftir landnám.